Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1970, Síða 161
hlaupið, og bendir allt til þess að erlendir fræðimenn hafi
heykzt á þessu verkefni, enda var fingrarímið allílókið
fyrir, og varla bætandi á það aukareglum hins nýja stíls.
Afrek Jóns biskups er í því fólgið, að hann slítur sig að
miklu leyti frá hinum eldri rímreglum og skapar nýtt fingra-
rím sem í senn samræmist nýja stíl og er miklu einfaldara en
það fingrarím sem fyrir var. I bók sinni gerir Jón ítarlegan
samanburð á sínum reglum og hinum eldri, og eftir þann
samanburð hlýtur lesandinn að fyrirgefa Jóni þótt hann sé
eilítið drjúgur með sig á köflum.
Jón biskup hefur haft mjög góða þekkingu á tímatalsfræð-
um, og bók hans er traust grundvallarrit, auk þess sem hún er
vel samin og aðgengileg kennslubók. Má vafalaust telja að
mjög margir hafi numið fingrarímið af bók Jóns á 18. öld.
Bókin var endurprentuð í Kaupmannahöfn 1838 og sá Þor-
steinn Jónsson um útgáfuna. Um svipað leyti hófst reglubund-
in útgáfa íslenzkra almanaka, og hefur þá vegur fingrarímsins
farið minnkandi. Hin prentuðu almanök gengu líka að einu
leyti í berhögg við reglur fmgrarímsins, því að þau færðu
fyrsta vetrardag frá föstudegi yfir á laugardag. Sú ráðstöfun
studdist við forn ákvæði sem finnast í Rímbeglu og líklega
eru frá 12. öld, en enginn veit í rauninni hvort eða hvenær þau
ákvæði hafa verið í heiðri höfð. Þótt mörgum þætti breytingin
orka tvímælis, hlaut almanakið að ráða. Um aldamótin 1900
féll svo úr gildi ein helzta fingrarímsregla Jóns biskups, og
eftir það mun lítið hafa kveðið að notkun fingrarímsins.
Það sem ritað hefur verið um fingrarím síðan Jón biskup
leið er fremur lítið að vöxtum. í grein eftir Guðmund Bergs-
son, sem birtist í blaðinu Hauk á ísafirði árið 1901 (bls. 17),
er vikið að fingraríminu, og þá sérstaklega aðferðinni til að
finna sunnudagsbókstaf. í Skírnisgrein Guðmundar Björn-
sonar um íslenzka tímatalið (1915, bls. 263) er einnig minnzt
a fingrarímið, en Guðmundur heldur þó meira fram reikni-
formúlum, sem hann telur auðveldari viðfangs. Árið 1939 kom
(159)