Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2005, Blaðsíða 61

Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.2005, Blaðsíða 61
DV Fréttir LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 2005 61 Stúlkan sem lenti í öðru sæti í keppninni um Ungfrú ísland 1989 hefur verið skipuð ,v forstjóri Útlendingastofnunar. Hildur Dungal lítur með tilhlökkun til nýrra verkefna undir lofsyrðum fyrirrennara síns, Georgs Kr. Lárussonar, sem gerður var að for- stjóra Landhelgisgæslunnar. Borgi 54 líkkistur Útfararstofa fslands sleppur ekki við að greiða fyrirtækinu Fjöl-smíð fyrir 54 líkkistur auk fylgibún- aðar. Útfararstofan sem hafði greitt hluta reiknings ffá Fjöl-smíð mótmælti honum síðan. Hæstiréttur lækkaði hins vegar reikn- inginn þar sem líkkistu- smíðafýrirtækinu var ekki heimilt að lækka áður ákveðinn afslátt til Útfarar- stofunnar sem gert er að greiða rúmar 3 milljónir sem Hæstiréttur telur vanta upp á endanlegt uppgjör. Sorpi breytt í orku Á Húsavík er Sorp- samlag Þingeyinga að fara að reisa sorp- brennslu. Hún mun vera þeim eiginleikum gædd að hún tekur á móti rúllubaggaplasti sem brennt verður á staðn- um. Það mun kannski ekki vera frásögum fær- andi nema að það sem gerist þegar að rúllu- baggaplastið er brennt þá losnar mikil orka úr læðingi sem er svo not- uð til þess að framleiða rafmagn. Áætlað er að sorpbrennslan taki til starfa um næstu áramót. Bjarni einn toppnum Bjöm Bjömsson aðstoðarforstjóri ís- landsbanka tilkynnti í gær að hann hætti störfum hjá bankan- um af heilsufarsástæðum. Björn var í hitteðfyrra gerð- ur að aðstoðarforstjóra. Björn varð bankastjóri Al- þýðubankans árið 1988. Bjarni Ármannsson verður eftir þetta eini maðurinn í æðstu yfirstjórn bankans þar sem báðir aðstoðarfor- stjóramir em hættir. Fyrst sagði Bjami Jóni Þórissyni upp og nú hættir Björn. Tómas Kristjánsson tekur við hluta þeirra verkefna sem Björn hefur farið með. Metárhjá íslandsbanka Árið 2004 var metár hvað íslandsbanka varðar en hagnaður bankans á ár- inu eftir skatta nam 11,5 milljörðum króna. Er þar um 96% aukningu að ræða frá fyrra ári. Bjarni Ár- mannsson, forstjóri segir: „Árið 2004 var enn eitt metárið í sögu íslands- banka. Afkoman hefur aldrei verið betri og hagn- aður varð af öllum sviðum bankans, sem sýnir að und- irstöðumar em traustar. Áhersla sem lögð var á al- þjóðlega starfsemi í upp- hafi ársins gekk eftir og sú staða sem Islandsbanki hefur náð í Noregi mun auka áhættudreifingu og skapa sóknarfæri á alþjóða- vísu.“ Ungfrú Reykjavík verður forstjóri Hildur Dungal hefur verið skipuð í embætti forstjóra Útlend- ingastofnunar í stað Georgs Kr. Lárussonar sem orðinn er for- stjóri Landhelgisgæslunnar. Hildur er 33 ára, lögfræðingur, læknisdóttir og fyrrum Ungfrú Reykjavík. Hildur mun vera fyrsta íslenska fegurðardrottningin sem verður forstjóri opinberrar stofnunar hér á landi. „Það er gaman að taka við þessu starfi og ég veit að mín bíða mörg verkefni. En ég hef starfað þarna í tvö ár, þekki starfsemina vel og hef öfl- ugt starfsfólk þannig að ég h't bara á þetta sem skemmtilegt tækifæri sem ég er þakklát fyrir að fá," segir Hildur sem starfaði hjá Tollstjóranum í Reykjavík áður en Georg Kr. Láms- son réð hana til starfa hjá Údend- ingastofnun: Örugg og traust „Þetta er ömgg og traust mann- eskja," segir Georg sem er stoltur og glaður fyiir hönd Hildar sem nú sest í gamla forstjórastóhnn hans. Georg segist hafa vitað að Hildur var feg- urðardrottning þegar hann réð hana: „Maður verður að hafa ákveðinn standard við mannaráðningar en ég var í miklum kvennafans hjá Útlend- ingastofiiun. Þar starfa 30 konur en aðeins tveir karlmenn. Hlutfalhð er öfugt héma hjá Landhelgisgæsl- unni,“ segir Georg. Drottningin Hildur Dungal tók þátt í keppn- inni um Ungfrú ísland árið 1989 eftir að hafa sigrað í keppninni um Ung- ffú Reykjavík. Þetta var árið eftir að Linda Pétursdóttir vann og krýndi hún fyrir bragðið arftaka sinn. HÚdur lenti í öðm sæti og lét þar í minni Hildur Dungal 33 ára og tveggja barna móðir í Kópavogi orðin forstjóri Útlendingastofnunar. pokann fyrir Hugrúnu Lindu Guð- mundsdóttur. Engir fordómar Aðspurð segist HUdur ekki hafa neina fordóma gagnvart útlend- ingum enda felist starf hennar í því að framkvæma stefnu stjórnvalda í málefhum útlendinga á hverjum tíma: „Við höfum verið að vinna mUdð í inma starfi Údendingastofnunar og vonumst efdr því að það skUi meiri skilningi almennings á starfseminni. Við verðum að leggja aUa áherslu að útskýra hvers vegna við komumst að þeim niðurstöðum sem við komumst að í hverju máli og þá er ^ upplýst umræða besta vopnið," seg- ir HUdur sem er gift HaUdóri Þorkels- syni, lögfræðingi hjá PWC-endur- skoðun. Eiga þau tvö börn, þriggja og sex ára. Elskar Kanada Og uppáhaldslandið? „Það er Kanada. Ég bjó þar sem barn þegar faðir minn, Haraldur Dungaí, var þar í sérfiræðinámi í læknisfræði. Síðan hef ég haft sterkar taugar tU Kanada," segir nýráðinn forstjóri Údendingastofnunar. H Landsbankinn hagnaðist um 13 milljarða Besta ár í sögu bankans Hagnaður Landsbankans fyrir skatta nam 14,7 milljörðum króna og 12,7 milljörðum króna eftir skatta á síðasta ári. Er þetta því besta ár í sögu bankans. Arð- semi eigin fjár var 50% á árinu 2004. Hreinar vaxtatekjur námu 14,9 milljörðum króna saman- borið við 9,3 milljarða króna árið 2003 og hafa þær aukist um 60%. Heildareignir Landsbankans juk- ust um 282 milljarða króna á ár- inu og námu 730 milljörðum króna í lok árs 2004 samanborið við 448 miUjarða króna í upphafi árs. „Nýliðið ár er það besta í sögu Landsbankans,“ segir Sigurjón Þ. Árnason bankastjóri „Árið hefur einkennst af örum vexti á öllum sviðum og hefur bankinn treyst stöðu sína sem umsvifamesti bankinn á íslenskum fjármála- markaði. Heildareignir samstæð- unnar jukust um 63% á árinu og er það afar ánægjulegt þar sem eingöngu er um innri vöxt að ræða. Fjárfestingabankastarfsemi samstæðunnar gekk sérstaklega vel og hefur stóraukin tekju- myndun á því sviði treyst grunnafkomu bankans til muna. Með traustum heimamarkaði hefur Landsbankinn lagt grunn að frekari sókn og munum við í því sambandi horfa til erlends markaðar." Halldór J. Kristjánsson banka- stjóri boðar frekari útrás bank- ans og segir: „Landsbankinn kannaði fjárfestingar í erlendum fjármálafyrirtækjum á árinu 2004 og mun halda því áfram í því skyni að auka dreifingu áhættu og ná frekari stærðarhag- kvæmni.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.