Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1937, Page 90
Mannfjöldi í kauptúnum.
Frh. frá bls. 81 1935 1934 1930 1920 1910
Sandur 516 564 551 591 412
Ólafsvík 452 447 438 442 525
Stykkishólmur 584 579 556 680 591
Patreksfjörður 628 658 606 436 475
Pingeyri í Dýrafírði.. 420 370 358 366 337
Flateyri í Önundarf... 461 463 329 302 218
Suðurevri í Súgandaf. 363 376 337 317 255
Bolungarvík 650 649 689 775 815
Hnífsdalur 352 350 384 434 -
Blönduós 355 338 328 365 273
Sauðárkrókur 899 869 780 510 473
Ólafsfjörður 711 718 543 329 192
Hrise>r 346 366 318 193 -
Húsavík 945 938 874 628 599
Eskifjörður 742 746 759 616 425
Búðareyri í Reyðarf. 321 311 311 217 -
Búðir í Fáskrúðsf. .. 631 602 637 461 393
Stokkseyri 489 487 519 732 680
Eyrarbakki 559 548 590 837 737
Um almanakið.
Eftir Olaf Danielsson og Porkel Porkelsson.
Það hefir þótt hl>ða að skýra með nokkrum orð-
um ýmislegt það í almanakinu, sem búast má við,
að almenningur skilji ekki eða geti ekki fært sér í
nyt til hlítar. Er pá rétt að byrja á titilblaðinu, þar
sem minnzt er á hlaupár. Ætla má, að vísu, að
flestum sé kunnugt, hvenær hlaupár eru, en pó skal
hér sett regla um hlaupár í »nýja stíl« (p. e. síðan
1700). Hlaupár er þegar talan 4 gengur upp í ártal-
inu, nema aldamótaár sé (p. e. að ártalið endi á
tveimur núllum). Pá er pví aðeins hlaupár, að 4
gangi upp í aldatölunni. Árið 1900 var ekki hlaupár,
og ekkert ár milli 1896 og 1904. Árið 2000 verður
(86)