Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1907, Blaðsíða 57
sem hann er öllum högum hennar í stóru og smáu,
°g svo mikinn áhuga sem hann hefir haft á öllum
velferðarmálum hennar, er ekki að furða þótt Danir
hugsi gott eitt til framtíðarinnar undir stjórn hans.
Þótt þjóðin í heild sinni þekki hann ekki, — sem ekki
er heldur við að búast, — eins vel og hann þekkir
Þjóðina, erþaðþóá hvers manns vitorði, að hann er
danskur i hug og lijarta með lifandi kærleika til
dansks þjóðernis og dýpri skilningi á því, en ef til
Vl!1 nokkur af fyrirrennurum hans.
Einnig vér, þegnar hans, sem þetta land byggjum
°g fæstir höfum haftnokkuð af lionum að segja, höf-
uni ekki heldur ástæðu til annars en að hugsa hið
Þezta til framtiðarinnar undir stjórn vors nýja kon-
ungs. Oss mun óhætt að treysta því, að meira eða
U'inna af því föðurþeli, sem faðir hans bar til lands
v°rs og þjóðar, hafi gengið í arf til hans. Honum
niuni ekki síður hughaldið að líkjast föðurnum í því
eu öðru, að reynast oss fáum, fátækum og smáum,
göfugur hollvinur, mildur höfðingi og umhyggjusam-
nr faðir.
Jón Helgason.
Árbék fslancls 1905.
a. Ýmsir atburðir.
Janúar. 1 þ. m. byrjaði nýtt blað í Reykjavík »Unga
Island«, barnablað. Ritstjóri: cand. phil. Lárus
Sigurjónsson.
7. Hið mesta mannskaðaveður á Vestfjörðum. Fór-
ust þar 3 skip, 1. af ísafirði með 6 mönnum, ann-
að úr Rolungarvík með 6 mönnum og þriðja með
3 mönnum, meðal þeirra var Ásgeir bóndi Einars-
son á Hvítanesi 38 ára. Skemdir urðu á skipum
(45)