Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1880, Side 37
Resember 15. Andaííist síra Magnús Thorlacius, prestur ai5
Eeynissta-Sarklaustri.
— 21. Andaðist Guðmundur bóndi Brynjúlfsson á Mýrum
í Dyrafirði.
— s. d. Fórst róðrarskip með 6 mönnum í Njarðvíkum.
~ 22. Brukknaði í Blönduósi Björn bóndi Jónsson á Efri-
þverá í Vesturbópi.
— 24. Brann til ösku bærinu á Stóra-Sandfelli í Skriðdal.
~ 28. Brýndi bæjarfógetinn á Akureyri fyrir verzlunarstjórum
þar, að öll vínsala í verzlunarbúðum til nautnar á sjálfum
staðnum sje óleyfileg.
— 31. 2 kvennmenn úr Eyðaþingbá urðu úti.
— s. d. Eptirstöðvar í jarSeldastyrktarsjóði 20100 kr. 28 a.,
i prestaekknasjóði 14,147 kr. 56 a., af tíuttormsgjöf 1 633 kr.
74 a., af sjóði af árgjöldum brauða 2 06!) kr. 24 a., af sjóði
fátækra ekkna í Norðurlandi 1,606 kr. 74 a.
GUÐRÚN OG BJARNI.
(„Den Bette“, eptir Carl Andersen).
Himininn var beiður og sólin skein skært, þó um miðjan
vetur væri, og það á íslandi, sem liggur svo norðarlega. Sólin
skein á hvítu fjöllin, sem spegluðu sig í haflnu, heiðbláu og
rennsléttu í logninu; hún skein á fjörðinn, á snjóþöktu hús-
þökin í kaupstaðnum, og á hæðirnar fyrir sunnan hann og hólana
öðrum megin við stöðuvatn eitt lítið. ísinu á vatninu var sléttur
og flugháll, og þótti skautamönnum skemmtun hin bezta að
renna þar á skautum í góðviðrinu.
í snjónum brakaði og marraði undan sleðunum, sem runnu
niður hólinn. Hávaðinn var svo mikill, að hann heyrðist mitt
inn í kaupstaðinn, því þann daginu voru að minnsta kosti 20
sleðar á ferðinni. Magnús bafð hæst af öllum drengjunum, enda
var sleðinn hans á undan öllum hinna, en Bjarni lagsbróðir
hans fór seinastur eins og vant var; hann fór sér aldrei óðslega
að neinu.
þeir drengir voru annars ólíkir að öllu leyti. Magnús var
það sem kallað er fríður piltur, en Bjarni öllu fremur hið
gagnstæða; hann var stóreygður, en úr augum hans skein ein-
hver ljómi, og þau voru eiginlega eina fegurðin hans. Magnús
var kvikur og snar, en Bjarni liægfara. Magnús var málgeflnn
og fjörugur í tali, en Bjarni var einn af þeim, sem „hugsa meir
en þeir segja.“
(35)