Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1970, Page 41
1 stjörnuár = umferðartími jarðar um sólu miðað við fastastjörnur
= 365,256 36 dagar.
Tíðni.
1 hertz (Hz, eldra tákn c/s) = tíðni reglubundins fyrirbæris sem endur-
tekur sig einu sinni á sekúndu.
Tíðni hljóðaldnanna í A-tóninum, sem hljóðfæri eru stillt eftir, á að
vera 440 Hz.
Hæsta tíðni sem mannseyrað heyrir = um 2104 Hz.
Hraði.
1 metri á sekúndu (m/s) = hraði hlutar sem fer vegalengdina 1 metra á
hverri sekúndu án hraðabreytinga.
1 km/klst. = 0,278 m/s.
1 míla/klst. = 1,61 km/klst. = 0,447 m/s.
1 hnútur = / sjómíla/klst. = 0,514 m/s.
Hraði hljóðsins í lofti við 0°C = 1 193 km/klst. = 331 m/s.
Hraði ljóssins í lofttómu rúmi (staðalgildi) = 299 792,5 km/s =
2,997925-10» m/s.
Hröðun.
1 metri á sekúndu, á sekúndu (m/s2) = hröðun hlutar sem eykur hrað-
ann jafnt og þétt um 1 metra á sekúndu á hverri sekúndu.
• „g“ = þyngdarhröðunin (fallhraðaaukningin) við yfirborð jarðar
(staðalgildi) = 9,80665 m/s2.
Kraftur.
1 njúton (newton, N) = krafturinn sem beita þarf á massann 1 kg til
að valda hröðun sem nemur 1 m/s2 þegar viðnám er ekkert.
1 dyn = /0"5 N.
Þyngdarkrafturinn sem stafarfrá 1 kgírmetra fjarlægð = 6,67-10-11 /r2
njúton á hvert kg sem þar er.
Þyngdarkrafturinn á 1 kg við yfirborð jarðar (staðalgildi) = 9,80665 N.
Þessi stærð er stundum notuð sem krafteining undir nafninu kíló-
pond (kp), kílógrammkraftur, eða aðeins „kílógramm", sbr.
„kílógramm“-metri og „kílógramm'" á fersentimetra.
Rafkrafturinn frá hleðslunni 1 kúlomb í r metra fjarlægð = 9-109/r2
njúton á hvert kúlomb sem þar er.
Segulkrafturinn frá 1 ampers straum í löngum, beinum vír, sem verkar
á 1 metra kafla af öðrum straumvír samsíða í r metra fjarlægð
= 2- 10_7/r njúton á hvert amper í þeim vír.
Þrýstingur.
1 njúton á fermetra (N/m2) = sá þrýstingur sem þrýstir á 1 fermetra af
sléttum fleti með kraftinum 1 njúton hornrétt á flötinn, þegar
þrýstingurinn verkar jafnt á alla hluta flatarins. Þessi þrýstings-
eining er stundum kölluð pascal (Pa).
1 bar = 105 N/m2.
1 millibar (mbar) = 100 N/m2.
1 mm kvikasilfurs við staðalskilyrði (mm Hg) = 1,33322 mbar
= 133,322 N/m2.
1 þumlungur kvikasilfurs við staðalskilyrði (inHg) = 33,863 8 mbar
= 3 386,38 N/m2.
(39)