Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1945, Qupperneq 2
Forstöðumenn þjóðvinafélagsins
1944 og 1945.
Forseti: Bogi Ólafsson, yfirkennari.
Varaforseti: Barði Guðmundsson, þjóðskjalavörður.
MeSstjórnendur: Guðni Jónsson mag. art.
Halldór Kiljan Laxness, rithöfundur.
Þorkell Jóhannesson dr. phil., prófessor.
Bækur þjóðvinafélagsins.
Ódýrustu bækurnar, sem nú fást.
Þjóðvinafélagið hefur enn til sölu allmikið af bókum,
sem það hefur gefið út, síðan það hóf starf sitt. í Alman-
akinu 1941 var birt skrá um bækur þessar, og skal hér
vísað til hennar, því að gera má ráð fyrir, að hún sé í
höndum flestra, sem þessar línur lesa. Á siðustu 3 árum
hefur gengið allmjög á hin gömlu upplög, en þó má enn
gera góð kaup.
Iíaupið Almanakið og Andvara.
Andvari og Almanak eru einhver merkustu ritsöfn, sem
út hafa verið gefin hér á landi. Andvari er nú 69 ára, en
Almanakið 71 árs, og allar vonir eru til þess, að þeim verði
enn langs aldurs auðið.
Það skal brýnt fyrir öllum kaupendum Almanalcsins og
Andvara, at nota tækifærið nú til þess að eignast það, sem
unnt er, af eldri árgöngum, meðan hægt er að fá allstórar
samstæðar heildir. Er bæði, að lestrargildi þessara bóka
er mikið fyrir alla fróðleiksgjarna og þjóðrækna menn, og
svo er þess líka að gæta, að fyrir þá menn, sem um hríð
hafa keypt ritin, eða nýlega hafa byrjað að halda þeim
saman, verða söfn þeirra i framtiðinni þvi dýrmætari, sem
þeim fylgir meira af hinum eldri árgöngum, þótt þar séu
skörð í, og það því fremur, sem upplag hinna fyrri ár-
ganga var jafnan heldur lítið, svo að aðeins tiltölulega
(Framh. á 3. kápusiðu.)