Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1970, Síða 93
ingar í fyrsta skipti fylgzt með sjónvarpsdagskrá. Sjónvarp
til Vesturlands hófst einnig í desember. Sjónvarpsnotend-
um fjölgaði því mjög á árinu.
Vegagerð. Víða um land var unnið að vegagerð og viðhaldi
vega. Unnið var að undirbúningi að lagningu hraðbrauta frá
Reykjavík (áætlun, kortlagningu, jarðvegskönnun). Unnið
var að nýrri hraðbraut milli Rvíkur og Hafnarfjarðar um
Fossvog og Kópavogsháls. Unnið var að byggingu umferðar-
brúar yfir Nýbýlaveg í Kópavogi. í sambandi við þessa vega-
lagningu var Kringlumýrarbraut í Reykjavík einnig lengd til
norðurs. Einnig var hafin gerð Vesturlandshraðbrautar við
Elliðaár. Unnið var að vegagerð í Hvalfirði, á Skógarströnd,
að vegi sunnan Þingmannaheiðar í Barðastrandarsýslu, á
Breiðadalsheiði, að Súgandafjarðarvegi, Bolungavíkurvegi,
Skötufjarðarvegi við Djúp, Siglufjarðarvegi (m.a. að umbót-
úm á Strákagöngum), vegi frá Húsavík til Mývatns (kísilvegi),
Raufarhafnarvegi, Jökuldalsvegi, vegi milli Reyðarfjarðar og
Fáskrúðsfjarðar, á Breiðdalsheiði, Berufjarðarströnd, að
Landeyjarvegi, veginum milli Hellu og Rauðalækjar, vegi
milli Gullfoss og Geysis, Þrengslavegi, Kambavegi og veg-
inum við Þingvallavatn.
Vmsar framkvæmdir.
Reykjavík. 871 íbúð var fullgerð á árinu, en 1087 íbúðir voru
í smíðum í árslok. Mestar byggingaframkvæmdir voru í hin-
um nýju hverfum í Fossvogi og Breiðholti. Fyrsti áfangi
Breiðholtsáætlunar, 312 íbúðir, var að mestu fullgerður.
Unnið var að lagningu hitaveitu í hin nýju hverfi. Mikið var
unnið að gatnagerð, einkum í Laugarási og norðanverðu
Langholtshverfi. Malbikaðar voru götur í Reykjavík um 10
km. á lengd. í árslok 1968 voru götur í Reykjavík um 200 km
alls. Af þeim voru 132 km malbikaðir, en 68 voru malargötur.
Unnið var að byggingu leikskóla í Sólheimum og Árbæjar-
hverfi, og að undirbúningi að leikskólabyggingum í Fossvogs-
(91)