Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1945, Page 44
rikisins. 23. nóv. var Ásgeiri prófasti Ásgeirssyni,
Hvammi í Dölum, veitt lausn frá prestsembætti.
Fulltrúar erlendra ríkja. 21. jan. var H. G. Shepherd
skipaður sendiherra Stóra-Bretlands á íslandi. 22.
febr. var Adolf Lagerfelt fríherra skipaður 1. sendi-
ráðsritari við sendiráð Svia í Reykjavík. 25. febr. var
K. H. Christensen viðurkenndur vararæðismaður
Bandaríkjanna i Reykjavik. 22. marz var G. M. Tingle
viðurkenndur vararæðismaður Breta í Rvik. 15. sept.
var H. E. Montamat viðurkenndur ræðismaður
Bandaríkjanna i Rvík.
Heilbrigði. Mislingar gengu viða um land fyrra
hluta ársins, en voru freinur vægir. Skarlatssótt stakk
sér viða niður. Seint í nóvember gekk inflúenzufar-
aldur í Rvík og viðar. Var um tíma hætt kennslu i
barnaskóluin í Rvík, og samgöngubönn voru sett i
nokkrum héruðum. Barnaveiki kom upp i Vestmanna-
eyjum i desember.
Hernám. Nokkuð dró úr vinnu íslendinga hjá hinu
erlenda setuliði. Noklirir árekstrar urðu milli íslend-
inga og setuliðsmanna, en þó nokkru færri en árið
áður. Þýzkar flugvélar sáust nokkrum sinnum yfir ís-
landi. 17. júní gerði þýzk flugvél árás á strandferða-
skipið „Súðina“ við Norðausturland. Fórust þar tveir
nf áhöfn skipsins, en tveir aðrir særðust alvarlega.
Iðnaður. Iðnaðarframkvæmdir voru miklar á árinu
og afkoma iðnaðarmanna yfirleitt góð. Skortur á efni
bagaði sumar iðngreinar. Hið háa ullarverð mun hafa
háð ullariðnaði og fatagerð nokkuð. Mikið var unnið
að húsagerð í Rvik og víðar, þótt nokkur skortur væri
á trjáviði og' fleiri húsagerðarefnum. Hitaveita Rvíkur
tók til starfa í árslok. Vélsmiðjurnar i Rvik hafa flest-
ar endurbætt húsakynni sín og vélar. 15 skip voru
smíðuð á árinu auk smábáta. Bókagerð var afar mikil.
Prentsmiðjurnar hafa færzt i aukana. Settar voru á
stofn nýjar pappírs- og pappagerðir, bókbandsstofur
og prentmyndagerðir. Reist voru nokkur ný hrað-
(42)