Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2005, Blaðsíða 59
DV Fréttir
LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 2005 59
JJG > 556
Einn erföaprinsa Framsóknarflokksins, Björn Ingi Hrafnsson, hefur haft bíl í
eigu flokksins til umráða í tæpt ár. Björn var framkvæmdastjóri þingflokks
framsóknarmanna þar til haustið 2003 að hann gerðist aðstoðarmaður Halldórs
Ásgrímssonar í utanríkisráðuneytinu. Björn Ingi eignaðist loks bílinn fyrir
tveimur vikum.
20 milljóna
yfirdráttur
Yfirdráttarheimild
hjúkrunar- og dvalarheim-
ilsins Lundar á Hellu er nú
20 milljónir króna. Óskaði
heimilið eftir því við
hreppsráð Rangárþings
ytra að ábyrgð sveitarfé-
lagsins á yfirdrættinum
sem er á tékkareikningi hjá
KB banka yrði endurnýjuð.
Samþykkti hreppsráðið að
fimmtudag að fela sveit-
stjóranum að árita trygg-
ingarvrxil vegna þessa.
Pláss er fyrir 25 vistmenn á
Lundi.
Ákall til
þingmanna
Ráðherrann Val-
gerður Sverrisdóttir
á von á srmatali frá
sveitarstj óra Austur-
byggðar. Samherji
hyggst stöðva
vinnslu á fiski á
Stöðvarfirði, einum
byggðakjarna Aust-
urbyggðar. Samþykkt var á
fundi byggðaráðs sveitarfé-
lagsins á fimmtudag að
reyna að koma á fundi með
þingmönnum Norðaustur-
kjördæmis og sveitarstjórn
sem fyrst til að ræða stöð-
una. Sveitarstjóranum var
falið að hafa samband við
fyrsta þingmann kjördæm-
isins, Valgerði, til að koma
fundinum á.
Kaupa meira í
hörvinnslu
Sveitarfélagið Ölfus ætl-
ar að taka þátt í hlutafjár-
aukningu hörvinnslufélag-
inu Feygingu ehf. Eftir
nokkrar umræður um mál-
ið og andmæli Þórhildar
Ólafsdóttur bæjarfulltrúa
var samþykkt að kaupa ríf-
lega fimm milljón hluti í
Feygingu á genginu 2,0, eða
fyrir 10,2 miUjónir króna.
Fyrirvari var settur um að
markmið hlutafjárútboðs-
ins náist. „Ég hafna hluta-
^áraukningu í Feygingu
ehf., og legg til að hlutað-
eigandi leiti hlutafjár á al-
mennum hlutafjármark-
aði," lét Þórhildur bóka eft-
ir sér.
Banna
skemmtistað
Fellt hefur verið
úr gildi byggingar-
leyfi sem skipulags-
yfirvöld gáfú í des-
ember 2003 til þess
að innrétta
skemmtistað í Þing-
holtsstræti 5. Er
þetta niðurstaða úr-
skurðarnefhdar skipulags-
og byggingarmála eftir kæru
frá öðrum húseigendum í
grenndinni. Þess má geta í
þessu sambandi að nú ligg-
ur fyrir hjá borgaryfirvöld-
um ósk um að reisa hótel á
Þingholtstræti 3. Stendur til
að gera jafnvel innangegnt í
áðumeftit hús á Þingholts-
stræfi 3. Fasteignafélagið
Eik gerir ráð fyrir að í hótel-
inu verði 29 herbergi.
Meiri leynd í utanríkismálanefnd
Þingmenn fái fræðslu
um refsingu
Utanríkisráðanefnd mælist til
þess að formenn þingflokka láti
þingmenn vita að uppljóstrun á efni
funda nefndarinnar geti varðað refs-
ingu samkvæmt almennum hegn-
ingarlögum.
Nefndin samþykkti fyrir helgi
bókun þar sem hert er á reglum um
þagnarskyldu nefndarmanna. Að
mati nefndarinnar er allt sem fer
fram á fundum hennar trúnaðarmál
og mikilvægt að enginn utanaðkom-
andi aðili komist í upplýsingar um
starf hennar. Tekið er dæmi úr
fréttaskýringu í Fréttablaðinu þar
sem blaðamaður lætur í veðri vaka
að upplýsingar sem hann fékk hefðu
verið orðaskipti manna á lokuðum
fundi. I bókuninni segi að þær upp-
lýsingar sem fjölmiðlar hafa óskað
Sólveig Pétursdóttir
Formaður hinnar háleyni-
legu utanríkismálanefndar.
ítrekað eft-
ir undan-
farið verði
ekki veittar
vegna lög-
bundins
trúnaðar.
Meðal
þeirra
mála sem —
rædd hafa verið í utanríkismála-
nefnd er vera eða brottför banda-
ríska varnarliðsins á fslandi og
ákvörðun um aðild íslands að fraks-
stríðinu. Stjórnarandstaðan hefur
kvartað undan samráðsleysi í utan-
ríkismálanefnd í báðum þessum
málum, með þeim hætfi að upplýg,-
ingum hafi verið haldið frá stjórnar-
andstöðuþingmönnum.
Bretar hafa áhyggju af nýrri mafiu
Albanskir glæpamenn
ráða vændisheiminum
Scotland Yard telur að
albanskir glæpamenn
ráði nú yfir stórum hluta
af fíknieftia- og vændis-
heimi Bretlands. Bara í
Soho-hverfinu í London
ráða albanskir mellu-
dólgar nú yfir um 75% af
viðskiptunum. Lögreglu-
yfirvöld telja að þessi
nýja mafía í Bretlandi
hafi smyglað um 1.000
konum til landsins frá
Austur-Evrópulöndum.
Að sögn breska blaðsins The Sun
gaf fyrrum innanríkisráðherra Bret-
lands, David Blunkett, fyrir tveimur
árum út aðvörun vegna þessara
glæpamanna. „Skipulagðir glæpa-
hópar eru orðnir skipulagðari en við
erurn," sagði Blunkett þá.
Albanskir glæpahópar eru
nú orðnir útbreiddari og
finnast m.a. í borgum eins
og Liverpool, Manchester,
Hull, Glasgow, Edinburgh
og Cardiff. Þeir starfa eftir
reglum frá 15du öld sem
kallast Kanun. Samkvæmt
þeir er skylda að drepa
þann sem gerir eitthvað á
hlut þinn.
Glæpamenn þessir
koma tÖ Bretlands á fölsk-
um vegabréfum því þeir telja landið
paradís fýrir starfsemi sína. Þeir eigi
ekki í neinum vandræðum með að
skýla sér innan um ca. 30.000 Al-
bani sem komið hafa löglega til
landsins.
Vaendi Lögregluyfirvöld
telja að þessi nýja mafía i
Bretlandi hafi smyglað um
l.OOOkonum til landsins
frá Austur-Evrápulöndum.
Bjöm Ingi Hrafnsson teiur það ekki í frásögur færandi þótt
hann hafi ekið um á eina bílnum í eigu Framsóknarflokks-
ins. Þau hlunninndi hafi ekki verið mikil enda hafi hann
sjálfur greitt fyrir rekstur bílsins.
„Ég hef haft þennan bíl í láni
samkvæmt samkomulagi við
formann og framkvæmdastjóra
flokksins enda hef ég verið í alls
konar verkefnum fýrir hann,“ segir
Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðar-
maður forsætisráðherra. f tæpt ár
hefur Björn Ingi haft til umráða
Renualt Megane Scenic-fólksbíl
sem Framsóknarflokkurinn eign-
aðist 19. september árið 2003.
„Ég hef sjálfur greitt rekstur
bílsins svo þetta hafa ekki verið
mikil hlunnindi fyrir mig,“ segir
Björn Ingi, sem sagður er einn
erfðaprinsanna að valdataumum
Framsóknarflokksins.
Prúttaði ekki við flokkinn
Reunault-bíllinn skipti um eig-
anda fyrir réttum tveimur vikum,
þann 14. janúar síðastliðinn. Frá
því þá hefur Björn Ingi verið
skráður eigandi. Aðspurður segist
hann hafa greitt listaverð fyrir bíl-
inn. „Úr því ég var hvort eð er að
reka bílinn taldi ég best að fá að
kaupa hann. Síðan borgaði ég ein-
faldlega það sem mér var sagt að
borga." Ennffemur segist Björn Ingi
aðspurður hafa gefið aftiot sfn af
bílnum upp til skatts eins og ætíð
hafi verið um öll hans laun og
hlunnindi. Hann tekur fram að
hann fái ekki bílastyrk frá rflánu
vegna starfa sinna sem aðstoðar-
maður forsætisráðherra.
Annar bíll á rekstrarleigu
Bjöm var framkvæmdastjóri
þingflokks framsóknarmanna og
kynningarfúlltrúi Framsóknar-
flokksins þar til 1. september 2003
að hann hætti hjá flokknum sem
fastur starfsmaður og tók við sem
aðstoðarmaður Halldórs Ásgríms-
sonar sem þá var enn utanríkis-
ráðherra. Björn Ingi fylgdi síðan
Halldóri í forsætisráðuneytið í
haust sem leið.
„Það hafa ýmsir notað þennan
bíl. Það er í raun og veru bara
okkar mál,“ segir Sigurður Eyþórs-
son, ffamkvæmdastjóri Fram-
sóknarflokksins.
Sigurður segir að eftir að Björn
Ingi eignaðist Renaultinn eigi
Framsóknarflokkurinn enga bíla.
Sjálfur aki hann þó sem fram-
kvæmdastjóri um á bíl sem flokk-
urinn greiði fýrir. „En hann er á
rekstrarleigu," segir hann.
Konan á flokksbílnum
Nítján dögum eftir að Björn
Ingi var komin á launaskrá utan-
ríkisráðuneytisins sem aðstoðar-
maður Halldórs ráðherra, eignað-
ist Framsóknarflokkurinn áður
nefndan fólksbíl sem er dökk-
grænn og ber einkennisstafina
UG-556. Bíllinn var þá nýr frá Bif-
reiðum & landbúnaðarvélum.
Eins og áður segir eru sextán
mánuðir frá því Renaultinn komst
í eigu Framsóknarflokksins. „Ég
hef verið með þennan bíl í tæpt
ár," segir Björn Ingi um það hversu
lengi hann hafi haft bílinn til um-
ráða.
Þess má geta
í þessu sam-
hengi að í
fyrrasumar
eignaðist Björn
Ingi Hyundai-
jeppa frá Bif-
reiðum &
landbúnað-
arvélum.
Heimildar-
maður DV
segir að eft-
ir þau við-
skipti hafi
það í raun
verið eigin-
kona Björns
Inga sem ekið
hafi um á
flokksbílnum.
„Það hefur
komið fyrir að
hún hafi verið á
honum,“ segir
Björn Ingi sjálfur
um það.
„Eg hefsjálfur greitt
rekstur bílsins svo þetta
hafa ekki verið mikil
w
hlunnindi fyrir mig/'
Björn Ingi Hrafnsson Borg-
aði það sem mér var sagt að
borga, segir Björn Ingi Hrafns-
son um nýleg bilakauþ sin af
Framsóknarflokknum.
gar@dv.is
Bfll Björns Inga Ekki mikil
hlunnindi, segir aðstoðar-
maður forsætisráðherra.
. _ • -