Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2005, Qupperneq 29
DV Lífið
MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 2005 29
Raunveruleikaþáttur er í burðarliðnum. Guðmundur Rúnar Kristjánsson er upp-
tökustjóri og ætlunin er að taka upp 13 þætti. Fólk sem hefur trassað að þrífa og
taka til heima hjá sér fær Heiðar Jónsson snyrti og Margréti Sigfúsdóttur skóla-
stýru Húsmæðraskólans í heimsókn og þau taka heimilið í gegn.
„Heiðar var okkar fyrsta val í þetta
verkefni. Og ekki er Margrét ekki
verri. Hún kann að þrífa upp alveg á
tíu. Þau eru mjög skemmtilegt par
saman. Við erum búin að taka eitt
test og hefjum tökur fyrir afvöru á
mánudaginn," segir Guðmundur
Rúnar Kristjánsson pródúsent.
Guðmundur sljórnar gerð nýrrar
íslenskrar sjónvarpsþáttaraðar sem
Skjár einn stendur fyrir. Þetta er
raunveruleikaþáttur og heitir „Ailt í
drasii". Umsjónarmenn eru sjálfur
Heiðar Jónsson snyrtir og Margrét
Sigfúsdóttir skólastýra Húsmæðra-
skólans.
„Já, við erum að fara að hjálpa ís-
lendingum að taka til. Ætíum að létta
þér heimilisverkin. Þátturinn er að
erlendri fyrirmynd. Við tökum mið af
þættinum „How clean is your hou-
se“ sem eru nú á sínu þriðja ári í
Bretíandi og hafa notið fádæma vin-
sælda. Þessir þættir hafa verið teknir
upp víða um heim, til dæmis í Dan-
mörku og ég held að ég fari rétt með
þegar ég segi að þetta hafi verið vin-
sælasti þátturinn á TV2. Enda eru
þetta þættir sem þú mátt ekki missa
af ef þú ætíar að vera viðræðuhæfur í
vinnunni næsta dag,“ segir Guð-
mundur Rúnar og efast ekki um
ágæti hugmyndarinnar.
70 umsóknir
Guðmundur hefúr getið sér gott
orð sem upptökustjóri Brúðkaups-
þáttanna Já. Hann segir Heiðar og
Margréti fara heim til fólks sem ein-
hverra hluta vegna hefur ekki verið
mjög dugleg við þrif og tiitekt heima
hjá sér. Og þau Heiðar og Margrét
kunna til verka.
„Við erum ekki að leita eftir ein-
hverjum vandamálapökkum. En það
er nú svo að 90 prósent íslendinga
vinna of mikið og hefúr ekki tíma né
kannski nennu til að sinna þessu
sem skyldi. Og þegar þetta heftir ver-
ið látið dankast um of er erfitt að rífa
sig upp og taka heimilið í gegn."
í þættinum verður bryddað upp á
ýmsu og mörg trix sem einfalda
heimilisverkin kynnt. Fróðleiksmol-
arnir fljúga.
„Til dæmis um bakteríur sem búa
heima hjá þér. Reyndar heima hjá
öllum en í mismiklum mæli,“ segir
Guðmundur og lofar því að ýmislegt
muni koma fólki á óvart. Þættirnir
Fólk orðið vant því að vera í
sjónvarpi
Það er af sem áður var, að fólk
veigri sér við að opna heimili sín fyrir
fjölmiðlum. Þátturinn er, eins og
margir hafa eflaust rekið augun í, í
líkingu við Queer Eye for the Straight
GuyogVöluMatt.
„Þetta er svona sandpappírsút-
gáfan af Völu Matt. Meira hard core.
Já, það er rétt, það er af sem áður var
þegar enginn hefði tekið í mál að
hleypa fjölmiðlum inn á heimilið
áður en tengdó væri búin að koma til
að taka allt í gegn. En fólk er orðið
svo vant því að vera með vídeótöku-
vél í andlitinu og að vera í sjónvarp-
Guðmundur bendir að auki á að
flestir átta sig orðið á því, í nútíma-
samfélagi þegar ofboð er á fjölmiðla-
efni, að það stimplast eldd inn á
harða drifið í hugum fólks þó
einhver birtist á skjánum um stund.
jakob@dv.is
verða 13 og er búið að bóka
kandídata í þá alla. Þegar auglýst var
eftir þátttakendum bárust hvorki
meira né minna en 70 umsóknir.
„Þá undanskil ég grínumsóknir
þar sem sótt var um fyrir hönd
fjarskyldrar frænku og slíkt."
HeiOar Jonsson
Verður umsjónarmaður sjón-
varpsþáttaraðarinnar„Allt í
drasli"við annan mann.Ætlarað taka
heimili fólks í gegn.
Margrét Sigfúsdóttir Skólastýra Hús-
mæöraskólans kann aö taka til upp á tfu. AÖ
sögn upptökustjórans eru þau Heiöar
skemmtiiegtpar.
„Nei, það er ekki rétt. Það er
ekki verið að leggja F2 niður,“ segir
Jón Kaldal, aðstoðarritstjóri Frétta-
blaðsins, en hann hefur haft yfir-
umsjón með útgáfu F2 - fylgirits
Fréttablaðsins sem hefur komið út
vikulega. Jón segir það hins vegar
lifa og muni lifa áfram en með
breyttu sniði.
Blaðið, sem hefur komið út á
fimmtudögum, hættir sem vikurit
og er óákveðið með úgáfudaga. Að
sögn Jóns gæti það þess vegna
komið út hálfsmánaðarlega, mán-
aðarlega eða ársfjórðungslega.
„Það kemur bara í ljós."
Umijöllunarefni F2 hafa verið
mannlíf og pólitík og virðist sem
markhópurinn hafi fremur verið
ungt fólk en eldra. Kannski ekki
ósvipað og DV. Jón Kaldal segir þá
ályktun reyndar úr lausu lofti
gripna, markhópurinn hafi ekki
verið neinn sérstakur.
„Fréttablaðið hefur afar breiðan
markhóp og svo er einnig með F2."
En má ekki einfaldlega draga þá
ályktun að blaðið hafi gefíst upp á
samkeppniimi við DV?
„Hvaða samkeppni?" spyr
aðstoðarritstjórinn á móti.
Það var og.
„Ýmsir efnisþættir F2, sem les-
endur þekkja, munu birtast áfram
en þá í Fréttablaðinu sjálfu, tölu-
blöðum sem koma út um helgar og
í kringum þær: Göturnar f lífi
mínu, umfjöllun um mat, vín og
veitingastaði og aðrir fastir liðir,
allt þetta mun skjóta upp kollinum
annars staðar. Við lögðum upp
með þetta sem ákveðna tilraun og
ætíuðum hana til þriggja mánaða.
Nú eru hins vegar liðnir íjórir mán-
uðir frá því F2 fór að koma út.“
Að sögn Jóns mun mannahald
ekki breytast þrátt fyrir þessa
ákvörðun enda hefur það verið svo
að þeir sem einkum hafa skrifað í
F2 hafa jafnframt skrifað í Frétta-
blaðið og öfugt.
jakob@dv.is
Axl Rose Hefur iofaö nýrri Guns-plötu
frá því á slöustu öld. Núáhún aö koma
á næstu mánuöum.
Guiispm
kemur ut i ar
Tommy Stinson, bassaleikari
Guns N’ Roses hefur komið
jafnvel hörðustu aðdáendum
sveitarinnar á óvart með því að
lýsa því yfir að langþráð plata
þeirra muni koma út síðar á
þessu ári. Guns N’ Roses hafa
ekki gefið út plötu síðan 1993 og
hyggjast fylgja þessari eftir með
tónleikaferð.
Söngvarinn Axl Rose er sá
eini sem er eftir af upprunalegu
meðlimunum. Hann hefur hvað
eftir annað verið í fréttunum út
af plötunni, er sagður hafa
þróað með sér slíka fúllkomn-
unaráráttu að talið var að platan
myndi aldrei koma út. Nýja
platan ber nafnið Chinese
Democracy. Hún átti upphaf-
lega að koma út í lok síðustu
aldar. Bassaleikarinn Stinson er
harður á því að platan komi út
innan skamms og að þessa dag-
ana sé verið að ganga frá bók-
unum fyrir tónleikaferðalagið í
sumar.
„Þeir eru að ganga frá því að
mixa plötuna í þessum töluðu
orðum, velja hvaða lög eigi á
vera á henni, ganga frá útíiti
kápunnar og fleira svona drasli.
Ég vona bara að platan komi út
fyrr en síöar. Mér skilst að það
sé búið að bóka einhverja tón-
leika í Evrópu. Vonandi verður
af því og við fórum þangað og
spilum. Þegar þetta kemst í
gang þá fyrst verður gaman. Það
er helvítí mikil vinna að koma
þessu í gang en þegar það gerist
verður þetta magnað."
Slash Hættur og spilar
þvl ekki á tónleikum Guns N'Roses I
Evrópu I sumar.
DV mynd Teitur