Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1885, Qupperneq 63
27. marz. Balslev, biskup í Ribe, heldur 50 ára minningarhátíð
klerkskapar síns; honum flutt vinar- og virðingarkveðja frá
konungi, og hann gjörður að heiðursdoktor af háskólanum í Kmh.
18. apr. Ríkisþingi Dana slitið.
24. Oðalsþingið norska samþykkir að höfða mál á móti öllum (11)
stjórnarherrum Norðmanna fyrir ýmisleg brot gegn stjórnar-
skrá landsins.
18. rniií. Hafin málssókn gegn stjórnarherrum Norðmanna.
20. Fjölmennur fundur með vinstri mönnum Dana í Herthadal á
Sjálandi, (10—14 þús. manna); samþykkt áskorun til konungs
um ráðherraskipti.
23. Fjölmennur siglingalagafundur í Gautaborg fyrir öll Norður-
lönd; stendur til 26. s. m.
23.júní þungi Norðmanna slitið.
21. ág. Fornfræðingafundur í Kmhöfn með þeim, er stunda mál,
sögu og fornmenjar frumbyggja Vesturheims; stendur til25. s.m.
8. aept. Haldin í Kmhöfn 100 ára fæðingarliátíð þjóðskörungsins
N. F. S. Grundtvigs; stendur í 3 daga.
10. Fundur í Jyderup á Jótlandi með hægri og vinstri mönnum
Dana, hverjum út af fyrir sig; lendir í handalögmáli, rysking-
um og meiðslum milli nokkurra vinstri manna og lögregluliðs-
ins, sem stóð hægra megin.
1. okt. Hefst ríkisþing Dana. ForsetiBerg, foringi vinstri manna.
8. Kemur út konungsbrjef um að stofna skuli kirkjuráð í Dan-
mörku, eins konar undirráðaneyti fyrir kirkju- og kennslumála-
ráðherrann; skulu í því sitja 7 biskupar, einn háskólakennari
úr guðfræðisdeild, og annar úr lögfræðisdeild háskólans.
9. des. Hovgaard lautinant kemur til Kinhafnar á skipinu Dijmphna
úr norðurleit eptir 17 mán. fjarveru. Hafði orðið tepptur af
ís í norðurhöfum og komst eigi alla leið, þá erhanní ujjphafi
ætlaði sjer.
Onnur No'ðurálfuríki.
13. jan. 300 manna brenna inni í leikhúsi í Berditschoff á Rússlandi.
20. marz. Kemur eldur upp í Etnu, á Sikiley; 20 gígir opnir,
landskjálftar miklir.
28.400 ára afmælisminning Raphaels, málarans mikla (f. 28 marz
1483) í Rómaborg með mikilli hátíðadýrð; brjóstlíkneskja hans
afhjúpuð á leiði hans, í Panþeon.
29. Mailath, þingforseti Ungverja og formaður í hæstaijetti, finnst
myrtur í rekkju sinni, kyrktur, bundinn á höndum og fótum.
27. maí. Alexander III. Rússakeisari krýndur í Moskau með mik-
illi viðhöfn.
28. jiili. Voðalegur jarðskjálfti a eynni Ischíu við ltalíu; 3—5þús.
manna farast, 2500 eða fleiri lemstraðir.
30. Barea, sendiherra Spánverja í Bandaríkjunum, skýtur sig til
dauða í New-York.
8. ág. Hefst sýning' á alls konar rafurmagnsvjelum i Vínarborg.
4. tept Kviknar í timburgeymslubúðum í Vínarborg; Ijöldi húsa
brennur, skaðinn metinn 2l/a—3 milj. gyllina.
26.5000 prestar á Ítalíu færa Leó páfa lotningarkveðjur.