Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1945, Page 45
frystihús, bifreiðaverkstæði o. fl. iðnfyrirtæki. Á Ak-
ureyri var hafin vinnsla á kolsýru og kalki úr skelja-
sandi.
íþróttir. Hlutafélag innan vébanda í. S. í. tók að sér
útgáfu „íþróttablaðsins“ (ritstjóri Þorsteinn Jósefs-
son). Nokkrir áhugamenn i knattspyrnufél. Val gáfu
út „Knattspyrnubókina“. Áhugamenn i frjálsíþróttum
gáfu út Árbók frjálsíþróttamanna. Gefin var út bókin
„Vaxtarrækt" eftir Jón Þorsteinsson. „Einingin", blað
um bindindi, siðfágun, trúmál og íþróttir, hóf göngu
sína (ritstj. Pétur Sigurðsson erindreki). Að útgáfu
þess standa bindindisnefnd í. S. í„ stjórn U. M. F. í.
og stjóm bindindisfélaga í skólum. „Skinfaxi“, 31.
árg. var gefinn út i þremur heftum.
Skíðafélag ísafjarðar stofnaði skiðaskóla (skólastj.
Guðm. Hallgrímsson). Á vegum U. M. F. í. fóru 11
íþróttakennarar um landið. Kenndu þeir íþróttir víða
um land og héldu 54 námskeið. Á vegum í. S. í. fóru
7 iþróttakennarar um landið og kenndu á 33 nám-
skeiðum. Tveir þeirra voru sérkennarar í glímu og
knattspyrnu.
Ársjiing í. S. í. var lialdið í Rvik. Sóttu það fuli-
trúar frá 28 félögum. Ný lög voru samþykkt fyrir sam-
bandið. Ben G. Waage var endurkosinn forseti sam-
bandsins. 14. ársþing U. M. F. í. var haldið á Hvann-
eyri. Voru þar fulltrúar frá mörgum héraðasambönd-
um og félögum. Séra Eiríkur J. Eiríksson var endur-
kosinn sambandsstjóri.
Helztu íþróttamót ársins voru þessi: Fjórða lands-
mót U. M. F. í. fór fram á Hvanneyri 26.—27. júní.
Sóttu það 150 þátttakendur frá 11 héraðasamböndum
(20 sýslum og kaupstöðum). Þrir flokkar sýndu leik-
fimi, keppt var i glímu og tólf greinum frjálsra íþrótta.
Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands vann móí-
ið. Glímuna vann Davíð Guðmundsson, en flest og
bezt afrek vann Guttormur Þormar. Skíðalandsmót í.
S. í. fór fram í Hveradölum. Voru þar 86 lceppendur
(43)