Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1945, Page 79
Próf. Guðm. Magnússon, GuSm. Hannesson,
yfirlœknir. prófessor.
III.
Yfirsetukvennalögin voru önnur þau lög varðandi
heilbrigðismál, er sett voru á fyrsta löggjafarþing-
inu. í fyrsta þætti var gerð grein fyrir fjölda yfir-
setukvenna og kjörum um 1874, baráttu Hjaltalíns
fyrir kjarabótum þeim til handa og frumvarpi, er
stjórnin lagði fyrir síðasta ráðgjafarjnngið, en þaö
afbað. Hún lagði sama frumvarp aftur fyrir alþ.
1875; afgreiddi þingið það sem lög, að vísu nokkuð
breytt. í lögum þessum voru yfirsetukonulaun í Rv.
ákveðin 100 kr., i hinum kaupstöðunum 60 kr. og
í sveitum 40 kr. Laun og eftirlaun skyldu greidd úr
bæjar- og sýslusjóðum, en námskostnaður og nauð-
synleg áhöld úr landssjóði. Þótt þessi lög bættu stór-
um launakjör yfirsetukvenna frá því sem áður var,
voru þau samt harla rýr, einkum er frá leið og verð-
gildi peninga fór lækkandi; voru því margoft flutl
á alþ. frumvörp um hækkun Ijósmæðralauna, en ekk-
ert þeirra náði fram að ganga fyrr en 1893, er launin
voru hækkuð um þriðjung í sveitum og um % í
kaupstöðum öðrum en Reykjavík. Aftur voru launin
bækkuð 1912 og 1919, en síðast og mest 1930. Eru
(77) -u