Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1970, Page 45
Geislaálag.
1 röntgen (R) = það geislaálag röntgengeisla eða gammageisla sem í
lofti leiðir til myndunar rafa (jóna) er hafa til samans hleðsluna
l/(3-109) kúlomb af hvoru formerki fyrir sig (+ og —) í hverjum
1,293 mg lofts. Þessi eining (röntgen), sem miðast við álagið á loft,
er fremur ófullkominn mælikvarði á álagið á aðra hluti.
1 rad = það geislaálag sem veldur því að hvert kg efnis tekur í sig
geislaorku sem nemur 0,01 júl. Rad er mælieining fyrir geislaálag
af hvers kyns geislun. Fyrir röntgengeislun og gammageislun á efni
mannslíkamans svarar 1 rad nokkurn veginn til 1 röntgen. Geisla-
þol líkamans í rad er þó misjafnlega mikið, eftir því hver geislunin
er. Þannig veldur 1 rad af alfaögnum og hraðfara nifteindum um
það bil tíu sinnum meiri skaða líffræðilega séð en 1 rad af röntgen-
geislum, gammageislum eða betageislum.
1 rem = það geislaálag hvers kyns geislunar, sem hefur ámóta líffræði-
leg áhrif og álagið 1 rad af röntgengeislum eða gammageislum. Sem
stendur er ekki talin þörf á sérstökum varúðarráðstöfunum ef á-
lagið er undir 100 millirem á viku (á sérhvern hluta líkamans).
Snögg geislun sem nemur 25 rem hefur ekki merkjanleg áhrif á
mannslíkamann, en 600-1 000 rem er banvænn skammtur.
FORSKEYTI MÆLIEININGA
Nafn Tákn Merking
tera- T 1012 (milljón milljón = evrópsk billjón)
gíga- G 10« (þús. milljón = milljarður = bandarísk billjón)
mega- M 106 (milljón)
kíló- k 103 (þúsund)
hektó- h 102 (hundrað)
deka- da 10 (tíu)
desi- d 10-' (1 tíundi)
senti- c 10-2 (1 hundraðasti)
milli- m io-3 (1 þúsundasti)
míkró- h 10-6 (1 milljónasti)
nanó- n 10"9 (1 þúsund milljónasti)
píkó- P io-12 (1 milljón milljónasti)
femtó- f 1015 (1 þúsund milljón milljónasti)
attó- a 10-18 (1 milljón milljón milljónasti)
UM TALNARITUN
Kommur í tölum (tugabrotum) skal aðeins rita á einum stað: milli
heilu tölunnar og brotsins. Til að auðvelda lestur hárra talna er æski-
legt að aðgreina tölustafina með eyðum, þrjá og þrjá í einu, talið frá
kommunni á báða vegu. Dæmi: 32952,50 og 1 352527,1638. Engil-
saxneskar þjóðir nota punkt í stað kommunnar.
(43)