Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1945, Síða 95
Próf. Jón Hj. SignrÖsson,
yfirlœknir.
Próf. Giiðm. Thoroddsen,
yfirlœknir.
þetta hús yrði til að tefja fyrir því, að viSunandi
spítala yrSi komiS upp. •— Undir aldamótin tók
sjúkrahúsum litið eitt að fjölga ú landinu, og þá var
reist nýtt hús fyrir Akureyrarspítala fyrir forgöngu
GuSm. Hannessonar, þá héraðslæknis á Akureyri,
stærra og fullkomnara miklu en sjúkrahúsið í Rv. Þá
var á ný farið að hreyfa smíS landsspítala i Reykja-
vik, og loks voru á alþ. 1899 samþykkt lög um lands-
spítala, en ekki voru menn stórhugaðri en svo á þeim
árum, að spítalinn átti ekki að rúma nema 24 sjúkl.
og fjárveiting til aS koma honum upp skorin svo
við nögl, að byggingaráðunautur stjórnarinnar taldi
óhugsandi, að koma jafnvel svona litlum spítala upp
fyrir það fé, sem til þess var veitt. Synjaði stjórnin
þvi lögunum staðfestingar og lagði nýtt frumv. um
landsspítala fyrir alþ. 1901, en það var fellt. Haustið
1902 hófu St. Jósefs systur rekstur nýs sjúkrahúss í
Reykjavík, er þær höfðu komið þar upp; var það
miklu stærra og betur búið en gamla sjúkrahúsiS i
Rv., og lagðist það nú niður. Eftir það var hljótt um
landsspítalamálið, þar til 1915, er konur i Rv. hófust
handa um fjársöfnun til landsspítala. Eftir það var
(93)