Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1937, Page 35
bent sé á þau höfuðeinkenni, er hann hefir til brunns
að bera í rikum mæli, sem er krafturinn, þekkingin
og rökvísin. Pað vantar enn eitt einkenni, samúð
hans með því, sem er gott og fagurt. Þeir, sem hlust-
að liafa á minningarræður hans j'fir Jeþpe Aakjær
og Ninu Bang, hafa þar orðið varir við innileik hans
og ástúð, er gera manninn Stauning ógleymanlegan
öllum þeim, er haft hafa af honum náin kynni.«
Þegar Stauning lét fyrst til sín taka dönsk stjórn-
mál, var jafnaðarmannaflokkurinn frekar fámennur
og lítils meg'nugur. En nú er hann langfjölmennasti
stjórnmálaflokkurinn í Danmörku, svo að hartnær
45% af kjósendum landsins fylgja honum við kosn-
ingar. Og á seinustu árum hefir Stauning orðið eins-
konar tákn hinnar miklu og voldugu alþýðuhreyfingar
i Danmörku. Þannig voru víg'orð jafnaðarmanna við
síðustu kosningar: »Stauning eða glundroði.« Og
dönsku kjósendurnir völdu Stauning — fyrst og
fremst hann, sem tákn þeirrar stjórnmálastefnu, er
kæmi skipulagi og réttlátri stjórn á þjóðarbúskapinn.
En þetta á rót sína að reltja til þess, að Stauning er
í orðsins beztu og fullkomnustu merkingu foringi.
Ekki einvaldsherra, er kúgar með ofbeldi og ofstopa
aðra menn tll hlýðni við sig, heldur berst hann í
fylkingarbrjósti fyrir þeirri voldugu sveit, er einum
rómi hefir valið hann til forystu. Og þessum línum
mínum vil ég lúka með lýsingu Alsing Andersen land-
varnarmálaráðherra á foringjanum Stauning, en sú
lýsing er þannig:
»Það er ekki nóg, að vinna sigur. Það er nauðsyn-
legt að vita, til hvers á að nota sigurinn. Stauning
veit hvað hann vill og hvernig hann á að framkvæma
vilja sinn. Honum er ekki einungis sýnt um að búa
til kosningaávarp á flokksþingi. Hann getur líka gert
ávarpið að stefnuskrá fyrir ríkisstjórn. Hann er ekki
einungis hugkvæmur. Hann hefir einnig hæfileika til
þess að byggja upp og setja í form. Hann getur allt-
(31)