Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1945, Page 91
Vilmundur Jónsson,
landlæknir.
Sigurður Sigurðsson,
berklagfirlæknir.
hverjum manni í landinu. Berklayfirlæknir hefur
þessar rannsóknir á hendi ásamt tveimur sérfróö-
um aðstoðarlæknum og með aðstoð heilsuverndar-
stöðva og héraðslækna. Alllöngu fyrr var hafin
berklaprófun skólabarna, er héraðslæknar gerðu við
skólaeftirlit, í fám héruðum fyrst, en siðan í fleiri
og fleiri, 1940 í meir en helming læknishéraðanna.
Er ástæða til að vona, að er þessi starfsemi öll hefur
bætzt við þá, sem fyrir var, náist æ meiri árangur
af berklavörnunum, og að vísu hafa þegar sézt þess
merki, að þær hafa ekki verið unnar fyrir gýg nó
því mikla fé, sem til þeirra hefur verið kostað, á
glæ kastað. Hafði manndauði úr berklaveiki í hlut-
falli við mannfjölda staðið í stað að kalla i 20 ár,
frá því er nokkurn veginn áreiðanlegar upplýsingar
fengust um hann og til 1932, verið sem næst 2%„ á
ári að meðaltali. En 1933 lækkaði hann niður í 1,5%»
og hefur síðan farið lækkandi, þrátt fyrir litils hátí-
ar áraskipti, og var tæplega 0,9%„ árið 1940. Engar
nýjar lækningaaðferðir gegn berklaveiki hafa verið
teknar upp síðan 1932, og verður því að ætla, að
þverrun berkladauðans stafi af fækkandi sýkingum.
(89)