Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1948, Side 61
son (í. R.). Þrístökk, Stefán Sörensson (H. S.-Þing.).
Fimmtarþraut, Jón Hjartar (K. R.). 4x100 m boS-
hlaup, A-sveit í. R. 4x400 m boðhlaup, sveit í. R. 10000
m hlaup, Þór Þóroddsson (U. M. S. Kjalarness). Tug-
þraut, Gunnar Stefánsson (í. B. Vestm.eyja).
Ársþing í. S. í. var liáð i Reykjavík. Mættu 40 full-
trúar. Sambandsfélög voru 217 og tala félagsmanna 22
þús. Aðalmál þingsins voru: lagabreytingar og skipu-
lagsmál, bindindismál, íþróttamannvirki, iþróttaheimili
í. S. í. og fjármál. Fjárvelta sambandsins nam rúmum
kr. 108 þús. Forseti sambandsins var kosinn Ben. G.
Waage lcaupm. Á timabilinu 1945—1947 hefur í. S. í.
staðfest 04 ný íslenzk met; flest þeirra setti Finnbjörn
Þorvaldsson (í. R.) Sambandsþing U. M. F. í. var háð
að héraðsskólanum að Laugum i S.-Þing. Ungmennafél.
urðu á árinum 40 ára. Fulltrúar voru alls 52 frá 13
héraðssamböndum. Sambandsfélög voru 180 og tala
félagsmanna 10 þús.
Aðalmál þingsins: Minnst 40 ára afmælis ungmenna-
félaganna, iþróttamál, sjálfstæðismálið, bindindismál,
samstarf í. S. í. og U. M. F. í., skógræktarmál, félags-
heimili, lieimsókn til norskra ungmennafélaga og skóla-
mál. Fjárvelta sambandsins nam (1945) kr. 80 þús.
Sambandsstjóri var kosinn séra Eiríkur J. Eiríksson,
skólastjóri. 1 lok þingsins var Björn Jakobsson gerður
heiðursfélagi U. M. F. í.
íþróttanefnd ríkisins úthlutaði kr. 1 000 590 24 til 74
af 120 umsækjendum.
Til sundlaugabygginga runnu kr. 029 325 00, til
iþróttahúsa kr. 125 500 00, til skíðaskóla kr. 11 500 00, til
baðstofubygginga kr. 11 200 00, til íþróttavalla kr.
43 000 00, til starfrækslu íþróttastofnana, íþróttanáms
og áhalda kr. 100 071 24. Á árinu voru teknar í notkun
2 nýjar sundlaugar, ein sundhöll og einn fimeikasalur.
Á árinu skyldi skipa að nýju í íþróttanefnd.
Guðm. Kr. Guðmundsson skrifstofustjóri hafði verið
(59)