Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1970, Qupperneq 42
1 kílógramm(kraftur) á fersentimetra (kg/cm2) = 14,2 pund(kraftar) á
ferþumlung (Ib/in2) = 0,980665 bar = 98066,5 N/m2.
1 pund(kraftur) á ferþumlung (lb/in2, psi) = 0,0703 kg/cm2
= 6 894,8 N/m2.
1 loftþyngd (staðalgildi) = 1,01325 bar = 1013,25 mbar = 760 mm Hg
= 29,92 inHg = 1,033 23 kg/cm2 = 14,7 lb/in2 = 101 325 N/m2.
Streita (spenna).
1 njúton á fermetra (N/m2) = sú streita sem verkar á 1 fermetra í slétt-
um fleti með heildarkraftinum 1 njúton.
Seigja.
1 njúton-sekúnda á fermetra (Ns/m2) = seigja straumefnis sem fær innri
hraðamismun er nemur 1 metra á sekúndu á hvern metra hornrétt
á straumstefnuna, þegar streymið er i jafnvægi undir streitu sem
nemur 1 njúton á fermetra samsíða straumstefnunni.
1 poise (P, Po) = 0,1 Ns/m2.
Seigja vatns við 20°C = 0,001 002 Ns/m2 = 1,00210 3 Ns/m2.
Seigja lofts við 20°C = 0,000018 Ns/m2 = 1,8-10 5 Ns/m2.
Vinna, orka, varmi.
1 júl (joule. J) = vinnan sem krafturinn 1 njúton framkvæmir þegar
átakspunkturinn hreyfist 1 metra í kraftáttina. (J = N-m)
1 erg = ÍO^1 júl.
1 kílóvattstund (kWh) = i,6106 júl.
1 kílógramm(kraft)-metri = 9,80665 júl.
1 brezk varmaeining (B.T.U.) = 1 055 júl.
1 elektrónuvolt (eV) = 1.60-10'19 júl.
1 kg efnis umbreytt í orku = 91016 júl.
1 megatonn af TNT (sprengiorkan) = 4,2-1015 júl.
1 kaloría (varmaeining, ,,hitaeining“) = 4,2 júl. Kalorían er sú varma-
orka sem þarf til að hita 1 gramm af vatni um 1°C. Orkumagnið
fer að örlitlu leyti eftir hitastigi vatnsins, og er því kalorían ekki
nákvæmlega skilgreind nema hitastigið sé tilgreint. Nafnið kaloría
hefur stundum verið notað í merkingunni kílókaloría (1000
kaloríur), einkum í sambandi við varmagildi fæðutegunda og
varmaþörf bygginga.
Eðlisvarmi vatns við 15°C = 4185,5 (J/kg)/°C = 1,0 (kaloría/g)/°C.
Bræðsluvarmi vatns = 3,33TO5 J/kg = um 80 kaloríur/g.
Suðuvarmi vatns = 2,26-106 J/kg = um 540 kaloríur/g.
Eðlisvarmi lofts við 20°C = 1 006 (J/kg)/°C = um 0,24 (kaloríur/g)/°C.
Afl.
1 vatt (W) = það afl sem skilar vinnunni 1 júl á hverri sekúndu. (W =
J/s)
1 kílógramm(kraft)-metri á sekúndu (kgm/s) = 9,80665 W.
1 hestafl (metrakerfíshestafl) = 75 kgm/s = 735,5 W.
1 hestafl (Br. og U.S.) = 745,7 W.
1 hestafl (rafvélahestafl, Br. og U.S.) = 746 W.
Rafstraumur.
1 amper (A) = sá straumur sem þyrfti að vera í óendanlega löngum, ör-
mjóum beinum vír, til þess að hann verkaði á hvern lengdarmetra
(40)