Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1964, Blaðsíða 116
lands 10,6 millj. kr. (áriö áður 10,1 millj.), til Ung-
verjalands 9,5 millj. kr. (árið áður 1,2 millj.), til
Japans 7,8 millj. kr. (árið áður 16,2 millj.), til Sviss
6,2 millj. kr. (árið áður 5,4 millj.), til Panama 6 millj.
kr. (árið áður 3,7 millj.), til Venezúela 3,8 millj. kr.
(árið áður 3,2 millj.), til Belgíu 2 millj. kr. (árið áður
1,5 millj.), til Ástralíu 1,4 millj. kr. (árið áður 0,6
millj.). — Verzlunarjöfnuður var litið eitt óhagstæð-
ur. Andvirði innflutts varnings nam 3842,8 millj. kr.
(árið áður 3009,6 millj.), en andvirði útflutts varn-
ings 3618,9 millj. kr. (árið áður 2891,2 millj.).
Mikilvægustu innflutningsvörur voru olíuvörur
(mest frá Sovétsambandinu, en nokkuð frá Curacao
og Arúba og Venezúela), vélar (einkum frá V-Þýzka-
landi, Bretlandi, Svíþjóð, Danmörku og Bandaríkj-
unum), álnavara og fatnaður (einkum frá Bretlandi,
Danmörku, V-Þýzkalandi og Noregi), bílar (einkum
frá V-Þýzkalandi og Bandaríkjunum), skip (einkum
frá Bretlandi, Noregi, Svíþjóð og Hollandi), málmar
og málmvörur (einkum frá V-Þýzkalandi, Bretlandi,
Sovétsambandinu og Danmörku), trjávörur (einkum
frá Noregi, Sovétsambandinu og Finnlandi), korn-
vörur (mest frá Bandaríkjunum), pappírsvörur (eink-
um frá Finnlandi, Svíþjóð og Bandaríkjunum), ávext-
ir og grænmeti (einkum frá Bandaríkjunum, Spáni og
ísrael), kaffi (mest frá Brasilíu), vísindaáhöld og
mælitæki (einkum frá Noregi, Bretlandi, V-Þýzka-
landi, Sviss og Bandaríkjunum), gúmmivörur (eink-
um frá Bretlandi, Sviþjóð, V-Þýzkalandi, Hollandi og
Tékkóslóvakíu), áburðarvörur (einkum frá Hollandi,
V- og A-Þýzkalandi og Noregi), efnavörur (einkum
frá V-Þýzkalandi, Bretlandi, Bandaríkjunum og Dan-
mörku), skófatnaður (einkum frá Tékkóslóvakíu,
Hollandi og Bretlandi), tóbaksvörur (aðallega frá
Bandaríkjunum), sykurvörur (einkum frá Póllandi,
Tékkóslóvakiu, Kúbu og A-Þýzkalandi), fóðurvörur
(frá Bandaríkjunum og Sovétsambandinu) og lyf (að-
(114)