Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2005, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2005, Page 8
^★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★^ www.gitartnn.is STÓRHÖFÐA 27 -SÍMI: 552 2125 gHarinn@gitarinn.is . Trommusett með öllu, ásamt kennslu- myndbandi og æfingaplöttum á allt settið. Rétt verð 73.900. - Tilboðsverð 54.900. - ÞJÓÐLACAGÍTAR: KR. 14.900,- M/ POKA. Ól, STILLIFIAUTU OC NÖCl ÞJÓÐLAGAGÍTAR: KR. 17.900.- M/ PICK-UP (HÆCT AÐ TENGJA I MAGNARA) M/OUU AÐ OFAN, KLASSÍSKUR GÍTAR FRÁ KR. 9.900.- Janúarútsalan í fullum gangi RAFMAGNSSETT: KR. 27.900.- (RAFMACNSGÍTAR - MAGNARl - POKl - KENNSLUBÓK - STILLIFLAUTA - CÍTARNEGLUR OG 1 SNÚRUR!!!!) * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * * Vandað leðursófasett með bycast áferð 3+2+1 Verð aðeins kr. 229.000.- Verö áÖur kr. 289.000,- 3+1+1 Verð aðeins kr. 198.000.- verðáðurkr.249.000. ^o^utand/ Vandaður homsófi með slitsterku áklæði M/áklæði verð aðeins kr. 129.000.- EmoSo.. M/leðri verð aðeins kr. 159.000.- CSjhúsqöqn Ármúla 8 - 108 Reykjavfk i Sfmi 581-2275 1568-5375 ^ Opið virka daga10-18 Laugard 11-16 - Sunnud. 13-16 dagar — ; VV^‘f ' Helgarblað DV Ingunn Björnsdóttir, sigurvegari á alheimsmælikvarða í áskoruninni Líkami fyrir lífið, segir keppnina hafa breytt lífi sínu. Ingunn er alsæl með árangurinn og hefur ekki enn kom- ið niður á jörðina eftir að hafa heyrt úrslitin. Þrátt fyrir að áskoruninni sé lokið ætlar hún að halda áfram að passa upp á mataræðið og æfa enda hefur hún tekið upp nýjan lífsstíl. Fyrsl ég gat þetta, geta hað alllr Ég var í rusli og hafði enga trú á sjálfri mér. Allt sem ég gerði mistókst og að lokum hafði ég fengið nóg. „Þetta er of gott til að vera satt,“ segir Ingunn Bjömsdóttir sem sigraði í sfnum flokki í alheimsáskoruninni Líkami fyrir lífið. Ingunn stóð sig með glæsibrag og losaði sig við 30 kíló, fyr- ir utan allan vöðvamassann sem hún bætti á sig. „Ég er ekki enn komin niður á jörðina, maður er búinn að vera í allsherjargeðsveiflu, hoppandi, skælandi og hlæjandi til skiptis. Ég varð bara alveg kjaftstopp." Ingunn var að æfa í rólegheitum þegar hún heyrði öskrað að hún hefði sigrað. „Ég vissi að ég væri komin í fjögurra manna úrslitin og hafði sætt mig við fjórða sætið en þetta er frá- bært. Þetta er mikið pepp fyrir mig og nú er bara að halda áfram að æfa, vinna, borða og sofa og reyna að njöta lífsins þess á milli." Sigurvegari „Ég er ekki enn komin niður á jörðina, maður er búinn að vera I allsherjar- geðsveifiu, hoppandi, skælandi og hlæjandi til skiptis,"segir Ingunn ánægð. Var alltaf búttuö Svona leit Ingunn út áður en hún ákvað að gera eitthvað i málunum. Nokkrum mánuöum siðar var hún svo komin i áskorunina Llkami fyrir llfíð. Var komin með nóg Holdafar Ingunnar og andlegt ástand hennar voru ekki góð áður en hún ákvað að taka málin í sínar hendur. Sjálfstraustið var í molum og hún þjáðist af verkjum um allan skrokkinn. „Ég var í rusli og hafði enga trú á sjálfri mér. Allt sem ég gerði mistókst og að lokum hafði ég fengið nóg. Ég nennti þessu ekki lengur og var staðráðin í að láta þetta takast," segir Ingunn og bætir við að hún haf! fengið sér einka- þjálfara enda hefði henni aldrei tekist þetta einni. „Jóhann Ingi Stefánsson er bú- inn að vera þvílíkur klettur með mér og peppaði mig upp í að skrá mig í áskorunina. Þá hafði ég þegar losað mig við 17 kíló og fannst snið- ugt að hafa áskorunina sem gulrót. Ég hafði fylgst með árangri annarra og ákvað að slá til og þegar ég byrj- aði á áætluninni svínvirkaði hún. Ég held að það sé þó einstaklings- bundið hvort fólk þurfi einkaþjálf- ara til að fara eftir þessu pró- grammi en í mínu tilfelli var það eina ráðið. Ég er ekki með nógu mikinn aga og er ofboðslegur sæl- keri. Matur er það besta sem ég fæ og það gerist náttúrulega ekki neitt ef maður er að svindla í tíma og ótíma. Bókin, Líkami fyrir h'fið, út- skýrir þetta samt mjög vel enda er hún biblían mín.“ Tók áskorunina með trukki Ingunn segist hlakka til að sjá hin- ar konumar sem komust í úrsÚtin og hvað það er sem hún hefur fram yfir þær. Hún veit ekki með vissu hversu margar hún keppti við en veit að þær telja þúsundir ef ekki tugþúsundir. Eftir að henni hafði verið tilkynntur sigurinn voru verðlaunin tahn upp en vegna geðshræringar náði hún aðeins hluta af þeim upplestri. Allavega fær hún um það bil eina og hálfa milljón í peningum, leðurjakka, fæðu- bótarefni og gullarmbandsúr. „Ég var alsæl með að komast í 10 manna úrslit á heims- mælikvarða og fannst ekki hægt að biðja um meira. Keppnishaldaramir vom líka hissa á að þarna úti á þessu litla skeri væri ein- hver lítil fi'gúra sem tæki allt með trukki." Ekki feit - bara mjúk Ingunn segist ætla að halda áfram á sömu braut enda hafi hún algjörlega breytt um lífsstíl „Ég tók 180° beygju. Nú stunda ég ekki lengur síát heldur borða litlar máltíðir sex sinnum á dag og æfi á hverjum degi. Þar sem ég starfa með mat allan daginn var of- boðslega erfitt að Ég nennti þessu ekki lengur og var stað- ráðin í að láta þetta takast. hætta að narta enda var ég alltaf að borða mig sadda í tíma og ótíma. Ég hefði aldrei getað trúað því að ég gæti verið í svona góðu formi. Ég hef verið í þéttari kantinum síðan ég man eftir mér og það tók vini og ættingja langan tíma að venjast nýja útlitinu. Þeim þótti bara eðli- legt að ég væri búttuð. Mér bregður líka þegar ég sé myndir af mér síðan fyrir tveimur árum en þá hugsaði ég með mér að ég væri ekkert feit heldur einungis mjúk. Nú gæti ég hins vegar ekki haft það betra og veit að fyrst ég gat þetta þá geta þetta allir." indiana@dvh Ingunn Björnsdóttir Ingunn sigraði / sinum fíokki en hún keppti við tugi kvenna út um allan heiminn. Verðlaunin eru ekki afverri endanum enhún fær meðal annars um eina og hálfa milljón ípeningum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.