Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1941, Qupperneq 24
GANGUR TUNGLS OG SÓLAR A ÍSLANDI.
í þriöja dálki hvers mánaðar, sem hefir yfirskriftina »T. í h.« (tungl í
hásuöri), og í töblunni á blaðsíðu (17) er sýnt, hvað klukkan er eftir íslenzk-
um miðtíma, þegar tunglið og sólin eru í hásuðri í Reykjavík. En vilji
menn vita, hvað klukkán sé eftir íslenzkum miðtíma, þegar tunglið eða sólin
eru í hásuðri á öðrum stöðum á íslandi, þá verða menn að gera svo nefnda
»lengdarleiðréttingu« á Reykjavíkurtölunni. Verður hún — 4 mínútur fyrir
hvert lengdarstig, sem staðurinn liggur austar en Reykjavík, og -f- 4 mín,
fyrir hvert lengdarstig, sem staðurinn liggur vestar en Reykjavík. T. d. er
Raufarhöfn um sex lengdarstigum austar en Reykjavík; lengdarleiðréttingin
þar er þá — 24 mín., og 5. júlí er sól í hásuðri frá Raufarhöfn þess vegna
kl. 12 08. (12 32 — 0 24 = 12 08). Flatey á Breiðafirði liggur einu lengdarstigi
vestar en Reykjavík og lengdarleiðréttingin er þar 4 mín. 1. febrúar er því
tungl í hásuðri frá Flatey kl. 4 34 e. m. (4 30 + 0 04 = 4 34).
Sólargangurinn í Reykjavík er tilgreindur í almanakinu hvern miðvikudag.
Sólargangurinn er talinn frá sólaruppkomu (su.), þá er miðja sólar sést koma
upp fyrir láréttan sjóndeildarhring, og til sólarlags (sl.) þá er sólmiðjan sést
fara niður fyrir sjóndeildarhringinn. Til þess að finna sólarganginn annar-
staðar á landinu, þarf að gera lengdarleiðréttingu á Reykjavíkurtölunni á sama
hátt sem við sól eða tungl í hásuðri, en auk þess breiddarleiðréttingu.
Breiddarleiðréttingin fer eigi að eins eftir breiddarstigi staðarins, heldur
er hún einnig komin undir sólarganginum í Reykjavík. í eftirfarandi töblu er
sýnd breiddarleiðrétting fyrir hvert hálft stig, norðar og sunnar en Reykjavík,
þegar sólargangurinn í Rvík stendur á heilli stundu. Leiðréttingin er pósitíf
(-b), þegar sólargangur lengist vegna hennar, en negatíf (—), þegar sólar-
gangurinn styttist. Breiddarleiðrétting töblunnar er því lögð við tíma sólar-
lagsins í Rvík, en dregin frá sólaruppkomutímanum. Sé breiddarleiðréttingin
negatíf ( —), verður að taka forteiknið til greina.
Dæmi: Sólargangur 23. apríl á Raufarhöfn, sem er 6 stigum austar og 2Va
stigi norðar en Rvík.
Þenna dag er sólargangur í Reykjavík 15 st. 50 mín. Breiddarleiðrétting
töblunnar fyrir 2V2 stig norður og sólargang 16 st. er + 16 mín. en fyrir 15
st. 4- 12 mín. Fyrir 15 st. 50 mín. verður hún því -j- 15 mín. Lengdarleiðrétt-
ingin er — 24 mín.
í Reykjavík..................su. 4 32 sl. 8 22
Breiddarleiðrétting . . — 15 +15
Lengdarleiðrétting . . — 24 — 24
Á Raufarhöfn.................su. 3 53 sl. 8 13
Atinað dæmi: Sólargangur 5. nóv. í Flatey á Breiðafirði, sem er 1 stig
vestar og 1 V* stigi norðar en Rvík. Sólargangur í Reykjavík er 7 st. 30 mín
í Reykjavík..................su. 8 26 sl. 3 56
Breiddarleiðrétting . . + 9 — 9
Lengdarleiðrétting . .______+ 4 + 4
í Flatey.....................su. 8 39 sl. 3 51
(22)