Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1964, Blaðsíða 23
GANGUR TUNGLS OG SÓLAR Á ÍSLANDI
I þriðja dálki hvers mánaðar, sem hefir yfirskriftina „T. í h.“ (tungl
i básuðri), og í töflunni á bls. 15 er sýnt, hvað klukkan er eftir íslenzk-
um miðtíma, þegar tunglið og sólin eru í hásuðri í Reykjavík. En komast
Diá að því, hvað klukkan er eftir íslenzkum miðtíma, þegar tunglið eða
sólin er í hásuðri annars staðar á Islandi, með því að gera svonefnda
»,lengdarleiðréttingu“ á Reykjavíkurtöflunni. Verður hún + 4 mín-
útur fyrir hvert lengdarstig, sem staðurinn liggur vestar en Reykja-
vík, og — 4 mínútur fyrir hvert lengdarstig, sem staðurinn liggur austar
en Reykjavík. T. d. er Raufarhöfn um sex lengdarstigum austar en
Reykjavík; lengdarleiðréttingin þar er þá — 24 mín., og 2. júlí er sól í
fiásuðri frá Raufarhöfn þess vegna kl. 1208 (1232 — 024 = 1208).
Flatey á Breiðafirði liggur einu lengdarstigi vestar en Reykjavík, og
lengdarleiðréttingin er þar + 4 mín. Þann 8. febrúar er því tungl í há-
suðri frá Flatey kl. 8 37 (8 33 + 0 04 = 8 37).
Sólargangurinn í Reykjavík er tilgreindur í almanakinu hvern mið-
vikudag. Sólaruppkoma (su.) telst, þá er sólmiðjan er á uppleið 50
flogamínútum undir láréttum sjóndeildarhring, en vegna ljósbrotsins er
þá efri rönd sólar að verða sýnileg, eða því sem næst. Sólarlag (sl.)
telst á sama hátt, þegar sólmiðjan er á niðurleið 50 bogamínútum fyrir
ueðan láréttan sjóndeildarhring, og hverfur sólin þá sjónum. Til þess
að finna sólarganginn annars staðar á landinu þarf að gera lengdar-
leiðréttingu á Reykjavíkurtölunni á sama hátt sem við sól eða tungl
* hásuðri, en auk þess breiddarleiðréttingu.
Breiddarleiðréttingin fer eigi aðeins eftir breiddarstigi staðarins, held-
Ur er hún einnig komin undir sólarganginum í Reykjavík. I töflu á blað-
síðu 20 er sýnd breiddarleiðrétting fyrir hvert hálft stig, norðar og
8unnar en Reykjavík, þegar sólargangurinn í Reykjavík stendur á heilli
stundu. Leiðréttingin er pósitíf (+), þegar sólargangur lengist vegna
^ennar, en negatíf (—), þegar sólargangurinn styttist. Breiddarleið-
tétting töflunnar er því lögð við tíma sólarlagsins í Reykjavík, en
firegin frá sólaruppkomutímanum. Sé breiddarleiðréttingin negatíf (—),
verður að taka forteiknið til greina.
Dœmi: Sólargangur 15. apríl á Raufarhöfn, sem er 6 stigum austar
°g 2x/2 stigi norðar en Reykjavík.
Þennan dag er sólargangur í Reykjavík 15 st. 05 mín. Breiddar-
leiðrétting töflunnar fyrir 2% stig norður og sólargang 16 st. er + 16
uiín., en fyrir 15 st. sólargang + 12 mín.; hún telst því hér + 12 mín.
Lengdarleiðréttingin er — 24 mín.
í Reykjavík.................. su. 4 56 sl. 20 01
Breiddarleiðrétting ...... — 12 +12
Lengdarleiðrétting........ — 24 — 24
Á Raufarhöfn................. su. 4 20 sl. 19 49
Annað dœmi: Sólargangur 7. október í Flatey á Breiðafirði, sem er
1 8tigi vestar og l1/^ stigi norðar en Reykjavík. Sólargangur í Reykja-
víL er 10 st. 42 mín.
í Reykjavík.................. su. 6 54 sl. 17 36
Breiddarleiðrétting ...... +2 — 2
Lengdarleiðrétting........ +4 +4
Flatey
(21)
su. 7 00 sl. 17 38