Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2005, Blaðsíða 25
MÁNUDAGUR 14. MARS2005 25
DV Sport
, f
PATRICK EWING
miðherji
Ewing lét strax mikið að sér kveða þegar hann var valinn
fyrstur af New York Knicks áriö 1985 og var kosinn nýliði ársins
það ár. Hann átti giæsiiegan feriii háskóla, þarsem hann varð
meistari með liði sínu Georgetown einu sinni, en lék alls þrisvar
til úrslita. Ewing varð ekki jafn sigursæll i atvinnumennskunni,
en fyrir tilstilli hans var lið New York Knicks eitt afbestu liðum í
deildinni íheilan áratug og fór
tvisvar í lokaúrslit með hann innan- j
borðs. Ewing var frábær varnarmað- Jk
ur og var í upphafi ferilsins fyrst og ^ /y
fremst þekktur sem slikur. Honum óx
hinsvegar ásmegin i NBA-deildinni sem
sóknarmaður, þegarhann varlaus við að
vera aðþrengdur allan leikinn eins og gjarn-
an þegar hann lék í háskóla. Hann þróaði með
sér stökkskot sem hann varð frægur fyrir og var t
illviðráðanlegt. Ewing skoraði yfir 20 stig að
meðaltali í leik yfir ferilinn og var meðum 10
fráköst. Hans verður minnst sem mikils striðs-
manns sem ávallt lagði sig allan fram, þrátt
fyrir að eiga oft við erfið meiðsli að stríða.
KARL MALONE
stór framherji
Hann var kallaður„Pósturinn",þvíhann kom sendingum
samherja sinna alltaf til skila. Karl Malone er oft nefndur besti
kraftframherji allra tima, enda setti hann að mörgu leyti nýja
staðla þegar kom að þvi að skilgreina stöðu kraftframherjans i
NBA. Hann var ekki aðeins tröll að burðum, heldur
var hann öskufljótur, góður sendingamaður og
skytta utan afvelli. Malone myndaði ásamt fé-
laga sínum John Stockton hjá Utah Jazz, eitt
skæðasta tvíeyki i sögu deildarinnar. Þeir fé-
lagar léku einfaldan og árangursrikan
körfubolta sem skilaði liði þeirra i úrslita-
keppnina árlega i hartnær tvo áratugi. Að- ]
eins Kareem Abdul-Jabbar hefur skorað
fleiri stig en Malone i sögu NBA og var
hann ávallt meðal stiga- og frákastahæstu
manna í deildinni. Eins og aðrir leið
Malone nokkuð fyrir að vera samtima-
maður Michaels Jordan og Chicago Bulls,
en hann þurfti tvisvar að sætta sig við
tap gegn þeim i lokaúrslitum NBA.
*V •
DAVID ROBINSON
miðherji
Hann var gjarnan nefndur„Aðmírállinn", sökum þess að
hann kaus að fresta því að leika í NBA-deildinni um tvö árþegar
hann var valinn inýliðavalinu til að geta lokið herþjónustu i
ameríska flotanum. Þegar þessi örvhenti risi gekk loks til liðs við
San Antonio Spurs árið 1989, átti hann þátt í að Spurs-liðið rétti
ærlega úr kútnum og bætti sigurhlutfall sitt frá tímabilinu áður
um 35 leiki, sem er einn mesti viðsnúningur
liðs á milli ára í sögunni. Robinson var ein-
stakur íþróttamaður og þrátt fyrir stærð-
ina var hann ótrúlega fljótur og kvikur,
sem hjálpaði honum til að vera út-
nefndur varnarmaður ársins einu sinni
og varhann oftí varnarúrvali deildarinnar.
Sóknarlega var hann ekki síðri og varð hann
stigakóngur i deildinni árið 1994, eftir að hann
sallaði 71 stigi á Los Angeles Clippers í síðasta
leiknum á tímabilinu til að tryggja sér titilinn. Að- ;
eins þrir aðrir leikmenn i sögu deildarinnar hafa
náð að skora yfír 70 stig i einum og sama leikn-
um. Robinson var kosinn besti leikmaður deildar-
innar árið 1995 og varð tvisvar meistari meðSan
Antonio, árið 1999 og 2003, í sínum siðasta leik.
*
H
CHRIS MULLIN
lítill framherji
Mikil eftirvænting rikti fyrir komu Mullins inn i NBA-deildina
á sínum tíma, þvíhann hafði átt frábæran feril íháskóla. Hann
var valinn fímmti afliði Golden State Warriors árið 1985. Fyrstu
ár hans í deildinni urðu hin mesta þrautaganga, þar sem hann
barðist við alkohólisma, erfíð meiðsli og þjálfaraskipti. Mullin
var gríðarlegur keppnismaður og lét þessar erfíðu hindranir
ekki á sig fá og hélt ótrauður áfram. Undir lok níunda áratugar-
ins var hann orðinn einn besti leikmaður deildarinnar og mikill
skorari. Mullin var örvhentur og var oftar en ekki meðal efstu
manna ístigaskori og skot- og vítanýtingu. Hann var nán-
ast ofvirkur við æfíngar og það geröi það að verkum
að hann haföi ótrúlegt úthald. Það var fyrst og
fremst að þakka stóru hjarta, úthaldi, leikskilningi
og tækni að Mullin náði jafn langt og raun bar
vitni. Flestir framherjar ná langt út afstærð
sinni, snerpu, krafti og likamsburðum - en
Mullin var einn afþeim bestu án þess að skara
fram úr á nokkru afþessum sviðum. Mullin
' komst einu sinni i úrslit NBA þegar hann lék með
' Indiana Pacers, en varð að láta i minni pokann
fyrir liði Los Angeles Lakers. Hann vann tvö
Ólympíugull með Bandaríkjamönnum, árið 1984
og 1992.
■ .................................
SCOTTIE PIPPEN
lítill framherji
Fáir þræta fyrir það að Michael Jordan var maðurinn á bak við 6 meist-
aratitla Chicago Bulls á tíunda áratugnum, en Ijóst þykir að árangur liðsins
hefði aldrei orðið eins góður efScotties Pippen hefði ekki notið við. Pippen var
ótrúlega fjölhæfur leikmaður og það sést best á þvi að
þegar hann lék með Draumaliði Bandaríkjanna á Ólymp-
íuleikunum í Barcelona, sá hann mestmegnis um stöðu
leikstjórnandans, þótt hann væri að upplagi framherji.
Helsti styrkleiki Pippens, ásamt fjölhæfni hans, var
óneitanlega varnarleikurinn, en það kom iðulega í
hlut hans að gæta besta sóknarleikmanns andstæð-
inganna. Það var ekki síst fyrir tilstilli Pippens sem
Chicago unnu sinn fyrsta NBA-titil árið 1991, þviþá
var það hann sem náði að halda aftur afMagic
Johnson hjá Los Angeles Lakers og það reyndist lyk-
illinn að sigri Chicago-liðsins. Þegar Jordan lagöi
skóna á hilluna árið 1993, steig Pippen út úr skugga
hans og varð leiðtogi liðsins og sannaði með því að
hann gæti spjarað sig sem leikmaður án Jordans. Hann
jók stigaskorun sina til muna og náði að koma liði Chicago
langt í úrslitakeppninni. Pippen var sjö sinnum valinn í
£■ ^ varnarúrval NBA-deildarinnar og jafn oft í úrvalsliðið og
Æ ' Stjörnuleikinn.
LARRYBIRD
lítill framherji
Ferill Larrys Bird með Boston
Celtics var mjög glæsilegur og hans
verður minnst sem eins litrikasta
leikmanns i sögu deildarinnar. Bird
var harður keppnismaður og gerði
allt vel á vellinum. Hann lék stöðu
framherja, en var einstakur send-
ingamaður og frábær skytta. Þessi
rólegi sveitastrákur frá Indiana kom
stórveldi Boston Celtics aftur á kort-
ið eftir nokkur mögur ár og trekkti
alltafað fullt hús i Boston Garden.
Bird varö þrisvar NBA-meistari með
liðinu, sem var í fremstu röð allan ni-
unda áratuginn með hann fremstan
i flokki. Hann vann þriggja stiga
skotkeppnina í stjörnuleiknum þrjú
fyrstu árin sem hún var haldin og
var alltafá meðal efstu manna í
vítanýtingu, sem og istigaskorun. Ef
nota ætti tölfræðina eina saman til
aö meta framlag Bird á vellinum,
gæfí það aðeins hálfa mynd afhon-
um, því leitun var að öðrum eins
keppnismanni. Hann sást oft fleygja
sér inn iáhorfendaskarann eftir
lausum boltum og hafði einstaka
hæfíleika til að gera alla i liði sínu
betri. Bird var líka þekktur fyrir að
gefa út dólgslegar yfírlýsingar um
frammistöðu sína á vellinum, sem
hann stóð iðulega
jr - við og gerði lítið
f úr andstæðingum
& sínum með því að
taka þá hreinlega á
taugum. Hann var
bestur undir pressu og
þreifst raunar á
i henni, eins og
I ótal sigurkörfur
| hans i lok leikja
báru gott vitni.
Athugið!
Christian
Laettner, sem
var tólfti
maðurinn í
Draumaliðinu
1992, er enn að
spila við lítinn
orðstír.