Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1941, Page 26
Útdráttur
úr lögum nr. 25, 27. júní 1921, um einkaleyfi handa háskóla íslands
til útgáfu almanaks.
1. gr.
Háskóli íslands skal hafa einkarétt til þess aö gefa út og selja eða af-
henda með öðrum hætti almanök og dagatöl á íslandi.
5. gr.
Það er brot á einkarétti háskólans samkvæmt 1. gr., ef maður:
1. Flytur inn í landið til sölu eða afhendingar með öðrum hætti önnur almanök
eða dagatöl en þau, er í 1. gr. segir.
2. Selur hér í landi eða afhendir með öðru móti önnur almanök eða dagatöl
en þau, sem einkaréttur háskólans nær til.
3. Gefur út hér á landi á prenti eða með öðrum hætti almanök eða dagatöl
eða kafla úr þeim.
4. Prentar upp eða fjölritar almanðk háskólans eða dagatöl eða kafla úr þeim
til þess að selja eða láta af hendi með öðrum hætti.
7. gr.
Fyrir brot samkvæmt 5. gr. skal refsa með sektum frá 100—2000 kr., ef
það er framið af ásetningi eða gáleysi, enda liggi ekki þyngri refsing við að
öðrum lögum.
Sektir má taka fjárnámi.
Leggja skal þegar hald á rit þau, sem ólöglega hafa verið flutt til landsins
gefin hér út eða seld eða af hendi látin samkvæmt 5. gr., og skal síðan ger
þau upptæk með dómi.
Skaðabætur skal hver sá greiða, sem sekur verður eftir 5. gr. Miða sk*
bætur, ef því verður við komið, við samanlagt söluverð ólöglega seldra eð-
afhentra eintaka að frádregnum hæfilegum sölulaunum. Ella skal ákveða bætu
eftir atvikum.
Hið íslenzka þjóðvinafélag hefir með samningi keypt einkaleyfi þetta í ái
(1941), og nær það til allra almanaka í bókarformi. Verð hvers almanaks e
samkvæmt samningnum sett á 35 aura. Þeir, sem kaupa 50 eintök eða fleiri ■
senn, fá í afslátt 20 af hundraði.
Árið 1942 ber páskana upp á 5. apríl.