Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1957, Qupperneq 97
Noregs), ísfiskur (til Vestur-Þýzkalands), söltu'ð mat-
arhrogn (til Svíþjóðar), söltuð þunnildi (til ítaliu),
freðsild (mest til Póllands), fryst hrogn (til Bretlands),
sildarlýsi (til Noregs), fryst hvalkjöt (til Bretlands),
köfnunarefnisáburður (til Frakklands), fryst kinda-
kjöt (til Bretlands), söltuð beituhrogn (til Frakk-
lands), hvallýsi (til Sviþjóðar), niðursoðinn fiskur
(til Finnlands), gamlir málmar (til Danmerkur og
Bretlands), garnir (til Bretlands og Finnlands), sölt-
uð skinn og húðir (til Vestur-Þýzkalands) og frystar
rækjur og humar (til Bandarikjanna).
Aldarafmælis frjálsrar verzlunar á íslandi var
minnzt með margvíslegum hátíðahöldum 1. apríl.
Rússnesk-tékknesk vörusýning var haldin í Rvik i
júlí, sömuleiðis kínversk vörusýning. Erlendir sér-
fræðingar héldu um haustið fyrirlestra og námskeið
um heildverzlun, smásöluverzlun og vörugeymslu.
Nokkrar sjálfsafgreiðslubúðir voru opnaðar. Mjólkur-
skömmtun var um skeið um haustið. Annars var aðeins
smjör og smjörlíki skammtað. Vísitala framfærslu-
kostnaðar var 161 stig í ársbyrjun, en 175 stig í árslok.
[Ýmsar af tölunum um búnað, útveg og verzlun eru
bráðabirgðatölur, sem kunna að breytast lítið eitt,
þegar endanlegar skýrslur eru fýrir hendi.]
Vinnumarkaður. Allmargt íslendinga vann á Kefla-
víkurflugvelli og við byggingu radarstöðvanna i Aðal-
vík og á Langanesi. Margir færeyskir sjómenn voru
ráðnir á islenzka togara og vélbáta á vetrarvertíðinni,
og allmargir færeyskir iðnaðarmenn og verkamenn
unnu hér einnig. Nokkrir Danir voru ráðnir til land-
búnaðarstarfa. Nokkrir verkamenn frá Akureyri fóru
til Grænlands um sumarið og unnu að uppskipun i
Meistaravík.
Mikið var um verkföll á árinu. Vinnustöðvun var á
bátaflotanum í Vestmannaeyjum frá ársbyrjun til 17.
febrúar. Verkfall matreiðslumanna og framreiðslu-
manna á kaupskipaflotanum hófst 19. jan., og lauk
(95)