Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2005, Page 27
I
DV Sport
FIMMTUDAGUR 10.MARS2004 27
Friðrik Ingi Rúnarsson, fyrrverandi þjálfari Njarövíkur, KR, Grinda-
víkur og íslenska landsliðsins, spáir í einvígi Snæfells og KR í átta liða
úrslitum úrslitakeppni Intersportdeildar karla í körfubolta sem
hefst í kvöld.
Miklar vænt-
ingar lyrirfram
„Þarna er líka mjög athyglisverð viðureign,
sérstaklega í ljósi þess að liðin tvö mættust
í þarsíðustu umferð Intersportdeildarinn-
ar og þá þurfti þrjár framlengingar til að
knýja fram úrslit. Þar hafði Snæfell sigur
í miklum baráttuleik og var jafnt á flest-
um tölum allan leikinn. Væntingarnar
til þessarar rimmu eru frekar miklar
en körfuboltaguðinn er svo sem ekki
aiitaf með og þetta gæti orðið þumb-
aralegur körfubolti inni á milli," segir
Friðrik Ingi Rúnarsson, fyrrverandi
þjálfari Njarðvíkur, KR, Grindavíkur
og íslenska landsliðsins, um einvígi
Snæfells og KR í átta liða úrslitum
Intersportdeildarinnar í körfubolta en
fyrsti leikur er í Stykkishólmi klukkan
19.15 íkvöld.
auðvitað í leik sem þessum. Ef einn
dettur út eða jafnvel tveir, þá er gott
að eiga aðra slíka í handraðanum til
að bera kyndilinn. KR-ingarnir búa
ekki alveg svo vel þannig að ég held
að það mun vega ansi þungt fýrir
Snæfell og liðið vinnur þennan leik í
kvöld gegn KR,“ segir Friðrik Ingi að
lokum.
„Ég á nú von
á því að þetta
verði skemmti-
legur leikur. Það
hefur verið spurn-
ingarmerki með
Sigurð Þorvalds-
son, leikmann Snæ-
fellinga. Hann var
að leika mjög vel,
sérstaklega í byrjun
vetrar, og auðvitað
skiptir það Snæfell
miklu máli að hann
sé heill.
KR-ingar eru
með betri útlendinga, mjög öflugir
báðir tveir. Hins vegar er Snæfell
með mun betri íslenska leikmenn og
ég held að ég halli ekkert á KR hvað
það snertir, leikmenn Snæfells eru
einfaldlega reyndari en KR-ingarnir.
f liði KR er þó að flnna mjög efnilega
leikmenn á borð við Brynjar Björns-
son sem er búinn að spila frábær-
lega í vetur og þar er greinilega
framtíðarmaður á ferð.
Snæfell sterkara lið
Ég held einfaldlega að Snæfell sé
með massífara lið og fleiri 20 stiga
menn, ef svo má segja. Það telur
Sterkurinn af bekknum BrynjarÞór
Björnsson, 16 ára strákur úr KR, var stiga-
hæsti varamaður intersportdeiidarinnar í
veturen hann skoraði 144 stig iþeim 18
leikjum sem hann kom inn afbekknum eða 8
stig að meðaltaii. Brynjar Þór skoraði meðal
annars 9,6 stig á 18,8 minútum eftiráramót.
DV-mynd Vilhelm
KR og Snæfell hafa spilað spennuþrungna leiki í vetur
Fjórar framlengingar í tveimur
deildarleikjum liðanna
£
Það hefur gengið
mikið á í innbyrðisleikj-
um KR og Snæfells til
þessa á íslandsmótinu
því báðir deildarleikir
liðanna hafa farið í
framlengingu. Þar af
þurfti þrjár framleng-
ingar til að skera úr um
úrslit í seinni leik lið-
anna í DHL-höllinni á
dögunum.
Desmond Peoples,
fyrrum leikmaður
Snæfells, var hetja fyrri
leiksins því hann jafn-
aði leikinn á lokasek-
úndum og tryggði sín-
urn mönnum fram-
lenginguna þar sem
hann skoraði síðan
sigurkörfu leiksins á
síðustu sekúndu
framlengingar. Her-
bert Arnarson, þjálfari
KR, var súr í bragði í
samtali við heimasíðu KR
í leikslok. „Þetta er án nokkurs vafa
eitt sárasta tap sem ég hef upplifað.
Við áttum ekid að tapa þessum leik,
svo einfalt er það. Liðið var að spila
mjög vel, baráttan fín, liðsandinn
góður og menn komu inn á með vilj-
ann að vopni," sagði Herbert en KR-
ingum hefur gengið illa að klára
jafna leiki í vetur þar til kannski í
Grindavík á dögunum.
Snæfellingar hafa hins vegar unn-
ið alla þrjá leiki vetrarins sem hafa
farið í framlengingu og hafa jafn-
framt unnið 7 af 8 leikjum vetrarins
þar sem munurinn hefur verið fimm
stig eða minna. KR-ingar hafa hins-
vegar tapað sex leikjum með fimm
stigum eða minna, sem er það mesta
hjá einu liði í deildinni í vetur.
Einn þessara leikja var þrífram-
lengdur, seinni leikur liðanna sem
gaf örugglega forsmekkinn sem
koma skal í einvígi liðanna. Það voru
KR-ingar sem tryggðu sér allar fram-
lengingarnar þrjár en Lárus Jónsson,
sem jafnaði í 89-89 í venjulegum
leiktíma, fékk víti að auki sem hefði
væntanlega tryggt sigurinn en vítið
fór ekki rétta leið. Leikurinn var frá-
bær skemmtun og því er ekki hægt
annað en að búast við mögnuðu
einvígi liðanna sem hafa glímt nær
allt tímabilið, fyrst í umdeildu
Magna-máli í haust, þá
í átta liða úr-
slitum Hóp-
'bflabikars- ; * ,
ins og loks í ■
margfram-
lengdum
deildar-
leikjum lið-
anna.
ooj&dv.is
Verður með
Sigurður Þorvaldsson
verður með Snæfeiii
gegn KR en hann
missteig sig illa á ökkla.
i síðasta
deildarleiknum á
dögunum.
Enn bjartsýnn
Þýski ökuþórinn Michael
Schumacher segir að það hafi
komið sér á óvart að félagi
hans hjá Ferrari, Rubens
Barrichello, hafi /pj &
náð öðrusætinu ■- -'"Z
í fyrsta Formúlu ‘ (9® NéS
1 kappakstri
tímabilsins í Mel-
boume í Ástralíu á
sunnudaginn. „Ég
bjóst við því að við
myndum lenda
neðar í þessari
fyrstu keppni og
ég held að Rubens • j-
hafi sýnt að bfllinn
okkar, sem er ffá því I
í fýrra, er enn sam-
keppnishæfúr. Ég er bjartsýnn
fýrir næstu keppni í Malasíu enda
hefur okkur alltaf gengið vel þar,"
sagði Schumacher.
Flensufarald-
ur hjá Hearts
Skoska úrvalsdeildarliðið
Hearts, sem Þróttarinn ungi
Hjálmar Þórarinsson leikur með,
ákvað að grípa tfl þeirra aðgerða
að loka félagssvæðinu í tvo daga
vegna flensufaraldurs sem heijaði
á starfsfólk liðsins. Félagssvæðið
var opnað á nýjan leik í dag en öll
starfsemi lá niðri þessa tvo daga
til að koma í veg fýrir aflsherjar
smit.
Þórður að
sanna sig
Siglfirski framheijinn Þórður
Birgisson sem dvelur hjá norska 1.
defldarliðinu Strömsgodset þessa
dagana hefur staðið sig vel og svo
gæti farið að honum yrði boðinn
samningur. Dag Vidar Kristoffer-
sen, yfirmaður knattspymumála
hjá norska liðinu, sagði í samtali
við DV í gær að frammistaða Þórð-
ar á æfingum væri jákvæð og viö-
ræður hefðu farið fram á milli
Strömsgodset og KS, félags Þórðar.
„Við vitum ekki hvað verður en við
munum reyna að komast aö sam-
komulagi við íslenska liðið," sagði
Kristofersson.
Staðaliðanna
í tölfræðinni
Hér á eftir fer yfirlit yfir stöðu
Snæfells og KR í helstu tölfræði-
þáttum Intersportdeildarinnar í
vetur.
Sóknin:
Flest stig að meðaltali (leilc
KR (3. sæti) 92'6
Snæfell (8. sæti) 89-°
Besta skotnýting:
KR (3. sæti) 46'5%
Snæfell (8. sæti) 453%
Besta vftanýting:
Snæfell (5. sæti) 71,8%
KR (7. sæti) 71,0%
Besta þrlggja stiga skotnýtlng:
KR (4. sæti) 35'1%
Snæfell (7. sæti) 33,2%
Flestar 3ja stiga körfur I leik:
Snæfell (9. sæti) 7,4
KR(IO.sæti) 6'9
Flestar stoðsendingar (leilc
Snæfell (3. sæti) 20,3
KR (5. sæti) 19'5
Fæstir tapaöir boltar (leilc
KR (3. sæti) 16'3
Snæfell (6. sæti) 17-3
Vömln
Fæst stig á sig að meðaltali I leik:
Snæfell (3. sæti) 83,0
KR (6. sæti) 89'8
Slakasta skotnýting mótherja:
Snæfell (l.sæti) 41 '5%
KR(10. sæti) 47'5%
Hæsta hlutfall frákasta I boði:
Snæfell (3. sæti) 53,4%
KR (8. sæti) 48-9%
Flest varin skotíleik:
Snæfell (3. sæti)
KR (9. sæti)
Flestir þvingaðlr tapaðir boltar (lelk:
KR (2. sæti) 20'8
Snæfell (7. sæti) 15-7
4,0
2,7