Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1964, Blaðsíða 111
unnið var að stækkun fiskiðjuvera þar. Borað var eftir
heitu vatni i Ólafsfirði. Á Sigluf. var unnið að sjúkra-
húsbyggingu, barnaskólabyggingu, bókhlöðubyggingu
og byggingu mjólkurstöðvar. Byggingu sundhallar
var lokið. Byggð var tilraunaverksmiðja á Siglufirði.
Þar var hafin bygging simstöðvarhúss. Mikið kvað að
hafnarframkvæmdum og gatnagerð á Siglufirði. Flóð-
varnargarðurinn þar var endurbyggður. Mikiar fram-
kvæmdir voru á Sauðárkróki. Um 30 ibúðarhús voru
i smíðum þar, og mikið var unnið að gatnagerð. Enn
var unnið að sjúkrahúsinu þar. Unnið var að bygg-
ingu félagsheimilis á Skagaströnd. Unnið var að
kirkjusmíð á Höskuldsstöðum. Nýtt félagsheimili var
tekið til afnota á Blönduósi. Þar var unnið að leik-
vallagerð og skrúðgarðagerð. Reist var í Þórdísar-
lundi í Vatnsdal minnismerki um Þórdisi Ingimund-
ardóttur hins gamla. Á Hvammstanga var að mestu
lokið byggingu barnaskólahúss og póst- og símahúss.
Á Hólmavik voru í smiðum kirkja, félagsheimili
og mjólkurstöð, og unnið var að hafnarframkvæmd-
um þar. Hafin var bygging rækjuverksmiðju á Eyri
í Ingólfsfirði. Byggt var skipbrotsmannaskýli i Barðs-
vik á Hornströndum. Tekið var i notkun nýtt heima-
vistarhús við héraðsskólann á Reykjanesi i N-ís.
Öðru frystihúsinu á Súðavík var breytt i rækjuverk-
smiðju, og var húsið stækkað og umbætur gerðar á
því. Á ísafirði voru byggð allmörg ibúðarhús. Unnið
var að gerð dráttarbrautar þar. Nýtt veitingahús tók
til starfa á ísafirði. í Hnífsdal var unnið að bygg-
ingu félagsheimilis, fiskvinnslustöðvar, trésmiðju og
allmargra íbúðarhúsa. í Bolungavik var unnið að
byggingu barna- og gagnfræðaskólahúss. Þar var lok-
ið byggingu frystihúss og unnið að byggingu beitinga-
húss og steypustöðvar. Unnið var að iþróttavelli á
Bolungavik, og mikið kvað þar að hafnarframkvæmd-
um og gatnagerð. Á Suðureyri var að mestu lokið
byggingu félagsheimilis, læknisbústaðar og sjúkra-
(109)