Dagblaðið Vísir - DV - 23.12.2004, Qupperneq 61
DV Fréttir
FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 2004 6 7
Fimmtug á
gamlársdag
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, fyrrver-
andi borgarstjóri og
varaformaður Sam-
fylkingarinnar, verð-
urfimmtugá
gamlársdag. Af því
tílefni hefur hún
blásið til veislu í
Listasafni Reykjavíkur á milli
klukkan tvö og fjögur á
gamlársdag og vonast til að
sjá sem flesta. Með tilliti til
væntanlegs formannslags í
Samfylkingunni bíða félags-
menn nú í ofvæni eftir því
hvort össur Skarphéðinsson
flytji ræðu til heiðurs afinæl-
isbaminu í Listasafiiinu og
verður lögð djúp merking í
hvert orð ef hann lætur af
verða. Aðrir veðja á að Össur
muni standa þegjandi hjá.
Skemmtana-
hald bannað
umjólin
Allt skemmtanahald er
bannað á stöðum sem
almenningur hefur
aðgang að frá klukkan
18.00 á aðfangadagskvöld
til klukkan 06.00 annan
dag jóla. Hins vegar mega
þau veitingahús sem hafa
leyfi til klukkan 03.00 um
helgar hafa opið til þess
tíma á annan í jólum.
Margir veitingamenn eru
óhressir með þessa
ákvörðun og tala um geð-
þóttaákvarðanir yfirvalda
en leyft var að hafa opið
eftir miðnætti á jóladag í
fyrra. Þá eru margir leigu-
bílstjórar einnig óánægðir
því jólaopnunin í fyrra var
ágætisbúbót fyrir þá.
Alvöru skata í
Kópavogi
Vestfirsk skötuveisla
verður haldin á veitinga-
staðnum Catalinu í Kópa-
vogi í hádeginu og kvöld-
matnum í kvöld. Veislan er
haldin á vegum Önfirðinga-
félagsins, en félagið nýtur
aðstoðar Leifs Bjömssonar
og Grétu Hagalínsdóttur,
sem em foreldrar World
Class-eigandans Bjöms
Leifssonar. Reynt verður að
hafa skötuna sem sterkasta
til að þóknast þeim fjölda
Vestfirðinga sem borða
hana hvert ár. Fyrir þá sem
ekki þola og þora verður
saltfiskur, plokkfiskur og
kjötsúpaíboði.
Hnetusteiker
jólamatur
Grænmetisætum fjölgar
ört og hafa sérþarfir í matar-
æði sem samræmist oft ekki
fæðuvali fjölskyld-
unnar á aðfangadag.
„Hátíðarhnetusteik-
in er góður kostur,"
segir Hjördís Gísla-
dóttir eigandi Græns
kosts. Hjördís segist
vera búin að fá
margar pantanir
sem fólk sæki á Þor-
láksmessu. „Það
fylgir með blað með upplýs-
ingum um meðhöndlun.
Þannig geta allir tekið þátt í
jólahlaðborðinu og notið
síns matar. Grænmetisætur
eiga ekki að þurfa að svelta
umjólin."
Héraðslögreglumaðurinn, sturtuvörðurinn og æskulýðsleiðtoginn Sigurbjörn Sævar
Grétarsson segist hafa hlotið heilaskaða áður en hann misnotaði fimm drengi.
Hann þóttist vilja fræða þá um kynþroska og kynlíf.
Skaddaðist á heila
og misnotaði drengi
Sigurbjörn Sævar Grétarsson, lögreglumaður og sturtuvörður
frá Patreksfirði, hefur verið dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir
glæpi sína gegn fimm ungum piltum í bænum. Sigur-
björn naut trausts meðal bæjarbúa á Patreksfirði, sem
hann rauf algerlega með
athæfi sínu.
Sigurbjöm hafði komið sér
vel fyrir í samfélaginu. Auk þess
að vera sturtuvörður í skólanum
og héraðslögreglumaður stjóm-
aði hann félagsmiðstöð bæjarins
og rak fréttavef. í starfi sínu sem
vefstjóri tók hann margar myndir
af bömum. Litið var upp til hans í
samfélaginu og bæði böm og
foreldrar treystu honum.
Sigurbjöm var ákærður fyrir að
hafa brotið samanlagt allt að 67
sinnum gegn fimm drengjum á
aldrinum 12 til 14 ára á árunum
2002 til 2003. Hann var loks
handtekinn í desember 2003 og
fluttur til Reykjavíkur.
Þóttist vilja fræða þá
Aðferðir Sigurbjöms við að tæla
drengina vom þær að hann reyndi að
fræða þá um kynþroskann og kynlíf.
Drengirnir vom á viðkvæmum aldri
og litu upp til Sigurbjöms, enda var
hann forstöðumaður félagsmið-
stöðvarinnar. Hann sýndi þeim klám-
myndir og reyndi á kerfisbundinn
hátt að gera þá móttækilega fyrir kyn-
mökum. Fór það eftir viðnámsþrótti
drengjanna hversu langt hann náði,
að mati dómsins. Sigurbjöm sýndi
einum drengnum klámmyndir af
ungum drengjum og fullorðnu fólki
og reyndi að toga niður um hann bux-
umar. Þá fróaði hann drengjunum og
hafði munnmök við þá. Þá kyssti
hann einhveija þeirra og setti tung-
una upp í þá, auk þess sem hann
myndaði kynfæri eins þeirra.
Heilaskaði
Sigurbjöm afsakaði hegðun sína
með því að hann hefði skaddast á
heila í slysi, en hann hafði lítið getað
FÓLKIÐ
STI
starfað um nokkurt skeið eftir að tán-
ingar réðust á hann. Vottorð geðlækn-
is, sem er stutt af taugasálfræðilegri
rannsókn, sýnir
fram á að hann
varð fyrir
heilaskaða. En
dómurinn taidi
ekki að sá
heilaskaði hefði
breytt kynhneigð
hans eða gert
honum ómögu-
legt að hemja
hvatir sínar. Hann
þykir ekki eiga sér
neinar málsbætur.
Sigurbirni var
gert að greiða
drengjunum
Forsíður DV DVskýrði frá þvf
9. desember f fyrra að rannsókn væri
hafin á glæpum Sigurbjörns Sævars.
Sagt var frá húsakaupum Sigurbjörns i
Mosfellsbæ á forsföu DV 22. nóvember sl.
fimm samtals rúmlega 2,4 milljónir
króna með vöxtum. Verjandi hans,
Gylfi Thorlacius, fær 850 þúsund.
Býr við leikskóla
Sigurbjöm Sævar er fæddur og
uppalinn á Patreksfirði. Hann er
kvæntur en bamlaus. Nýverið flutti
hann ásamt eiginkonu sinni í einbýl-
ishús í Mosfelisbæ, sem er staðsett
um 10 metrum frá leikvelli. Hann gaf
lítið fyrir áhyggjur íbúa Mosfellsbæjar
og sagði: „Það verður þá bara að vera
þannig."
Héraðsdómi Vestfjarða stóð til
boða að dæma hann til 12 ára fangels-
isvistar vegna brota hans gegn fyrstu
málsgrein 202. greinar almennu
hegningarlaganna.
jontrausti@dv.is
w
Sigurbjörn Saevar Hinn 31 árs gamli Sigurbjörn var
mtkils metinn á Patreksfirði. Myndin er fengin afvefn-
um sem Sigurbjörn stjórnaði áður en hann var hand-
tekmn. Vefurinn er nú íhöndum annarra aðila
Deilt um nýja fjárhagsáætlun í bæjarstjórn
Sóttvarnarlæknir segir inflúensuna komna
Reykjanesbær fellir
niður ferðastyrki
Meirihluti sjálfstæðismanna í
Reykjanesbæ samþykkti á þriðju-
dagskvöld að fella niður
/ ferðastyrki til nemenda á
i framhalds- eða háskóla-
stigi. Er það hluti fjárhag-
áætlunar næsta árs.
Súar Samfylking-
amsóknarflokks
minnihlutanum
:u sig ekki við
iurfellingu
srðastyrkja og
I Árni Sigfússon bæj-
I arstjóri í Reykjanes-
I bae Vill ekki veita nem-
I endum ferðastyrki.
mótmæltu kröftuglega á fundinum. í
bókun þeirra er sú ákvörðunin sögð
mikil afturför og til þess failin að
skerða möguleika ungs fólks sem vilji
búa í Reykjanesbæ en stunda nám í
Reykjavík.
„Hætt er við að ungt fólk hætti við
nám eða flytji úr sveitarfélaginu,"
segja fulltrúar minnihlutans.
Sjálfstæðismenn felldu tillöguna
um að halda ferðastyrkjunum. í bók-
un þeirra segir að kostnaður við
ferðastyrkina hafi stefnt í 10 milljónir
króna á næsta ári, erfitt hafi verið að
halda utan um verkefnið og ólíklegt
að ferðastyrki geri „gæfumuninn fyr-
ir nemendur sem velja framhalds-
nám utan svæðis en búa í Reykjanes-
bæ."
Inflúensufaraldur hefst
íjanúar
„Það er búið að greina fyrsta tilfellið
af inflúensu A hér í Reykjavík," segir
Haraldur Briem sóttvamarlæknir sem
telur að búast megi við að bráðlega
hefjist inflúensufaraldur á landinu.
„Ég reikna með að þessi faraldur
hefyst í janúar. Hann ætti að gangayfir
á nokkrum vikum. Flensunni fylgir hár
hiti, höfuðverkur, hálssærindi, bein-
verkir og annað. Þetta kemur allt í einu
yfir fólk og það verður voðalega mikið
veikt. Yfirleitt liggur fólk í nokkra daga
og allt upp í viku tíma," segir Haraldur.
Mælt er með að fólk í áhættuhóp-
um, eins og aldraðir, lungnasjúklingar
og fólk með hjarta- og æðasjúkdóma
láti bólusetja sig.
„Sumir vinnustaðir bjóða upp á
Haraldur Briem sóttvarnarlæknir Segir
að fólk í áhættuhópum eigi að fara í bólu-
setningu.
bólusetningar en annars sjáum við
ekki tilefni til að fá alla í bólusetn-
ingu. Við myndum kannski gera það
ef það kæmi vondur inflúensustofn
og við hefðum gott bóluefni. Á
hverju ári eru yfir 50 þúsund manns
bólusettir og það dregur alltaf úr
kraftinum í flensunni. Annars eru
alls konar pestir í gangi sem koma á *
hverjum vetri."