Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1957, Page 82
var Jónas IUugason bóndi og fræðimaður í BrattahliS,
A.-Hún., nefndur Jón.]
Menn eru vinsamlega beðnir að senda árbókinni
upplýsingar um mannalát og tilgreina fullt nafn, stétt,
fæðingar- og dánarár og -dag. Utanáskriftin er Árbók
íslands, Sólvallagötu 14, Rvík.
Náttúra landsins. 28. febr. olli ofviðri nokkru tjóni
i Reykjahverfi og Aðaldal. 18. apríl voru stórrigningar
víða um land. Ollu þá skriður tjóni á Siglufirði, og
skriða féll úr Meðalfelli i Kjós á bæinn Hjalla og varð
barni að bana. 26. og 27. apríl ollu vatnavextir og of-
viðri tjóni austanlands, einkum á símalínum. Seint í
maí ollu aurskriður spjöllum á vegum í Norðurárdal
í Skagafirði. 25. júní kom hlaup úr Mýrdalsjökli. Tók
hlaupið brýrnar af Múlakvísl og Skálm. Hólmsá á
Mýrum í Austur-Skaftafellssýslu olli tjóni á engjum
um sumarið. 18. ág. olli rok tjóni á heyjum i Rangár-
vallasýslu. Snemma í sept. kom hlaup i Skaftá. 1. nóv.
olli ofviðri tjóni á sauðfé í Dýrafirði og viðar. 2. nóv.
olli ofsarok tjóni á Siglufirði. Aðfaranótt 12. nóv. olli
stórviðri tjóni á bátum í Neskaupstað. Aðfaranótt 17.
nóv. olli fárviðri tjóni í Svarfaðardal. Á árinu mæld-
ust fleiri jarðskjálftar hér á landi en á nokkru öðru
ári fyrr á öldinni. Jarðskjálftamælingar voru í Rvik
og á Akureyri og síðari hluta ársins einnig i Vik i
Mýrdal. 15. jan. fundust jarðskjálftar víða um Suð-
vesturland, og voru kippirnir snarpastir í Grinda-
vík. 18. janúar fannst snarpur jarðskjálfti á Suður-
landsundirlendi. 27. febr. hófust miklir jarðskjálftar
í Öxarfirði og héldu þeir áfram um þriggja vikna
skeið og fundust um allt Norðausturland. Aðfaranótt
13. marz fannst snarpur jarðskjálftakippur i Laugar-
dal. 14. marz varð jarðskjálftakippa vart á Suðvestur-
landi. 1. april urðu snarpir jarðskjálftar á Suðvestur-
landi, hinir mestu hér á landi siðan 1935. Urðu þá
lítils háttar skemmdir á húsum i Hveragerði og Ölfusi.
(80)