Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Årgang

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1880, Side 44

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1880, Side 44
í holdgefandi efni og andardráttarefni; en nú hafa fæstir þá skiptingu. Af hinum líflausu (óorganisku) fæðsluefnum er ratnið hið nauðsynlegasta, og auk þess hafa yms fleiri þýðingu fyrir líka- ' mann t. d. fosforsúrt og kolasúrt kalk fyrir heinin, járn fyrir hlóðið, flúorkalk fyrir tennurnar, og auk þess matarsalt (klórna- tríum), kali, natron, magnesía og brennisteinn. 1 vanalegum matyælum eru flest af þeim efnum, sem líkam- inn þarf yið; en þó eru þau blönduð saman eptir ýmislegum hlutföllum. Vanalega er í fæðu af plöntu- og dýraríkinu mest 4 af holdgjafalausum efnum, að undanteknum eggjum, þar er meira af holdgjafanum; hvað öðrum matvælum viðvíkur, þá er einna mest af holdgjafa í kjöti og baunum. Samsetningin af öllum efnum er jöfnust í mjólk og korntegundum. Yms mat- væli eru mjög mismunandi að því, hvað mikið er í þeim af óorganiskum efnum, sem með þarf til lífsins; í kjöti er mest af fosfor og kalí, í mjólk klór og fosforsúrt kaík; miklu minna er af slíkum efnum í korntegundum og kartöflum; í kálmeti er lítið af beinlínis nærandi efnum, en mikið af ymsum salttegund- um, og því er það hentugt til viðmetis við öðru, sem minna hefur af slíku. Ur drykkjarvatni getur líkaminn og fengið þau „óorganisk" efni, sem hann þarf; í uppsprettuvatni er meira af þeim en í ám og fljótum. kí þessu sést, að eigi er hollt og þarflegt fyrir líkamann að fá alltaf hina sömu fæðu, því þá fær hann ofmikið af sumu, en oflítið af öðru, og að það er hentugast og bezt, að blanda 1 efnunum sem haganlegast saman í réttum hlutföllum. Fyrir iöngu hafa menn af óskiljanlegri náttúruhvöt, sein smekkur, hungur og þorsti hafa skapað, löngu áður en eínafræði og líffræði þekktist, lært að hagnýta sér matvælin sem bezt og gjöra þau sem hæfilegust fyrir líkamann. þegar matvælin eru steikt eða soðin, verða þau betri til meltingar; við hitann bráðna t. d. fituefnin í keti og vöðvataugarnar verða lausari í sér; vér borðum salt með kjötmeti, af því oflítið er af því í sjálfu ketinu; þau næringarefni, sem dragast út við hitann, verða eptir í soðinu eða súpunni, svo allt hagnýtist sem bezt; í korn- tegundum og jurtafæðu mýkjum vér með hitanum hvolfavefína og fjarlægjum það sem er íllmeltandi; við brauði etum vér smjör, af því oflítið er af fituefnum í því 0. s. frv. Smekkurinn er- optast ágætur vörður til að gæta þess, að menn neyti að eins þeirra hluta, sem þarfir eru. Auk hinna eiginlegu matvæla eða nærandi efna neytum vér og margra hluta, sem eigi eru * beinlínis til fæðu, en þó geta gert ymsar góðar verkanir í lík- amanum, þegar þeirra er neytt í hófi, t. d. kaffl, te og vín, sem örva blóðrásina og hafa áhrif á heilann og taugakerfið. A leið sinni gegnum líkamann verða matvælin fyrir mörgum breytingum, uns þau hafa komizt í það form, sem þarflegt er. Aðalvegir meltingarinnar eru alkunnir, fæðan er tuggin, og hreyfð með tungunni, og á meðan verka munnvatnskyrtlarnir á hana til þess að uppleysa hana og breyta henni; í eiuum af (42)

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.