Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2005, Side 25
DV Helgarblað
LAUGARDACUR 29. JANÚAR 2005 25
Abraham litli fæddist andvana en var
svo lánsamur að eigandi hans gafst ekki
upp við að koma í hann lífi. Tuttugu
mínútum eftir fæðingu gerðist krafta-
verkið, sá stutti tók andann og tísti.
„Við vorum alveg búin að afskrifa
hann en allt í einu tók hann kipp í
höndunum á mér og fór að anda,“
segir Jón Guðjónsson sem kom lífi í
sjáanlega dauðan hvolp eftir að móð-
ir hans Fiona, lítii Chihuahua-tík í
eigu konu hans Öldu Stangeland,
hafði verið skorin keisaraskurði þar
sem hún gat ekki fætt einn hvolp.
„Hann var augljóslega dauður og
ekki möguleiki að koma lífi í hann
þegar hann fæddist. Ég varð alveg
miður mín að koma heim með tíkina
en engan hvolp og tók hann því upp
og fór að nudda hann og reyna að
blása í hann lífi. Og viti menn, allt í
einu tók hann andköf og fór að tísta.
Helga Finns dýralæknir trúði ekki
sínum eigin augum þegar hún sá að
hann var á lífi og það sem meira er
að hann var með annað augað opið
þegar við fæðingu," segir Jón.
Abraham kraftaveiK„kall með opin auqu
WiWpui I.X’ðast bljndit, opng eHd augu h ,, «,
'() 11 ditgO' Abrahom ,u mrO annað auaaft nni,)
wO LaC'ingu ol) opnodi am tveimurdogum sidar.
Trúðum ekki að hún væri
með hvolpa
Jón og kona hans Aida eiga fleiri
hunda en Fionu sem átti ekki að eiga
hvolpa en fyrir algjör mistök varð
hún hvolpafull. Jón segir hana svo
litla að þau hafi ekki treyst henni til
þess að ganga með og eiga þar sem
mikil hætta sé þegar tíkur eru svona
litlar að þær geti alls ekki fætt. Sú
varð raunin enda hvolpurinn stór.
„Það var þó ekki endilega þess vegna
heldur eiga tíkur mjög erfitt með að
fæða aðeins einn hvolp. Þeim er eig-
inlegt ff á náttúrunnar hendi að fæða
fleiri og þegar hvolpur er aðeins
einn þá er þrýstingurinn ekki nægur
og þessi eini hvolpur nær ekki að
skila sér á eðlilegan hátt. Því fórum
við með hana til Helgu Finns þegar
ljóst var að hún myndi ekki geta fætt
og Helga skar hana," segir Jón.
Ffona et mikil
mamma Litla
mamma átti alls
ekki að fæða
hvolpa en nátt-
úran tók völdin
oa Abraham
Það kom þeim Jóni og Öldu al-
veg í opna skjöldu að tíkin skyldi
vera með hvolpa. Hún var skilin frá
karlhundinum á heimilinu og þau
eru helst á því að þau hafi náð sam-
an einhverju sinni þegar þau voru
ekki heima en synir þeirra gleymt
að gæta þess að þau væru í sundur.
„Við vorum með hana í megrun og
töldum hana vera að fitna svona.
Hún var svo langt gengin með þeg-
ar við áttuðum okkur á að hún var
einfaldlega hvolpafull,“ segir Jón.
Sáu tvo til fjóra hvolpa í
sónar
Því var farið með hana í sónar-
skoðun á Dýraspítalann í Víðidal og
þar var staðfest að líklega gengi hún
með 2-4 hvolpa. Það urðu því mikil
vonbrigði að fá aðeins einn sem
ekki virtist á lífi. Gleðin varð því
margföld þegar þessi eini hvolpur
var vakinn til lífsins og Jón kom
heim með litla gaurinn sem tveim-
ur dögum síðar opnaði hitt augað.
Hann þrífst vel hjá mömmu litlu
sem er frumbyrja og var fyrsta sól-
arhringinn dálítið ringluð yfir að
vera allt í einu komin með lítinn
hvolp sem hún mundi ekki eftir að
hafa fætt. Hún var eigi að síður fljót
að átta sig og er mikil mamma. Jón
segir að sá stutti, sem hefur fengið
nafnið Abraham, sé afar fallegur og
vel heppnaður og allt útlit fyrir að
hann eigi eftir að verða úrvals
hundur.
Sefur allar nætur í hári kon-
unnar
„Þessi tík var uppáhaldshundur
Öldu konunnar minnar og hún sefur
í hárinu á henni á næturna. Alda
hefur verið veik að undanförnu og
þetta kraftaverk hefur verið henni
mikill gleðigjafi þessa síðustu daga.
Það er líka yndislegt að fylgjast með
honum vaxa og dafna og afar sér-
stakt að sjá svona ungan hvolp með
opin augu. Við þorðum ekki annað
en setja dropa í augu hans fyrstu
dagana en það reyndist algjör
óþarfi. Hann er einfaldelga svona
bráðþroska, þessi litli kraftaverka-
kall,“ segir Jón alsæll með að hafa
getað nuddað h'fi í htla Abraham.
bergljot@dv.is
Utsdlunni
■ ÆT m m
lýkur I OaO!