Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1970, Blaðsíða 182
tekningar á aldamótum eins og í nýja stíl. I gamla stíl voru öll
aldamótaárin hlaupár og hafa því tvo fingurstaði. Árið 1700,
til dæmis, hafði í gamla stíl aðfarardagana sunnudag og mánu-
dag, og gildir sá fyrri að sjálfsögðu fram á hlaupársdag, en sá
síðari eftir hlaupársdag. Árið 1700 í gamla stíl á því sæti bæði
á fmgurtoppi og á framlið innanverðum. Árið 1600 hafði hins
vegar aðfarardagana mánudag og þriðjudag, og á því sæti á
framlið innanverðum og miðlið innanverðum. Árið 1500 hafði
aðfarardagana þriðjudag og miðvikudag og á því sæti á mið-
lið innanverðum og upplið innanverðum. Þannig getum við
talið aftur á bak í tímann eins langt og þörf krefur; við förum
sömu leið eftir fmgrinum og við erum vön (öfugan hring), en
í gamla stíl eru allir fmgurstaðir notaðir. Á meðfylgjandi mynd
sjáum við, að aldamótaárin í gamla stíl falla á sömu staði á
700 ára fresti. Árin 300, 1000, 1700 og 2400 lenda til dæmis
öll á toppinum og framlið innanverðum. Þar sem árið 1700
var einmitt ár tímatalsbreytingarinnar á íslandi, er gott að
hafa það til viðmiðunar og telja aftur á bak frá því, líkt og við
töldum aftur á bak frá árinu 1900 í nýja stíl. Einnig er auðvelt
að muna, að árið 1000 er á sömu stöðum. Að öðru leyti er
aðferðin til að finna vikudaga alveg sú sama í gamla stíl og
nýja.
Við skulum nú prófa þetta með því að finna þann vikudag
sem svarar til 17. nóvember árið 1700 í gamla stíl og bera hann
saman við vikudaginn fyrir 28. nóvember sama ár í nýja stíl.
Þar sem hér er um einn og sama daginn að ræða, eins og fyrr
er sagt, ættum við að fá út sama vikudag í bæði skiptin.
17. nóvember er eftir hlaupársdag í gamla stíl. Við notum
því seinni aðfarardag ársins og byrjum að telja á framlið
innanverðum. Nóvember hefur töluna 4, svo að við teljum
1 á framlið innanverðum, 2 á miðlið innanverðum, 3 á upplið
innanverðum, og 4 á upplið utanverðum. Síðan kemur 1.
nóvember á miðlið utanverðum; þar verður sömuleiðis 8.
nóvember og 15. nóvember. 16. nóvember lendir þá á framlið