Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2005, Qupperneq 8
8 LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 2005
Helgarblað DV
Fréttaskýring
í næsta mánuöi fer heimildarmyndin Inside Deep Throat í almenna dreifingu i Banda-
ríkjunum. Myndin var frumsýnd á Sundance-hátiðinni og mikið er rætt um hana í Hollywood þessa dag-
ana. Meðal þeirra sem koma fram eru Harry Reems, sem er annar aðalleikarinn, ásamt fólki á borð við
Gore Vidal, Norman Mailer, Erica Jong og John Waters. Þulur er Dennis Hopper.
Fasteignasalinn Harry Reems lifir kyrrlátu og rólegu lífi í Park
City í Utah, Bandaríkjunum. Hann auglýsir starf sitt aðeins með
einni línu í símaskrá borgarinnar.
Ef þú slærð hinsvegar nafn hans
inn á Google-leitarvélina færðu tæp-
lega 100.000 slóðir á innan við 0.10
sekúndum. Ekki slæmt fyrir heima-
kæran fasteignasala sem býr við
hljóðláta götu. Nema að slóðimar
vísa allar á mjög fræga klámmynda-
stjörnu og hafa ekkert að gera með
fasteignasölu. Og allt í einu hringja
bjöllur: Harry Reems, Linda
Lovelace, Deep Throat.
f næsta mánuði fer heimildar-
myndin „Inside Deep Throat" í al-
menna dreifmgu í Bandaríkjunum.
Hún var frumsýnd á Sundance-há-
tíðinni fyrr í þessum mánuði og vakti
mikla athygli. Mikið er um hana rætt
í Hollywood þessa dagana og talið er
að hún muni slá aðsóknarmet heim-
ildarmynda Michaels Moore þar
í landi. Harry Reems er í stjörnu-
hlutverki í heimildarmyndinni
en auk hans koma fram í henni
fólk á borð við Gore Vidal, Norm-
an Mailer, Erica Jong og John Wa-
ters. Þulur myndarinnar er Denn-
is Hopper. Myndin er ffamleidd
af Brian Grazer sem vakti athygli
fyrir mynd sína „A Beautiful
Mind" og skrifuð af þeim Fenton
Bailey og Randy Barbato sem oft |
hafa komið við sögu á Sundance.
Kynlíf, dóp og rokk og ról
f dagblaðinu Park Record er
rætt við þennan þekktasta, eða al-
ræmdasta mann borgarinnar.
Hann staðfestir það að víst sé hann
maðurinn sem allir þekktu í upp-
hafi áttunda áratugarins. Og þó að
hann sé opinn um þátttöku sína í
„hippahreyfingunni í East Village"
og að hafa náð miklum árangri í
klámmyndabransanum, er hann
fljótur að loka á spumingar um smá-
atriðin. „Allir vilja að ég tali um kyn-
líf, dóp og rokk og ról. En það er ekki
sagan sem ég vil segja," segir Reems.
Síðustu 18 árin hefur Reems alls ekki
viljað tala um fortíð s£na nema í kirkj-
um eða í stuðningshópum fyrir alkó-
hóhsta á batavegi. „Mín saga er um
bata, árangur og fyrirgefningu," segir
hann í samtalinu við Park Record.
Fékk tvo bjórkúta í 16 ára af-
mælisgjöf
Reems var skírður Herb Stryker.
Faðir hans var veðmangari en móðir-
in fýrirsæta og titilhafi í jitterbug-
dönsum. „Þau drukku bæði mikið og
vildu að ég hefði gaman af lífinu. Á16
ára afmæli mínu gaf faðir minn mér
tvo bjórkúta í afmælisgjöf," segir
Reems og bætir því við að kannski
hafi þau ekki verið bestu uppalendur
sem hann átti völ á „en þau gerðu sitt
best og ég elska þau innilega." Eftir
menntaskóla skráði Reems sig í land-
göngulið flotans en fékk lausn frá
hermennsku eftir að faðir hans veikt-
ist hastarlega og Reems þurfti að sjá
fyrir fjölskyldunni. Hermennsku-
kaupið notaði hann svo til að skrá sig
í leiklistarskóla.
Aukahlutverk í klámmyndum
Að sögn Reems var hann byrjaður
að ná árangri í leiklistinni þegar hann
fór að taka að sér aukahlutverk í
klámmyndum til að láta enda ná
saman og eiga í matinn. Árið 1972
bauðst honum lilutverk sem léttrugl-
aður læknir, í blárri ræmu um konu
með snípinn á röngum stað. Hann
fékk borgaða 100 dollara fyrir eins
dags vinnu og hefði sennilega gleymt
þessu hlutverki fljótlega nema að
myndin, sem um ræðir, var „Deep
Throat" sem varð költ-mynd um leið
og tákn kynlífsbyltingarinnar sem þá
var að hefjast. Hún gerði
DeeDThroat Myndin erenn til soiu hja
ýmsum klámmyndaframleiöendum en hun
er í hópi aðsóknarmestu mynda sogunna .
Reems heimsfrægan á einni nóttu og
hann fór að lifa lífi hinna ríku og
frægu. Myndin aftur á móti er ein sú
aðsóknarmesta í sögu kvikmynd-
anna.
Skiptar skoðanir
„Ef þú varst undir þrítugu fjallaði
myndin um frjálsar ástir en ef þú
varst yfir þrítugu var myndin hrein
klámmynd. En allt í einu voru klám-
myndir gjaldgengar á markaðinum.
Johnny Carson fór að sjá hana og tal-
aði um hana," segir Reems. En
myndin féll ekki öflum í geð. Nixon
var við völd og barðist gegn fólki sem
vildi vísa honum úr Hvíta húsinu.
Herinn var enn í Víetnam og friðar-
sinnar mótmæltu stríðinu og ein-
hvem veginn varð „Deep Throat" lín-
an sem dregin var í sandinum á milli
þessara ólíku fylkinga. Myndin var
bönnuð víða um Bandaríkin og farið
var í mál gegn þeim sem stóðu að
henni. Reems var einn af sakboming-
unum í réttarhaldi um myndina í
„Myndin skapaði líf
mitt eins og það er. Ég
sökk svo djúpt að ég
þurfti að biðja um
hjálp. Og þar með
kynntist ég hinni and-
legu hlið á lífinu."
Memphis. „Reems er hin raunveru-
lega hetja í sögunni," segir Barbato.
„Hann var sakfelldur fyrir að dreifa
klámfengnu efni og er eini leikarinn í
sögunni sem hlotið hefur slflcan
dóm."
Hætti árið 1980
Reems hætti í klámmyndabrans-
anum árið 1980 en lét ekki af þeim
lífsstfl sem hann hafði tamið sér.
Hann segir sjálfur að þegar hann
flutti til Park City árið 1986, hafi hann
verið virkur alkóhólisti sem rúllaði
um í rennisteininum. „Ég var kominn
á botninn og í stöðugu óminni. Eitt
sinn fór ég á drykkjutúr í Park City og
endaði í Los Angeles án þess að hafa
hugmynd um hvað gerðist þar á
milli," segir Reems. Áfengisfflcnin
var svo sterk að eitt sinn er hann
kom úr mánaðardvöl á sjúkrahúsi
vegna drykkju, fór hann beint í
næstu vínbúð og keypti sér flösku.
Drykkja hans hætti ekki fyrr en
hann vaknaði upp í handjámum
aftan í lögreglubfl hjá lögreglu-
manninum Bmce Bennion. „Bmce
sagði mér að ég hefði enga hug-
mynd um hve mikla hjálp ég gæti
veitt öðrum. Það var í fýrsta sinn
sem einhver sagði mér að ég gæti
hjálpað öðrum. Og ég hugsaði að
kannski væri ég ekki sá algeri aum-
ingi sem ég hélt að ég væri."
Myndi gera þetta allt aftur
Harry Reems hefur síðan eytt
töluverðum hluta af lífi sínu í að
hjálpa öðrum alkóhólistum og frá
1990 hefur hann verið hamingju-
samlega giftur konu sinni, Jeanne
Street. Hann segir að hann sé
ánægður með útkomuna í „Inside
Deep Throat", þetta sé ekki mynd
um hann, heldur um þau áhrif sem
„Deep Throat" hafði á menningu
Bandaríkjamanna. Aðspurður um
hvort hann myndi taka 100 dollara
boðinu aftur ef það væri borið upp
segir hann hiklaust já. „Ég myndi
gera saman hlutinn. Myndin skap-
aði líf mitt eins og það er. Ég sökk
svo djúpt að ég þurfti að biðja um
hjálp. Og þar með kynntist ég and-
legu hliðinni á lífinu," segir Reems.
Hann telur að á heildina litið hafi
„Deep Throat" haft meiri jákvæð
áhrif á mannlífið en neikvæð. „Kyn-
hegðun okkar og líkamar eiga að
vera til umræðu. Og hvað er betra
en sannleikurinn, sannleikurinn
um kynhegðunina, sannleikurinn
um oldcur sjálf," segir Reems.
Klámmyndir Að sögn Reems var hann byrjaöur aö ná árangri íleiklistinniþegar hann fór að
taka aö sér aukahlutverk íklámmyndum til að láta enda ná saman og eiga í matinn.
Linda Loveface Linda Lovelace
varð ef eitthvaö frægari en
Reems fyrir hlutverk sitt l„Deep
Throat‘‘en hún léstáriö 2002.
Harry Reem sHérmeð
Lindu Lovelace er hann finn
ur hvar hún hefur snípinn.