Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1970, Blaðsíða 57
mannamót voru haldin í júlí í Skógarhólum á Þingvöllum og
a Iðavöllum á Fljótsdalshéraði. Gerður var skeiðvöllur á
Murneyri við Þjórsá á Skeiðum. Rúmlega 700 hross voru flutt
til útlanda, aðallega til Þýzkalands. Enn bar dálítið á hring-
ormaveiki í nautgripum í Eyjafirði. Mikil landbúnaðarsýning
var haldin í Reykjavík í ágúst, og voru kjörorð hennar „Gróð-
ur er gulli betri“. Rúmlega 80 000 gestir sóttu sýninguna.
Gefið var út mikið ritgerðasafn um landbúnaðarmál, „Bættir
eru bændahættir“. Búnaðarþing var haldið í Reykjavík í
febrúar og marz. Aðalfundur stéttarsambands bænda var
haldinn í Skógum undir Eyjafjöllum um mánaðamótin ágúst-
september. Hið nýja hús Rannsóknastofnunar landbúnaðar-
ins í Keldnaholti var tekið í notkun um mánaðamótin janúar-
febrúar. Ákveðinn var nýr grundvöllur búvöruverðs, sem
skyldi gilda í tvö ár. Gekk hann í gildi 1. október.
í árslok 1968 var búfjáreign landsmanna:
Nautgripir 52 291 (árið áður 54 530)
Af þeim voru mjólkurkýr 36 898 (38 918)
Sauðfé 820 534 (847 337)
Hross 34 686 ( 35 490)
Útflutningur á landbúnaðarvörum var sem hér segir í millj.
kr. (í svigum tölur frá árinu áður):
Saltaðar gærur . . 204,1 (105,4)
Fryst kindakjöt .. 148,3 ( 79,6)
Loðskinn .. 30,5 ( 19,5)
Ostur . . 19,5 ( 9,5)
Ull .. 15,6 ( 2,2)
Kasein . . 9,9 ( 5,4)
Frystur kindainnmatur... .. 9,8 ( 9,9)
Lifandi hross .. 9,0 ( 2,5)
Skinn og húðir . . 8,9 ( 6,0)
Fryst nautakjöt . . 8,6 ( 12,4)
(55)