Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1970, Síða 152
talningum, dagafjölda í ári og í mánuði, ber merkilega vel
saman um lengd sólarhringsins. Hitt er þó enn furðulegra, að
meðalhemlunin á þessu 500 milljón ára skeiði er nærri alveg
jöfn meðalhemluninni síðustu 300 árin.
Þetta eru vissulega forvitnilegar niðurstöður og hafa að
vonum vakið mikla eftirtekt. Ströngustu gagnrýni verður þó
auðvitað að beita þegar svo veigamiklar ályktanir eru dregnar.
Þess er þá fyrst að geta, að skeldýrin eru í rauninni ekki eins
reglusöm í líferni sínu og ströngustu siðapostular mundu
krefjast, enda þarf varla dýrafræðing til að sjá, að margt getur
truflað. Raunin er og sú, að bæði eru hvörfin stundum ó-
skýr og breytileg að fjölda á því bili, sem telst svara til mán-
aðar eða árs. Það eru því meðaltöl, sem byggja verður á.
Augljósa prófun á talningarnar veita nútímaskeljar. Niður-
staðan er sú, að þær sýna 29,17 daga í mánuði í stað 29,53.
Skekkjan er þriðjungur úr degi, og þó er þetta langsamlega
öruggasti efniviðurinn, því að elztu skeljar, sem geymzt hafa
í jarðlögum, eru auðvitað ekki í eins fersku ástandi og þær
nýju. Þar sem talningin í nútímaskeljum gefur 1% of lágt
gildi, hefur verið stungið upp á að hækka einnig talningar í
eldri skeljum um 1%. Þetta er auðvitað hrossalækning, því
að í svona leiðréttingu felst sú tilgáta, að óreglur í gerð dag-
hvarfa hafi alla tíð verið af svipuðum rótum runnar. En marg-
ar spurningar hljóta að vakna, sem bæði dýrafræðingar og
jarðfræðingar verða að brjóta til mergjar. Er það til dæmis
víst, að hinir stjarnfræðilegu þættir, dagar og mánuðir, hafi
alltaf stjórnað skeljunum jafn vel og nú? Gat ekki kjarnminni
fæða á Kambríumtíma fyrir 500 milljón árum, eða vanþróaðri
fæðutaka, valdið tíðari fæðutöku en einu sinni á sólarhring til
jafnaðar? Eða þá öfugt: úr því að dagurinn var styttri, mátti
þá ekki stundum sleppa úr degi og fasta ? Því má heldur ekki
gleyma, að fornskeljarnar eru, sem tegundir, löngu útdauðar,
svo að beinn samanburður við hegðun nútímaskelja af sömu
tegund er útilokaður. Ekki þyrfti meira til en að talningar í
(150)