Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1964, Blaðsíða 103
við Selvog. Einn maður fórst, en tveir björguðust
eftir hrakninga í brimgarðinum. Aðfaranótt 2. des.
strandaði strandferðaskipið Esja við Dagverðareyri
og skemmdist nokkuð. 6. des. fórst vélbáturinn Bergur
frá Vestmannaeyjum út af Jökli, en áhöfnin, ellefu
manns, bjargaðist.
20. sept. brann flugvél hjá Gjögri, en manntjón
varð ekki
Ýmis frækileg björgunarafrek voru unnin. 17. marz
bjargaði Ásgeir Björnsson á Siglufirði dreng frá
drukknun. 5. júní bjargaði Einar Gústafsson á Siglu-
firði dreng, sem fallið hafði í sjóinn. 5. júni bjarg-
aði Magnús Steinsson á Bolungavik dreng frá drukkn-
un. 6. júní bjargaði Friðgeir Þ. Jóhannesson dreng
frá drukknun í Rvíkurhöfn, en hann hafði tveimur
árum áður bjargað öðrum dreng frá drukknun í höfn-
inni. 30. júli bjargaði Sigurður Ö. Sigurðss., háseti á
vélbátnum Bjarna Ólafssyni, öðrum háseta, er hafði
fallið útbyrðis. í ágúst bjargaði Hansína Melsted, 13
ára telpa í Rvik, dreng frá drukknun. í ágúst björg-
uðu Þorkell Pálss. og Jón Halldórss. með blásturs-
aðferðinni manni, sem fallið hafði út af bryggju í
Rvík. 7. sept. synti Hallgrímur Ottósson, vélstjóri á
vélbátnum Farsæli, frá Ólafsvík í land frá bátnum
við Malarrif og sótti hjálp, er vél bátsins hafði bilað.
8. sept. björguðu Sigurður Björnsson og Birgir Þor-
björnsson í Höfðakaupstað stúlku og tveimur börnuin,
er bifreið hafði runnið fram af bryggju.
Þing Slysavarnafélags íslands var haldið í Rvík í
maí. Hjálparsveit skáta í Hafnarfirði fékk sporhund
frá Bandarikjunum til að leita að týndu fólki.
Stjórnarfar. Ólafur Thors tók við forsætisráðherra-
embættinu að nýju 1. janúar.
Meðal laga, sem samþykkt voru á Alþingi, var ný
skattalöggjöf, lög um atvinnubótasjóð, stofnlánadeild
landbúnaðarins, aflatryggingasjóð sjómanna, lífeyris-
sjóð sjómanna, ibúðabyggingar, verkamannabústaði,
(101)
41