Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1970, Side 133
kanna útvarpsbylgjur utan úr himingeimnum, og síðan
röntgengeisla, eins og fyrr er sagt, að grunur vaknaði um, að
ekki væri allt með felldu. Mælingarnar gefa til kynna, að á
vissum stöðum í alheiminum sé óstjórnleg orka að brjótast
út, orka sem er blátt áfram ógnvekjandi, jafnvel á stjörnu-
fræðilegan mælikvarða. Sums staðar brýzt orkuflóðið fram í
stjörnukerfum, þ.e.a.s. vetrarbrautum, sem sýna glögg merki
innri hamfara. Annars staðar birtist það í torkennilegum
fyrirbærum sem nefnd hafa verið dulstirni eða kvasar. Til
þess að fá nokkra hugmynd um orkuna sem þarna er að verki,
getum við hugsað okkur, að allur kjarnorkuforði allra stjarna
í vetrarbrautinni, sameinaður orkuforði þúsund milljón sól-
stjarna, væri skyndilega leystur úr læðingi á einum stað.
Slíkri heljarsprengingu verður varla með orðum lýst, og er
ekki ofmælt, að sumum finnist hrikta í stoðum vísindanna.
Spurningin er: hvaða öfl eru þarna að baki ? Fyrst létu menn
sér detta í hug, að um árekstur heilla vetrarbrauta væri að
ræða, en sú skýring varð ekki langlíf. Keðjusprenging sól-
stjarna er önnur skýring, en hún hrekkur tæplega til, og vekur
auk þess fleiri spurningar en hún svarar. Árekstur efnis og
andefnis og algjör ummyndun efnis í orku; myndun efnis og
orku úr engu; samhrun efnismagns þúsund milljón sólstjarna;
allt eru þetta hugmyndir, sem fram hafa komið og verið er að
rannsaka. Hvert sem svarið reynist, er nokkurn veginn víst,
að það verður geimtæknin, sem leggur fram drýgsta skerfmn
til að leysa þessa dularfullu gátu.
Ég hef nú vikið að nokkrum þeirra verkefna sem bíða geim-
''ísindanna í náinni framtíð. Á næstu áratugum mun þekking
okkar á umheiminum vaxa með æ meiri hraða. Unnið verður
að því að koma upp athugunarstöðvum á yfirborði tunglsins
°g úti í geimnum. Könnun reikistjarnanna með sjálfvirkum
tækjum mun aukast stig af stigi, og mannaðar geimferðir
þangað eru þegar til umræðu. Þær spurningar sem leitazt er
við að svara, snerta þróun jarðarinnar, þróun sólkerfisins og
(131)