Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1970, Page 94
hverfi og Breiðholtshverfi. Unnið var í Reykjavík að skrúð-
görðum, leikvöllum og barnaheimilum. Lokið var hinu nýja
barnaheimili Thorvaldsensfélagsins, og varþað afhent Reykja-
víkurborg í nóvember. Unnið var að Borgarsjúkrahúsinu í
Fossvogi, og tóku nýjar deildir til starfa þar. Unnið var að
stækkun Landspítalans og Kleppsspítalans. Unnið var að
Hrafnistu og að húsi Blindravinafélagsins og dvalarheimili
lamaðra og fatlaðra. Á vegum borgarinnar var unnið að undir-
búningi að byggingu hjúkrunarheimilis fyrir aldraða (í Grens-
ási) og að öðru heimili fyrir aldrað fólk (í Laugarási). Ný
lyfjabúð, Borgarapótek, tók til starfa í Álftamýrarhverfi.
Unnið var að Hallgrímskirkju, Bústaðakirkju og Langholts-
kirkju. Lokið var að mestu turninum á Hallgrímskirkju, og er
hann rúmlega 70 metrar á hæð. Unnið var að stækkun Foss-
vogskirkjugarðs. Unnið var að byggingu handritahúss, en
þar á einnig að fara fram margvísleg starfsemi Háskóla ísl.,
einkum heimspekideildar. Unnið var að stækkun húss Mennta-
skólans í Hamrahlíð og að umbótum á húsi Menntaskólans í
Lækjargötu. Hús æfinga- og tilraunaskóla Kennaraskólans
var tekið í notkun. Unnið var að stækkun Iðnskólans í Reykja-
vík. Unnið var að Breiðholtsskóla og stækkun Álftamýrar-
skóla, Vogaskóla og Gagnfræðaskóla verknáms. Unnið var
að byggingu íþróttahúsa við Álftamýrarskóla og Vogaskóla.
Unnið var að ýmsum framkvæmdum við íþróttahöllina og
íþróttavöllinn í Laugardal. Nýja sundlaugin í Laugardal var
vígð 1. júní, en þá var gömlu sundlaugunum lokað. Unnið var
að byggingu íþróttahúss K.R. Unnið var að hinni nýju lög-
reglustöð. Unnið var að mikilli tollstöðvarbyggingu við
Reykjavíkurhöfn, og hafin var gerð bílabrautar við höfnina.
Eimskipafélag íslands lét reisa mikið vöruhús, Faxaskála, við
Reykjavíkurhöfn, og var nokkur hluti þess tekinn í notkun.
Lokið var fyrsta áfanga hinnar nýju Sundahafnar. Norræna
húsið var vígt með viðhöfn 24. ágúst. Bindindishöllin var tekin
í notkun í janúar. Unnið var að sýningarskála myndlistar-
(92)