Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Volume

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1945, Page 68

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1945, Page 68
vega þeim bætt kjör, en ekkert gekk, unz stjórnin lagði loks fyrir alþingi 1873 frv., er fól í sér veru- ieg'ar kjarabætur þeim til handa, en þingið féllst ekki á það. Heita mátti, að engar sóttvarnir gegn næmum bráðum sóttum væru hér 1874, þegar frá er skilið, að kúabólusetning hafði verið hafin hér 1802 og lög- boðin frá því um 1810, með þeim árangri, þrátt fyrir misjafna rækslu, að bólusóttin var eina sóttin þeirra, er hingað bárust á þessu tímabili, er tókst að stöðva. Gegn hinum var landið varnarlaust. Að visu var talið, að fyrirmæli danskra laga um sóttvarnir væru hér í gildi, en engin leið var að framfylgja þeim hér að nokkru gagni. Þar var læknafæðin til fyrirstöðu og yfirleitt vöntun á flestu, sem til þurfti að hafa. Þegar erlendar sóttir, aðrar en bólusóttin, bárust til landsins, fóru þær hindrunarlaust um allt, og sama er að segja um faraldra landlægra sótta. — Af langvinnum sóttum var sullaveikin sú eina, sem mönnum var orðið kunnugt um orsakir til, er hér var komið, og því ekki vonlaust að verjast, enda sett löggjöf í þvi skyni 1869. En að litlu haldi kom það fyrsta sprettinn, bæði vegna almenns hreinlætis- skorts og' þröngra og illra húsakynna og einkanlega vegna megnrar vantrúar fjölda manna á hina nýju kenningu um sullasmitun af hundunum. Mjög grein- ir menn á um, hve margt hafi verið af sullaveiku fólki hér á landi um þessar mundir (um 1870), en þeir, sem skemmst fara, telja, að það hafi ekki verið færra en 1200, en margfalt fleiri smitaðir. Annar langvinnur sjúkdómur, er þá var hér algengur og engar varnir reyndar við af opinberri hálfu né al- mennings var holdsveiki. Engin gögn eru um, hve margt var af holdsveiku fólki hér á landi um 1870; víst má telja, að það hafi ekki verið færra en undir aldamótin, en þá (1896) voru nál. 240 holdsveikir á landinu. Bæði læknar og almenningur töldu, að (66)
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.