Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1970, Page 69
bandi við opnun Norræna hússins. Húsgagnaarkitektar héldu
sýningu í Reykjavík í ágúst. Félag íslenzkra iðnrekenda hélt
fatnaðarkaupstefnu í Reykjavík í september: „íslenzkur fatn-
aður 1968“. Ráðstefna um málm- og skipasmíðaiðnað var
haldin í Reykjavík í september. Á vegum Iðnaðarmálastofn-
unar íslands starfaði nefnd, er vann að stöðlun á prófarka-
lestri og frágangi handrita. Félag íslenzkra iðnrekenda kom
upp útflutningsskrifstofu til að vinna að markaðsleit. Ársþing
íslenzkra iðnrekenda var haldið í Reykjavík í apríl, en iðn-
þing íslendinga í Ytri-Njarðvík í október. Prjónavörur úr ull
voru fluttar út fyrir 30,8 millj. kr. (árið áður 30 millj. kr.) og
ullarteppi fyrir 12,8 millj. kr. (21 millj. kr.). Frímerki voru
flutt út fyrir 14,8 millj. kr. (11 millj. kr.).
íþróttir.
Borðtennis. Áhugi jókst á borðtennis, og var hann talsvert
stundaður í Reykjavík og á Akureyri, að nokkru leyti á vegum
íþróttafélaganna.
Bridge. íslandsmeistaramót í bridge var haldið í Reykjavík
í apríl, og varð sveit Benedikts Jóhannssonar íslandsmeistari,
hlaut 53 stig. Landsleikur í bridge milli íslendinga og Skota
var háður í Reykjavík 3. maí, og unnu íslendingar. íslendingar
tóku þátt í Norðurlandamóti í bridge í Gautaborg í maí. ís-
lenzk sveit tók þátt í Ólympíubridgemóti í Deauville í Frakk-
landi í júní og varð í tíunda sæti. Bridgefélag Klaksvíkur í
Færeyjum heimsótti bridgefélag Kópavogs um mánaðamót-
in júlí-ágúst.
Frjálsíþróttir. Á 17,-júnímótinu vann Guðmundur Her-
mannsson forsetabikarinn fyrir afrek í frjálsíþróttum. Hann
setti nýtt íslandsmet í kúluvarpi, varpaði kúlunni 18,21 metra.
Fjölmennur hópur færeysks íþróttafólks keppti í Neskaup-
stað um mánaðamótin júní-júlí. Norðurlandamót í frjálsum
íþróttum var haldið í Reykjavík snemma í júlí. Var þar keppt
í tugþraut, fimmtarþraut kvenna og maraþonhlaupi, hinu
(67)