Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1970, Side 43
af öðrum straumi jafnmiklum í sams konar vír samsíða hinum í
1 metra fjarlægð í tómu rúmi með kraftinum 210"7 njúton, þegar
báðir straumarnir eru stöðugir.
Rafspenna.
1 volt (V) = spennumunurinn milli tveggja staða í leiðara sem 1 ampers
jafnstraumur fer um, þegar orkutapið milli staðanna er 1 vatt.
(V = w/A)
Rafviðnám.
1 óm (ohm, £2 ) = viðnámið milli tveggja staða í leiðara ef spennu-
munurinn 1 volt milli staðanna skapar strauminn 1 amper þar,
þegar svo háttar til, að engin íspenna myndast í leiðaranum sjálf-
um. (Q = V/A = W/A2)
Viðnám í 1 m af koparvír, 1 mm2 í þverskurð, við 0°C = 0,016 Í2.
Rafhleðsla.
' kúlomb (coulomb, C) = rafhleðslan sem straumurinn 1 amper flytur
framhjá hverjum stað í leiðara á hverri sekúndu. (C = A-s)
1 amper-stund (Ah) = 3 600 kúlomb.
1 rafeindarhleðsla 1,60-10-19 kúlomb.
Rafrýmd.
1 farad (F) = rýmd þéttis sem þarf hleðsluna 1 kúlomb (á hvort skaut)
til að spennumunurinn milli skautanna verði 1 volt. (F = C/V)
Spanstuðull.
1 henry (H) = spanstuðull lokaðrar rafrásar sem spanar upp íspenn-
una 1 volt ef straumnum í rásinni er breytt jafnt og þétt um 1 amper
á hverri sekúndu. (H = V's/A)
Segulstyrkur.
1 tesla (T) = segulstyrkurinn hornrétt á beinan vír sem straumurinn
1 amper fer um, þegar krafturinn frá segulsviðinu er alls staðar
jafn og nemur 1 newton á hvern lengdarmetra vírsins.
(T = N/ (A-m))
1 gauss (G) = 10-* tesla.
' gamma (y) = 10"5 gauss = 10-9 tesla.
Styrkur jarðsegulsviðsins á íslandi = um 5T0-5 tesla.
Segulflæði.
1 veber (weber, Wb) = það segulflæði sem liggur gegnum 1 fermetra
flatar þegar segulstyrkurinn hornrétt á flötinn er alls staðar 1 tesla.
(Wb = Tm2 = N-m/A)
Ljósstyrkur.
1 kandela (kerti, cd) = ljósstyrkurinn í stefnuna hornrétt frá fleti sem
er 1/60 úr fersentimetra að stærð og skín eins og fullkominn ljós-
gjafi (svarthlutur) sem er við bræðsluhita platínu. Ljósstyrkinn má
reikna í ljósflæði á rúmhornseiningu frá fletinum.
Ljósstyrkur sólar, séð frá jörðu við góð skilyrði = 2T027 cd.
Ljósstyrkur tungls, séð frá jörðu við góð skilyrði = 3T016 cd.
Ljósstyrkur rafmagnsperu af algengri gerð = um 1 cd fyrir hvert vatt.
(41)