Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1970, Síða 71
febrúar, og unnu Rúmenar báða leikina. í marz háðu ís-
lendingar og V-Þjóðverjar tvo landsleiki, í Augsburg og í
Brimum, og unnu Þjóðverjar báða leikina. í apríl var háður
landsleikur íslendinga og Dana í Reykjavík, og unnu íslend-
ingar. íslendingar háðu tvo landsleiki við Spánverja á Spáni
í apríl og töpuðu fyrri leiknum en unnu hinn síðari. íslend-
ingar tóku þátt í Norðurlandamóti unglinga um mánaða-
ntótin apríl-maí, piltarnir í Túnsbergi í Noregi, en stúlkurnar
: Lögstör í Danmörku. Landsleikur milli Islendinga og Fær-
eyinga var háður í Færeyjum í júlí, og unnu íslendingar. Sjö
islenzk lið tóku þátt í alþjóðlegu handknattleiksmóti í Osló
í ágúst (Oslo cup). Þar sigraði Fram í B-flokki karla, og fleiri
íslenzk lið náðu góðum árangri. Svíþjóðarmeistararnir í hand-
knattleik, Saab, kepptu hér á landi í september. Unnu þeir
Reykjavíkurúrvalið en töpuðu fyrir F.H. og gerðu jafntefli
við Fram. Danmerkurmeistararnir H.G. kepptu hér á landi
i október. Tveir landsleikir milli íslendinga og Vestur-Þjóð-
verja voru háðir í Reykjavík í nóvember, og unnu Þjóðverj-
ar báða leikina. Þjálfunarmiðstöð fyrir handknattleiksmenn
var komið upp í Réttarholtsskóla í Reykjavík.
íshockey. íshockeymót var haldið í Reykjavík í janúar, og
kepptu þar félög frá Reykjavík og Akureyri.
íþróttamaður ársins. Geir Hallsteinsson í Fimleikafélagi
Hafnarfjarðar var kjörinn íþróttamaður ársins 1968 fyrir af-
rek í handknattleik.
íþróttasamband íslands. Þing Í.S.Í. var haldið í Reykjavík
í september, og var Gísli Halldórsson endurkjörinn forseti.
Júdó. Júdófélag Reykjavíkur fékk um sumarið frægan
brezkan þjálfara, S. Hoarle. Tveir félagar úr félaginu tóku
þátt í keppni í Kaupmannahöfn í apríl.
Knattspyrna. K.R. varð íslandsmeistari í knattspyrnu.
Middlesex-Wanderers, úrvalslið brezkra áhugamanna í knatt-
spyrnu, kepptu hér á landi í maí. Þýzka atvinnuliðið Schwarz-
Weiss keppti á íslandi í júní. Landsleikir milli íslendinga og
(69)