Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2005, Síða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2005, Síða 54
54 LAUGARDAGUR 75. JANÚAR 2005 Fréttir DV Skál í botn - reykingar bannaðar! Þegar ég var að byrja að skemmta mér fyrir, hvað - á tíma þegar staður sem hét Tjarnarbúð var vinsælastur - voru skemmtistaðir opnir til klukk- an eitt á föstudögum og tvö á laugar- dögum. Það var framfylgt reglu um að allir yrðu að vera komnir inn á staðina klukkan hálftólf - annars mátti ekki hleypa þeim inn. Ef þeir fóru út komust þeir ekki inn aftur. Það var bannað að veita áfengi á miðvikudögum, þá skyldu menn undanbragðalaust láta renna af sér. Það var einnig forboðið að selja áfengi á veitingahúsum milli tvö og sex á daginn. Þeir sem vildu drekka á þeim tíma urðu að ná samkomulagi við þjónustufólkið um að fá vín framborið f kaffibollum eða tekönn- um. Á stöðum þar sem þetta tíðkað- ist var oft glatt á hjalla sfðdegis. Léttvínsbyltingin Það þarf ekki að taka fram að bjór var ekki á boðstólum. Það var heldur ekki lenska að veita léttvín nema með mat. Slíkir matsölustaðir voru yfirleitt ekki nema á hótelum - þannig drakk fólk ekki léttvín nema á stöðum þar sem var hægt að sofa yfir nóttina. Svo fór h'til hola á Hring- brautinni, Stúdentakjailarinn, að selja Matteus-rósavín án þess að maður þyrfti að kaupa mat með. Þetta var mjög umdeilt - en það hét einu orði „léttvfnsbyltingin". Á áfenginu hvíldi bannhelgi. Þetta var mestanpart forboðin vara, ilia séð af samfélaginu. íslendingar höfðu neyðst til að aflétta vínbanni fyrr á öldinni, en aðeins vegna þess að viðskiptaþjóðir í Suður-Evrópu Laugardagskj allari neyddu okkur til þess. Meirihluti stjórnmálamanna hafði horn í sfðu áfengis - að minnsta kosti opinber- lega. Vín var selt í ljótum, ffáhrind- andi flöskum, því var pakkað inn í brúna bréfþoka. Áfengisverslanirnar voru eins og vanhelgir staðir, vör- unni var ekki stillt upp, fúlir karlar í löggulegum einkennisskyrtum réttu hana ólundarlega yfir borð. Það mynduðust langar biðraðir á föstu- dögum - allt var gert til að takmarka aðgengið. Búðunum var skellt í lás klukkan sex. Jón Ásgeir fær ekki áfengis- söluna Eitt hefur svosem ekki breyst - áfengisverðið. Hugsunin bak við það er enn sú að draga úr neyslunni. Hins vegar hefur flest annað verið breytingum undirorpið. Áfengis- verslanir eru núorðið þægilegir stað- ir að koma í, starfsmennirnir eru skapgóðir, leiðbeina fólki um val á drykkjum. ÁTVR er jafnvel farið að auglýsa, opnunartímar hafa verið sveigðir að þörfum viðskiptavin- anna. Það gæti verið stutt í að áfeng- issala yrði gefln frjáls að einhverju leyti. Ekki er ósennilegt að þing- meirihluti sé fyrir því. Kannski er það eina sem stendur í veginum óvildin milli Baugs og Sjáifstæðisflokksins - sem óttast afleiðingar þess að af- henda Jóni Ásgeiri og co. áfengissöl- una í landinu. Þannig hefur aðgangur að áfengi orðið miklu auðveldari á síðustu árum - á sama tíma og farið er að þrengja að þeim sem hætta lífi sínu með tóbaksreykingum eða ofneyslu matar. Reykingamenn og ofætur uppskera vorkunnsemi blandna fýrirlitningu í fjölmiðlum, meðan áfengisneytendur eru eins og fi'nir menn, drekka eðalvín af sérlistum, geta vahð úr ótal tegundum af bjór og gosdrykkjum með áfengi út í, skrifa í blöð um áhugamál sfn. Mikið af þessu er auglýst leynt og ljóst - vín- og bjórsmökkun er staðlað dagskrárefni í magasinþáttum sjón- varpsstöðva. Ekki sæi maður neinn svæla sig í gegnum mismunandi sortir af sígarettum í sjónvarpinu. Komu vinstrimenn með frels- ið? Fyrir nokkrum árum skrifaði ég pistil á netið um frjálsræðisvæðingu í skemmtanah'finu. Mér varð á að segja að það hefðu mestanpart verið vinstrimenn sem stóðu fyrir henni. Ungir sjálfstæðismenn urðu mjög sárir - hringdu í mig unnvörpum. Samt held ég að það sé svoh'tið til í þessu, þótt kannski hafi andi frelsis- ins upprunalega verið kominn frá Sjálfstæðisflokknum eins og mér var bent á. Opnunartími skemmústaða var lengdur til klukkan 3 þegar Stein- grímur Hermannsson var dóms- málaráðherra í stjóm Gunnars Thoroddsen. Bjórinn var leyfður 1989, þá sat vinstri stjórn Steingríms. Hún beitú sér kannski ekki fyrir þessu - en stöðvaði máhð ekki held- ur. Pylsuvagn - já, það var líka skref í frjálsræðisátt að leyfa það - fékk að hafa opið á nótúnni í Austurstræú á ú'ma vinstri meirihlutans 1978-1982. Það var svo á öðm kjörúmabili R- hstans að opnunartími veitingahús- anna í bænum var mestanpart gefinn ffjáls. Alþjóðleg áfengisvæðing En auðvitað er þeúa ekki svona einfalt - við skulum ekki offneta völd pólitíkusa. Þeúa er partur af alþjóð- legum straumum. Tímartitið The Economist gerir þetta að umfjöliun- arefni í nýjasta hefti sínu. Útkoman úr neysluú'sku síðustu ára er dáh'tið ein- kennileg - að maður segi ekki hræsn- isfull. Rétthugsunin í samfélaginu hefur eytt kröftunum í tóbaksvá - og nú oftitu - en áfengið hefur mestan- part verið látið í ffiði. Það er stutt í að reykingar verði að miklu leyti bann- aðar á almannafæri, en tæplega er að vænta neinna aðgerða gegn áfengis- drykkju. Þvert á móti. Skýringanna er að nokkm leyti að leita í borgarskipulagi. Miðborgum fór mjög að hnigna á áttunda og m'- unda áratugnum. Verslanir fluttu úr miðbæjunum - þeir dröbbuðust nið- ur. Eitthvað varð að gera til að bjarga þeim, fá fólk þangað aftur. Þá hófst allsherjar skemmtistaðavæðing miðborganna, slakað var á alls konar reglum, þeir fylltust smátt og smátt af veitingahúsum og krám. Og jú - fólkið fór að koma aftur. Opnunartími gefinn frjáls í Bretlandi Jafnframt myndaðist þrýstingur á að gera reglurnar enn ffjálslegri. Þeir sem hafa komið til Bretlands þekkja hin ströngu lög sem þar hafa verið um opnunartíma pöbba. Fólki er varpað út klukkan 11, þá liggur leið- in oft í nokkuð vafasama klúbba. Þetta er gamalt regluverk - hugsunin er sú að fólk, ekki síst erfiðisvinnu- menn, geti mætt í sæmilegu lagi í vinnu morguninn eftir. Nú er verið að breyta þessu, ekki síst fyrir áeggjan bæjarstjórna. Opn- unartími pöbba verður geflnn frjáls. Þetta mæhst misjafnlega fyrir - sam- kvæmt skoðanakönnunum virðist almenningsáhtið fremur vera að snúast gegn þessu, líka í bæjarhlut- um sem byggja á fjörugu skemmt- analífi. Economist bendir á að áfengi eigi þátt í 40 prósentum allra ofbeld- isglæpa. Hér á landi er hlutfalhð lík- lega hærra. Brennivínið hefur í för með sér ótal eyðilögð h'f, sjúkdóma, sorg og dauða. Blaðið segir líka að þótt bæjarstjórnir vilji aukið ffelsi í áfengismálum, þá sé það oftast nær ríkið sem þurfi að borga fýrir afleið- ingar ofdrykkjunnar - ekki síst aukna löggæslu. Fíkniefni Vesturlanda Áfengi er náttúrlega hið lög- leidda fíkniefni Vesturlanda. Það dettur í rauninni engum í hug að banna það - og það er heldur engin alvara á bak við hugmyndir um að leyfa fíknieftii sem vel gæti hugsast að séu minna hættuleg en áfengi. Þetta eru kverúlantaskoðanir. Áfengi er inngróið í menningu okk- ar - við sækjum eftir örvun þess, það gerir okkur úthverf, óhkt kannabisi sem veldur því að maður hverfist allur inn á við. Hass er hægt að leyfa gegn augnsjúkdómum og til að gera breskar fótboltabullur skaðlausar - annars helst ekki. Drykkjusiðirnir hafa heldur ekk- ert breyst þótt drykkjan dreifist á lengri tíma. Hún er ennþá með þessu þunglyndislega norræna sniði. Keppendur í Amazing Race voru hissa á að sjá unga íslendinga á fylleríi þegar þeir stigu út úr morgunvél í Keflavík. Túristar hér fara að fá sér morgunkaffi innan um fólk sem er enn að skemmta sér á fullu - oft orðið ræfilslegt og öm- urlegt á að horfa. Það er satt að segja dálítið óvenjulegt að fjöldi skemmtistaða sé opinn til sjö eða átta á morgnana inni í miðri borg. Ég man altént ekki eftir því að hafa komið á slíkan stað. Fíkniefni á skemmtistöðum Ég bý í miðbænum. f næstu göt- um gengur fólk um öskrandi á nótt- inni. Ég er sem betur fer í skjóli við það. Vinur minn sem býr nær sollin- um segir að margir séu vitstola þegar h'ður að morgni. Strætin eru eins og yfirgefinn vígvöllur á morgnana. Það er talað um að þetta sé knúið áfram af fíkniefnaneyslu, að það þyki sjálf- sagt að fólk hópist inn á salerni skemmtistaðanna til að setja í sig dóp. Annars hafi skemmtanaftklar varla svona mikið úthald. Að minnsta kosti virðist vera nógu eftir- sóknarvert að flytja hér inn spítt og kókaín. (Sérfræðingur í þessum mál- um sýndi mér reyndar eitt sinn línu- rit, þar kom ffam að dópneyslan hér var nákvæmlega samhverf því sem ti'ðkaðist í Ástrah'u; fíkniefnakúltúr kemur semsagt og fer í líki tísku- bylgja sem ganga um heiminn.) Konan mín fór að skemmta sér með vinkonu sinni í fyrra - þær nálg- ast það að h'ta út fýrir að vera full- orðnar konur - ungur maður tók sig til og æfði karatespark á hausnum á henni. Hann var að reyna að sníkja af henni sjúss. Löggan var ekki alveg viss um að það væri sniðugt að kæra. Tóbakið verður hreinsað út af skemmtistöðunum en áfengið verð- ur eftir. Meðan eru bæirnir þó ekki alveg dauðir. Á áfenginu hvíldi bannhelgi. Þetta var mestanpart forboðin vara, illa séð af samfélaginu. fslendingar höfðu neyðst til að aflétta vínbanni fyrr á öldinni, en aðeins vegna þess að viðskiptaþjóðir í Suður-Evrópu neyddu okkur til þess. Egill Helgason veltir fyrir sér þróuninni I miðbænum. wmm wm FJOLSKYLDUTILBOÐ IIMj Stórhöfða 17 • Suðurlandsbraut 6 • Hlíðasmára 12 Pöntunarsími 588 989*? Djúpsteiktar rækjur með súrsætri sósu Svínakjöt og grænmeti í Drekasósu Kjúklingur og grænmeti í Satay hnetusósu Eggjanúðlur með eggjum og grænmeti Hrísgrjón og soya sósa iv.1245 0490 Ath! THboðin eru eingöngu afgreidd fyrir 2 eða fleiri Ef þú hringir og sækir fylgir 21. Coke með tilboðinu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.