Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1970, Page 58
Mjólkurduft................. 7,8 ( 12,3)
Saltaðar garnir ............ 7,4 ( 5,3)
Saltað kindakjöt 4,5 ( 10,4)
Aðrar landbúnaðarvörur ... 13,9 ( 8,4)
Embætti.
Nokkrar embattisveitingar o.fl. 5. janúar var Vilhjálmur Þ.
Gíslason kjörinn formaður Menntamálaráðs. 19. janúar var
Guðmundur Magnússon skipaður prófessor við viðskipta-
deild Háskóla íslands. 22. janúar var Níels P. Sigurðsson
skipaður fastafulltrúi íslands hjá Efnahagsbandalagi Evrópu
og ambassador íslands í Belgíu (afhenti Belgíukonungi skil-
ríki sín 1. febrúar). 29. febrúar var Helgi Guðmundsson
skipaður lektor í bókmenntum við heimspekideild Háskóla
íslands. 14. marz voru Árni Þ. Árnason og Ólafur S. Valdi-
marsson skipaðir deildarstjórar í iðnaðarmálaráðuneytinu.
22. marz var séra Kristján Róbertsson skipaður sóknar-
prestur í Siglufjarðarprestakalli. 30. marz var séra Bjartmar
Kristjánsson skipaður sóknarprestur í Laugalandspresta-
kalli, Eyjafirði. í marz var Jón B. Jónsson ráðinn borgar-
gjaldkeri í Reykjavík, en Guðmundur Benediktsson lét af
störfum. 2. maí var Heimir Bjarnason skipaður héraðslæknir
í Helluhéraði. 8. maí var Steindór Steindórsson skipaður
skólameistari Menntaskólans á Akureyri. 31. maí var Bene-
dikt Gröndal kjörinn formaður Vinnuveitendasambands ís-
lands, en Kjartan Thors lét af störfum. 14. júní var ívar Guð-
mundsson skipaður fréttastjóri Ríkisútvarpsins, en sagði
starfinu lausu síðar á árinu. 19. júní var Bergsteinn Jónsson
skipaður lektor í sagnfræði og Sveinn Skorri Höskuldsson
lektor í bókmenntum við Háskóla íslands. 23. júní var frú
Borghildur Fenger kjörin aðstoðarskátahöfðingi íslands, en
frú Hrefna Tynes lét af störfum. 4. júlí var Sigurður Egilsson
skipaður bæjarfógeti í Neskaupstað. 12. júlí var séra Árni
Sigurðsson skipaður sóknarprestur í Þingeyrarklausturs-
(56)