Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1970, Síða 117
Hinn 21. desember 1968 hófst risavaxin Satúrnus 5 eldflaug
til flugs frá Kennedyhöfða og kom geimskipinu Apollo 8 af
stað áleiðis til tunglsins. Geimfarar í þessari ferð voru þeir
Frank Borman, James Lovell og William Anders. Ferðin
gekk með afbrigðum vel, og á jólanótt sveif fyrsta mannaða
geimskipið í rúmlega 110 km fjarlægð frá yfirborði tunglsins.
Þaðan gátu geimfararnir þrír horft á heimkynni sitt, himin-
bláa og fannhvíta jörðina, renna sitt skeið, langt úti í kol-
svörtum himingeimnum. Líklega munu þessir menn seint
geta með orðum lýst þeim tilfinningum, sem þá bærðust í
brjóstum þeirra.
Apollo 8 var á braut um tunglið í um 20 klst. og fór á þeim
tíma 10 hringi umhverfis tunglið, áður en geimfararnir beindu
því aftur heim á leið. Heimferðin gekk með ágætum, og Apollo
8 lenti heilu og höldnu á Kyrrahafi í dögun þar hinn 27.
desember. Höfðu þeir félagar með sér ljósmyndir og lýsingar
úf hrjóstrugu yfirborði mánans. Með giftusamlegum ferða-
lokum var sýnt, að lending manna á tunglinu væri möguleg
®eð nútímatækni. Álitið er, að með þessari frægðarför hafi
Bandaríkjamenn náð miklu forskoti í geimflugstækni.
Tunglflaugar.
Bandaríkjamenn luku tunglkönnun sinni með ómönnuð-
um flaugum snemma á árinu, en í lok ársins virtust Sovétmenn
hins vegar byrjaðir á nýjum þætti í áætlunum sínum á þessu
sviði. Skulu nú helztu atburðirnir raktir í tímaröð.
Hinn 9. janúar 1968 lenti síðasta bandaríska Surveyor
fiaugin, Surveyor 7, heilu og höldnu á einhverjum erfiðasta
lendingarstað, sem vísindamenn gátu fundið á tunglinu.
Surveyor flaugunum hafði fyrst og fremst verið ætlað að afla
upplýsinga sem að gagni mættu koma við lendingu manna á
lunglinu, en fyrri ferðir þessara flauga höfðu verið svo
árangursríkar, að í þetta sinn var hægt að velja lendingar-
staðinn eingöngu eftir óskum þeirra vísindamanna, er vinna
(115)