Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2004, Síða 3
DV Fyrst og fremst
MÁNUDAGUR 27. SEPTEMBER 2004 3
Kennarar lá ekkl friQ fyrir fnreldrum
Guðrún kennari Trúnaðarmaður kenn
ara í Njarðvíkurskóla segist vera tilbúin í
langt verkfall tilþess að fá kjörsín bætt.
„Það er ekki gott að vera í verkfall," segir Guðrún Guðmunds-
dóttir kennari í Njarðvíkurskóla. Hún er verulega ósátt við kjör
kennara og er tilbúin til að vera í löngu verkfalli þó að tekjumar úr
sterkum verkfailssjóði séu talsvert lægri en lélegu kennara -launin.
Guðrún segir muninn vera í kringum 5.000 krónur á dag í hennar
tilfelli en hún er með um 207.000 krónur í grunnlaun fyrir fulia
kennslu. „Með því að vinna yfir-
Skyndimyndin
vinnu þá fer þetta upp í svona
250.000 sem ég fæ á mánuði í
heildarlaun," segir Guðrún sem á tvo stráka og segist þurfa að vera
með 350.000 krónur í laun til þess að ná endum saman og geta lif-
að þokkalegu lífi. Hún er sátt ef hún fær hækkun upp í 250.000
krónur í grunnlaun. „Ég vinn frá 8 á morgnana til 7 á kvöldin, alla
daga. Mín vinna er frá átta til fjögur, svo bætist aukavinnan við,"
segir Guðrún og bendir á að ræstingarfólk skólanna getir borið
vitni um langan vinnudag kennara. Guðrúnu finnst starfið
skemmtileg, segist ekki vinna það fyrir launin. Henni finnst ekki
ólíklegt að hún leiti fyrir sér á öðrum vettvangi verði kjörin ekki
bætt. Hún telur menntun kennara nýtast víða í atvinnulífinu. „Það
eru aldrei leiðinlegir dagar, sumir em erfiðir en aldrei leiðinlegir,"
segir Guðrún sem segir áreitið ekki bundið við vinnutíman, for-
eldrar hringi oftar en ekki heim til kennara til þess að ræða stöðu
bama sinna. „Það kom kona til mín á laugardegi og bankaði upp á
hjá mér til þess að ræða vandræði sem dóttir hennar ætti við að
stríða í náminu. Fólk talar við okkur á öllum tímum sólarhringsins.
Ég veit ekki hvað hún hefði sagt ef hún væri til dæmis að vinna í
búð og ég myndi banka upp á hjá henni utan verslunartíma og
segja að mig vantaði þetta eða hitt. Henni fannst bara eðlilegt að
banka upp á hjá mér á laugardegi," segir Guðrún sem finnst for-
eldrar geti borið virðingu fyrir frídögum kennara og er tilbúin í
langt verkfall. „Ég vil ekki verkfall, en verð í verkfalli þangað til ég
fæ laun sem í sætti mig við.” freyr@dv.is
Spurning dagsins
Hvaða dýr vildirðu vera?
Vildi vera fjallarefur
„Ætli þaö væri ekki skemmtilegast að
vera fjallarefur. Það er frelsi hans og bar-
áttan við veiðimanninn sem heillar mig.
Við stjórnmálamenn eru vanir áhættu.
Það er mikil spenna í lífí fjallarefsins. “
Guðni Ágústsson
landbúnaðaráðherra
„Það er engin
spurning. Ég
vildi vera stór-
urriði í Þing-
vallavatni. Það
ereinn afhá-
punktum sköp-
unarverksins hér undir norður-
hjaranum. Hann er fískurinn
sem mig dreymir um á nótt-
unni.“
Össur Skarphéðinsson, for-
maður Samfylkingarinnar
„Ég mundi
auðvitað vilja
vera Ijónynja.
Ljónynjan er
svo tígurleg og
ævintýraleg,
fögur og
hættuleg. Ég sé
mig svoldið þar."
Edda Björgvinsdóttir
leikkona
„Ég vildi vera
svartur
pardus. Hann
er fallegur og
tignarlegur. Ég
gæti séð mig
fyrirmérlíða
um frumskóginn og ógna hin-
um dýrunum."
Björn Leifsson, eigandi
World Class
„Ég mundi vilja
vera
marglytta. Ég
held að hún lifí
mjög áhyggju-
lausu lífí."
Steinunn
Ólína Þorsteinsdóttir
leikkona
Flestir hafa velt því fyrir sér hvernig væri að vera annað
dýr en maður.
Júlía hét Karlotta
en Ófelía Margrét
Skammt frá staðnum Stratford við
Avon í Warvíkurskíri á Englandi hafa
fomleifafræðingar unnið við rann-
sóknir, m.a. á Cloptonsetrinu. Þar hafa
þeir rannsakað brunninn sem sá
hefðarfólkinu á staðnum fyrir vatni fyrr
á öldum. í ljós hefur koimið að í War-
vflarrskíri er alkunna að Ófeh'a Pólom'-
usardóttir í Hamlet bjó á Cloptonsetr-
inu, og þeir sem kunna sinn Shakespe-
are muna að sjálfsögðu hvernig hún fór
út úr sambandi sínu við Hamlet Dana-
prins. Ærðist og drekktri sér.
Vilhjálmur Shakespeare skrifaði
Sögurnar í sögunum
leikrit sitt um Hamlet í lok 16. aldar,
m.a. upp úr Amlóðasögu. En um þær
mundir heyrði hann aðra sögu; söguna
af vesalings Margréti Clopton. Hún var
ein þeirra kvenna í mannkynssögunni
sem lagði ást á þann sem enga kunrú á
móti. Elskhuginn yfirgaf hana og harmi
slegin henti hún sér í brunninn við
Cloptonsetrið og drukknaði. En, bæta
íbúar Warvíkurskíris við, Shakespeare
smíðaði líka Júh'u Kapúlett úr frænku
Margrétar, Karlottu Qopton.
Sumarið 1564 fór mannskæður far-
aldur eins og eldur í sinu um Warvíkur-
skírir. Hin unga Karlotta Clopton tók
sóttina og þar kom að menn töldu hana
andaða. En svo var hreint ekki, hún var
því kviksett og vita alllir í Warvflonskíri
að úr henni og örlögum hennar smíð-
aði Shakespeare Júh'u Kapúlett, lét
hana sofna í grafhýsinu svo Rómeó
Montag héldi hana látna, dræpi sig á
eitri, hún vaknaði og sæi hann látinn,
legði sig rýtingi og hm'gj örend yfir
lík hans. Júh'a hét sem sagt Karlotta
og Ófelía Margrét, rétt eins og Ólaf-
ur Kárason hét Magnús, Snæfríður ís-
landssól var Þórdís og Halldór Laxness
Einar Jóhann Grímsson, a.m.k. á ein-
um stað.
Myndlistin er
þögul Ijóðlist
og ljóðlistin
er myndlist
gædd máli.
Símonídes skáíd
556-46B árum fyrir
okkar tímatal.
Þorsteinn J. Vilhjálmsson sjónvarps-
stjarna og Geir Viðar Vilhjálmsson sálfræð-
ingur eru hálfbræður, samfeðra. Faðir
þeirra var Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson
heildsali fæddur i Aðalvík I Norður-lsafjaðr-
arsýslu. Þorsteinn J. hefur unnið við fjöl-
miðla og ritstörfárum saman. Hálfbróðir
hans, Geir Viðar, var áberandi í reykvísku
bæjarlífi fyrir allmörgum árum.
Frábærverðtilboðá
heilsársdekkjum/vetrardekkjum.
155/80R13 frá kr. 4.335 §£$6
185/65 R14 fráfcr. 5.300 fi&O
195/65R15 frá kr. 5.900 §£$0
195/70R15 8 pr. sendib. frá kr. 8.415 ’Úff Sækjum og sendum
bílinn þinn!
EUhOCAhD
VfSA
m
Léttgreiðslur
[bÍL'AÞ.VOTiT.UÁ
JUIUUM/Um.
'BÍLKq\
bilkoliSj
BetrS verð!
Betri verð!
Smiðjuvegi 34 | Rauð gata | bilko.is | Sími 557-9110