Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1970, Síða 162
út leiðarvísir um fmgrarím eftir Sigurþór Runólfsson, sem
margir munu kannast við eftir sjónvarpsþátt um þetta efni-
Leiðarvísir þessi er að mestu leyti byggður á fmgrarími Jóns,
en því miður gætir víða misskilnings sem dregur úr gildi ritsins.
Loks má nefna grein um flngrarím eftir Sigurð Daðason í
Lesbók Morgunblaðsins árið 1930 (bls. 178), þar sem bent er
á misræmi milli fingraríms og prentaðra almanaka á þessari
öld. Vel má vera að fleira hafi verið ritað um þetta efni, og
væri mér þá þægð í að fá ábendingar um það. Hvað sem því
líður er óhætt að segja, að fingrarím Jóns Árnasonar hefur
verið hið eina og sanna fingrarím í meira en þrjú hundruð ár,
og engar teljandi breytingar eða nýmæli hafa komið fram.
Slíks er þó vissulega þörf, ef nokkur von á að vera til þess að
endurvekja áhuga manna á fingrarími nú á dögum.
Einhver kynni nú að spyrja, hvort nokkur þörf sé á því að
endurlífga þessa gömlu aðferð, þegar nóg er til af prentuðum
almanökum. Þessu svarar Jón Árnason einmitt í inngangi
bókar sinnar, og gerir það á svo skemmtilegan hátt, að engu
þarf við að bæta. Hér skal aðeins minnt á, að almanök eru
ekki alltaf við hendina, jafnvel ekki almanak líðandi árs.
Fáir hafa í fórum sínum almanök sem ná langt aftur í tímann,
og almanök fram í tímann, meira en ár eða svo, eru sjaldséð.
Þá er einnig að vissu leyti andleg fullnæging í því að geta leyst
úr algengum spurningum um tímatal bókarlaust. í stað fingra-
ríms mætti auðvitað nota reikniformúlur og leysa dæmin
með blaði og blýanti, eða með reiknivél, en fingrarímið er
yfirleitt miklu fljótvirkara. Ef við tökum páskareikninginn
sem dæmi, er vandalaust fyrir þjálfaðan mann að finna páska
fyrir hvaða ár sem vera skal á einni mínútu með fingrarími,
en að ná sama hraða með formúlum og rafmagnsreiknivél er
nánast ógerningur. Loks má ekki gleyma því, að fingrarímið
getur verið skemmtileg dægradvöl, ekki síður en krossgátur
og önnur viðfangsefni sem menn grípa til þegar tóm gefst.
Lifandi dæmi um notagildi einfaldrar minnisreglu er vísan
(160)