Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2004, Page 38
38 FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 2004
Jólablað DV
Bubbi Morthens hefur að undanförnu samið lög sem óður maður - 23 lög á 13 dögum. Bubbi segir enga
leið að liggja og væla heldur spýtir í lófana og æðir upp á dekk. í kvöld verða hinir árlegu Þorláks-
messutónleikar hans og konungur rokksins játar það að vera alveg skelfingu lostinn af stressi, segist
feiminn en á sviðinu breytist hann í ofurhetju með gítar.
„Já, þetta eru 20 Þorláksmessu-
tónleikarnir mínir. Ég ætla að
halda upp á þetta með því að vera
skringilega klæddur og spila gam-
alt efni og svo alveg flunkunýtt.
Sumt ekki nema nokkurra daga
gamalt," segir Bubbi Morthens.
Það er komið að því, hinir ár-
legu og sögulegu Þorláksmessu-
tónleikar eru í kvöld. Og vitaskuld
löngu uppselt. Bubbi hefði þess
vegna getað haldið þrenna eða
ferna tónleika fyrir fullu húsi.
„Já, það bara seldist upp á inn-
an við einum deg. Svona gífurleg
eftirspurn. Ég ætla að taka þá tón-
leikana upp fyrir væntanlega
DVD-geymslu. Kominn með lið í
það. Allt sem ég hef verið að gera
að undanförnu - 25 ára starfsaf-
mælið er á næsta ári. ísbjarnar-
blús að verða 25 ára gamall! Hratt
flýgur stund. Við skulum ekki einu
sinni ræða það. Við stefhum hratt
að brúninni en uppréttir alla leið.”
Ræðir allt nema Hraunið og
skilnaðinn
Á morgun fer Bubbi svo í sína
árlegu ferð á Litla-Hraun til að
messa yfir föngunum, spila og
leika. Hann stefnir að því að hafa
með sér Mínus og Stefán Mána að
þessu sinni. Þetta er jafnframt 20.
skipti sem hann fer á Litla-Hraun
en þrátt fyrir þau tímamót er
Bubbi ófáanlegur að ræða það
neitt nánar. „Ég skal ræða allt
nema Litla-Hraun og skilnaðinn,"
slær hann fram.
Og þá er ekki um annað að
ræða en víkja talinu að tónleikun-
um að nýju. Og að framtíðinni.
Bubbi Morthens hefur verið gríð-
arlega afkastamikill að undan-
förnu. „Já, ég er búinn að taka upp
tíu lög með honum Barða í Bang
gang og þar fyrir utan er ég með 23
ný lög. Þetta eru því 33 ný lög sem
ekki hafa enn heyrst opinberlega.
Já, ég hef verið að skrifa rosalega
mikið að undanförnu. Alveg hell-
ing. 23 lög á 13 dögum. Þetta
rennur upp úr mér. Eitthvað verð-
ur maður að gera. Það þýðir ekk-
ert að liggja bara og væla. Það ger-
ir maður ekki heldur spýtir í lóf-
ana og fer upp á dekk. Við skulum
láta aðra um að væla.“
„Stundum hefur mað-
ur veríð helst til gífur-
yrtur og látið eitt-
hvað flakka sem
kannski hefði betur
verið látið ósagt. Það
hefur komið fyrir. En
hins vegar er ég bara
ég. Ég ritskoða ekki
sjálfan mig."
DVD-diskur í vændum -
bólginn af efni
Bubbi hefur auk þess að starfa í
hljóðveri með Barða verið að taka
upp demó-lög með þeim snilling-
um Palla Papa, Magga Einars, Dan
Cassidy og Jakobi Smára bassa-
leikara. „Mig langaði að eiga
ákveðin lög í tveimur útgáfum. Og
þetta er með akústísku hljóm-
sveitinni minni sem ætlað er að
verða sem bónus og aukaefni á
DVD-disknum sem ég er nú að
vinna.
DVD-útgáfa?
„Já, já, ég á efni á 2 til 3 DVD-
diska. Én það kemur örugglega út
DVD-diskur með mér á næsta ári.
Alveg bólginn af efni. Búast má við
að þar verði einir þrennir eða
fernir tónleikar. Hvort þeir verða
þar í heild sinni verður að koma í
ljós. Þótt ég myndi drepast núna
er fyrirliggjandi efni sem hægt
væri að dæla út. Ég hef verið svo
duglegur."
Helst til of gífuryrtur
Á tónleikunum í kvöld verður
Bubbi einn með kassagítarinn. Og
svo ædar hann að spjalla á milli
laga sem áður. Hann neitar því
ekki að á nokkrum tónleikanna
hafi hann farið vel yfir strikið.
„Já,já, þetta hefur alltaf verið í
beinni. Stundum hefur maður
verið helst til gífuryrtur og látið
eitthvað flakka sem kannski hefði
r*
t
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
t
GÍTARINN EHF.
www.gitarinn.is STÓRHÖFÐA 27 -SÍMI: 552 2125 grUrinn@gitarinn.is
Trommusett með öllu,
ásamt kennslu-
myndbandi og
æfingaplöttum
allt settið.
Rétt verð
73.900. -
Tilboðsverð
54.900. -
á
ÞJÓÐLACACÍTAR: KR. 14.900,-
M/ POKA. Ót. SntUFLAUTU OC NÖGL
ÞJÓÐLACAGÍTAR: KR. 17.900.-
M/ PICKrUP (HÆCT AÐ TENCJA I MAGNARA)
M/ÖLLU AÐ OFAN.
KLASSÍSKUR GÍTAR
FRÁ
KR. 9.900.-
f ;
RAFMAGNSSETT: KR. 27.900.-
(RAFMAGNSGÍTAR - MAGNARI - P0KI - KTNNSLUBÓK
STIUIFLAUTA - GÍTARNEGLUR OG 7 SNÚRURH!!)
í
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
Bubbi Morthens Læturaðra
um að væla og hefur að und-
anförnu verið óhemju dugleg-
ur við að skrifa - 23 ný lögó 13
dögum hlýtur að teljast gott.
betur verið látið ósagt. Það hefur
komið fyrir. En hins vegar er ég bara
ég. Ég ritskoða ekki sjálfan mig. Það
kemur örugglega mörgum mannin-
um skringilega fyrir sjónir að ég
skuli segjast feiminn. En ég er það.
En þegar ég fer á svið þá breytist
það. Þá er ég ofurhetja með gítar.
Það eru til tveir Bubbar. Þegar ég er
kominn upp á svið þá rúllar þetta.“
Tönleikarnir eru sendir út á
Bylgjunni en voru áður á Rás 2.
„Þeim þar fannst ég tala of frjáls-
lega og harkalega um Hannes
Hólmstein fýrir einhverjum þrem-
ur eða fjórum árum. Ég man það
ekki. Þetta var rétt hjá þeim, ég fór
yfir strikið, en það er partur af
mér. Og menn verða bara að
kaupa það eða ekki. í öðru lagi má
kannski segja að gagnrýnin hafi
átt fyllilega rétt á sér þótt ég hefði
getað orðað það af meiri skyn-
semi. Svona er þetta bara. Maður
á að fá að geta talað um það sem
maður vill og á að bera ábyrgð á
því. Ég kem til með að tala. Ég
verð ekkert þegjandi á sviðinu."
Tónleikagestir alla leið af
Halamiðum
Hinir hefðbundu Þorláks-
messutónleikar eiga sér stað í
hjarta Bubba og hann segir þá
gríðarlega skemmtilega. „Árið
1987 trúlofaði fólk sig á tónleikun-
um, ég sé sömu andlitin ár eftir ár,
þarna kemur unga kynslóðin og
gamla fólkið. Alveg ótrúlega gam-
an,“ segir Bubbi. Og fólk leggur
mikið á sig til að komast á tónleik-
ana.
„Það hringdi í mig maður frá
Halamiðum. Sjötíu ára og segir
það nú kannski eitthvað um það í
hvernig formi sá er. Hann ætlaði
að koma konunni sinni, sem er á
svipuðum aldri, á óvart með því
að bjóða henni á tónleikana.
Hvort þarna væri nokkur mögu-
leiki? Það var alveg uppselt en
hvað segir maður þegar menn
hringja frá Halamiðum og ætla að
koma fljúgandi að norðan til að
mæta á tónleikana. Maður segir:
Mættu bara! Við finnum út úr
þessu."
Skelfingu lostinn af stressi
Það ríkir sem sagt tilhlökkun
hjá konungi rokksins á íslandi fyr-
ir tónleikana. En hann kemur
blaðamanni á óvart með að játa á
sig sviðsskrekk.
„Alveg skelfingu lostinn af
stressi. Og það versnar með árun-
um. Maður verður alltaf meðvit-
aðari og meðvitaðari um hversu
lélegur maður er. Það er ákveðinn
sannleikur í þessu þó að þetta sé
sagt í kaldhæðni. í rauninni er
maður nakinn. Einn með gítarinn
og það má lítið bregða út af. Mað-
ur verður að halda haus, vinna
heilan sal, maður verður að vinna
fimm hundruð manns. Og það er
ekki auðvelt. Veit ekki hvort menn
gera sér grein fyrir því en það að
halda heilum sal er meira en segja
það. Er alltaf að uppgötva það
betur og betur með árunum.
Þetta vafðist ekki eins fyrir mér á
árum áður. Þá var bara partí og
gaman."
jakob@dv.is